Vísir - 16.06.1961, Qupperneq 4
4
V I S I R
Föstudagur lG. júni 1931
BOÐ TIL RÚSSLANDS, DAN-
MERKUR OG SVÍÞJÚÐAR.
Jóni Engilberts boHió að sýna
á erlendum vetfvangi.
Flestum munu þykja skatt-
skýrslur ein hin leiðustu plögg
sem hugsast geta, andlausustu
og þurrustu sem menn Ijá nöfn
sín undir.
Að minnsta kosti ein skatt-
skýrsla er þó til með allt öðr-
um og líflegri svip en þær
venjulegu, og sú skýrsla hang-
ir á vegg í skrifstofu skatt-
stjórans í Reykjavík. Hún er í
vandaðri umgjörð og skipar
heiðurssess á veggjum skatt-
stjórans.
ai en sá, að mér var poðið að
sýna þar. Og úr því að mér var
boðið að sýna hví skyldi ég þá
ekki gera það?
Sá sem bauð var skólastjóri
Iðnskólans, Sigurgeir Guð-
mundsson heitir hann. Sigur-
geir hefur brennandi áhuga
fyrir því að Hafnfirðingar
megi og geti notið annarrar
listar en kvikmyndasýninga
einna. Hann vill að Hafnfirð-
mgar geti líka skoðað málverk
samtíðarmanna og þess vegna
Jón Engilberts listmálari.
Á skattskýrslunni er engin
dálkafylking og engar raðir af
(tölustöfum eins og venja er til.
Hinsvegar eru teiknaðar þar á
fagurlegan hátt tvær allsnaktar
manneskjur, karl og kona, í
innilegum faðmlögum. Það var
allt og sumt sem á skattskýrsl-
unni stóð, ásamt nafni þess.sem
skýrsluna sendi, en sá heitir
Jón Engilberts. Aleiga hans á
þeim árum var ástin og skýrsl-
an talaði í öllum einfaldleik
sínu máli. Frekari skýringa
þurfti ekki við.
Nú sýnir sá sami Jón Engil-
berts listaverk sín, 21 að tölu,
í Iðnskóla Hafnarfjarðar og þar
verður sýning hans opin dag-
lega kl. 2—10 e.h. fram eftir
mánuðinum.
— Hvers vegna sýnirðu í
Hafnarfirði? spurði Vísir lista-
manninn?
— Eg ætlaði ekki að sýna
þar. Það er svo margt sem
skeður öðru vísi en ætlað er.
— Hvað kom fyrir?
— Ekki nokkui hlutur ann-
hefur hann bæði boðið mér og
fleiri málurum að sýna í húsa-
kynnum skólans.
— Hafðirðu alls ekki ætlað
þér að sýna á næstunni?
— Jú, mér hafði dottið í hug
að sýna í haust hérna í Reykja-
vík og átti þess vegna tiltækar
myndir, meira að segja talsvert
fleiri en þær sem ég sýni í
Hafnarfirði.
— Svo þú heldur kannski
sýningu líka í Reykjavík i
haust?
— Ætli það. Annars er allt
í óvissu. Eg hef líka verið
slæmur til heilsunnar undan-
farið og legið lengst af í rúm-
inu undanfarna mánuði.
— Blöðin skýra frá því að
frú Furtseva, menntamálaráð-
herra Rússlands hafi boð)ð þér
að sýna í sínu heimalandi.
— Já, það er satt. En blöðin
sögðu líka að hún hefði verið
súr á svipinn þegar hún leit inn
á sýninguna hjá mér. Eg minn-
ist þess ekki. Hún var þvert á
mótí kampakát og skrafhreifin
þá stund sem hún dvaldi á
sýningunni og ræddi við mig
lengi.
listamann og ég hefi ekki efni
á því. Þetta var heldur ekki
formlegt boð, heldur aðeins
munnlegt.
— Gerirðu að öðru leyti ráð
fyrir að taka þátt í listsýning-
um erlendis?
' — Það er óvissa með það
eins og allt annað. Það getur
verið að ég sendi myndir á sýn-
ingu hjá Kammeraterne íKhöfn
í haust. Eg er einn af meðlim-
Eg sagði að hún mætti velja
sér mynd. Mér væri ánægja að
geía henni málverk til minn-
ingar um komuna. Hún kvaðst
ekki vilja þiggja það, því hún
vissi að listamönnum veitti
ekki af þeim peningum sem
þeir fengju fyrir verk sín. Þeir
mættu ekki gefa þau, og ef þeir
byðu verk sín samt sem áður
sem gjöf, mætti viðkomandi
ekki þiggja.
Svo bauð hún mér að sýna
myndir mínar í Rússlandi. Það
var fallega boðið og ég er
henni þakklátur fyrir þann
heiður.
— Og þú ætlar að þiggja
boðið?
— Hefi ekkert ákveðið um
það ennþá. Það fer að nokkru
eftir heilsunni. En það fer líka
eftir því hvort mér verður boð-
ið að kosta flutningin á mynd-
unum fram og til baka. Það
er dýrt spaug fyrir fátækan
um þess félags og hefi oft sýnt
með. þeim. Hvort ég geri það í
haust er óráðið. Mér hefur líka
verið boðið að sýna hjá öðrum
dönskum aðila, Unionen, og
líka á grafiskri sýningu í Sví-
þjóð í sumar. En ég veit ekki
--------ég er ekki eins viljug-
ur og áður að taka þátt í sýn-
ingum. Nýja brumið er farið
af því.
— Og sjálfur ertu ekKi að
hugsa um að sigla á næstunni?
— Ekki nema þá helzt til
þess að fara mér til heilsubótar.
Eg barf þess með. Eg hefi pant-
að pláss á sjúkrahúsi í Khöfn,
en ekki fengið það ennþá. Eg
veit ekki hvað verður ....
— Nokkuð annað í deigl-
unni?
— Nei, fyrst verður maður
að hafa heilsu og vinnuþrek, þá
fyrst ér unnt að ætlást eitt-
hvað fyrir.
Vihurhaup J*ý<»r)*•#*#•/«:
Fyrsía sentíing verð
ur 1000 lestir.
Getur farið þegar að loknu verkfaili.
Eins og kunnugt er, hefir
Hafnarfjarðarbær samið við
þýzkan iðnrekanda um sölu á
vikri til útflutnings.
Vikurinn verður tekinn úr
svokölluðum Óbrynnishólum,
sem eru skammt fyrir sunnan
Hafnarfjörð, og samið hefir
verið við Eimskipafélag íslands
um flutning á honum. Kom
fyrst til orða, að Tröllafoss yrði
notaður til flutninganna, en
hann mundi taka um 4000 lest-
ir, en ekki er víst, að hann verði
fyrir valinu, ef heppilegra þyk-
ir að senda eitthvert annað
skip.
Nú er svo komið, að öllum
undirbúningi á þessum vikur-
kaupum er lokið, og geta flutn-
ingar á vikrinum hafizt jafn-
skjótt og verkfallinu lýkur.
Samkvæmt upplýsingum,
sem Vísir fékk í morgun hjá
Stefáni Gunnlaugssyni bæjar-
stjóra Hafnarfjarðar, mun
verða byrjað á að senda 1000
lestir og á sú sending að geta
farið, samkvæmt því sem að
framan segir, þegar verkfallinu
hefir verið aflétt.
Golda Meir
þakkar.
Utanríkisráðherra fsraels,
frú Golda Meir, hefur sent for-
seta íslands þakkarskeyti fyrir
alúðlegar móttökur á íslandi.
Utanríkisráðherra íslands
barst einnig skeyti, mjög svip-
að orðað.
í skeyti sínu til forseta ís-
lands fórust utanríkisráðherra
fsraels orð á þessa leið:
,,Eg vil hér með færa yður
og forsetafrúnni alúðlegustu
þakkir mínar fyrir yðar ein-
stæðu gestrisni. Mér þótti það
sérstakur heiður, að kynnast
yður, og það var mér sönn á-
nægja að komast að raun um,
hversu mikinn áhuga þér sýnd-
uð landi mínu og hve mikið
þér vissuð um það að fornu og
nýju.
Eg mun aldrei gleyma heim-
sókn minni til íslands, né
heldur kynnum mínum af þjóð-
inni, sem landið byggir, þjóð
með hetjulund.
Kærar þakkir. Golda Meir.“
Drengir á
batavegi.
Báðir drengirnir sem slösuð-
ust á dögunum, annar við það
að hrapa norður á Skagaströnd,
hinn við hnífstungu í Keflavík,
eru nú á batavegi að því er við-
komandi sjúkrahússlæknar
telja.
Um drenginn í Keflavík, Hall
björn Sæmundsson,, er það að
segja að það er fyrst nú að
læknar telja hann kominn yfir
mestu hættuna. Fram til þessa
hefur hann verið mjög veikur
og haft miklar blæðingar. En
nú virðist hann vera kominn
yfir það örðugasta og læknar
telja hann úr lífshættu nema
eitthvað óvænt komi fyrir.
Drengurinn sem hrapaði í
Króksbjargi á Skagaströnd,
Sigurbergur Ragnarsson frá
Hlíð á Snæfellsnesi, er á góðum
batavegi, að því er Landspítal-
inn hefur tjáð Vísi.
Hafnarfjúrður
Otsölumaður Vísis í Hafnarfirði er Oliver Steinn,
bókabúðinni, Strandgötu 39, sími 30043. —
Sölubörn, sem vilja selja blaðið á götum Hafnar-
fjarðar, eru beðin að snúa sér til hans.
Dagblaðið V í S I R