Vísir - 16.06.1961, Síða 16
Föstudagur 16- júní 1961
17. júní
stimpill.
Tilkynning
frá Póst- og simamálastjdrninni.
Svo sem áður hefur verið til-
kynnt gefur póst- og símamála-
stjómin út þnjú ný frímerki
hinn 17. júní í tilefni 150 ára
afmælis Jóns Sigurðssonar.
Sérstakur dagstimpill mun
þá verða notaður í Reykjavík í
stað hins vanalega útgáfudags-
stimpils og verður bréfapóst-
stofan opin kl. 8—13 þann dag.
Rvik, 15. júní 1961.
Loftleiöir kaupa 4. Cloud-
masterinn.
Á aðalfundi Loftleiða í gær
taldi formaður, Kristján Guð-
laugsson hrl., nauðsyn bera til
að keypt yrði í haust fjórða
Cloudmasterflugvélin til þess
að fullnægja flutningaþörf-
inni, enda þótt félagið yrði að
fara hægt í sakirnar um frekari
útþenslu.
Formaður vakti athygli á
þeim vanda, sem flugfélögun-
um vaeri á höndum vegna verk-
fallanna á s.l. ári og nú. Enn-
fremur minntist hann á samn-
ingaumleitanir um rekstur á
Keflavíkurflugvelli, sem fóru
út um þúfur. Nú væri fluglið
Enginn dans.
Þjóðhátíðarnefnd hefur nú tilkynnt að enginn
dans verður á götum bæjarins annað kvöld, né
heldur veitingasala úr tjöldum og skúrum.
Nefndin telur þetta óhjákvæmilegt, þar sem
Dagsbrún hefur synjað um undanþágu til undir-
búnings hátíðahöldunum.
Víst er, að þessi afstaða Dagsbrúnar kemur
fólki spánskt fyrir sjónir. Fólk skilur ekki hvaða
ami verkfallsmönnum geti verið að því, að bæjar-
búar fái að halda þjóðhátíð með svipuðu sniði og
verið hefur.
Það er óhætt að segja, að Reykvíkingar muni
sakna þessa þáttar hátíðahaldanna, sem ávallt hefur
sett sinn svip á bæinn.
Að öðru leyti mun reynt að hafa dagskrá há-
tíðahaldanna með svipuðu sniði og verið hefur.
EDLILEG VfNSALA.
Vísir hafði í morgun samband
við vínbúðina á Snorrabraut
og innti eftir áfcngissölu síðan
verkfallið hófst.
Verzlunarstjórinn gaf þær
upplýsingar, að salan nú væri
alveg eðlileg. Fyrst eftir að
verkfallið hófst dró aðeins ur
henni, en nú væri salan sem
sagt alveg eðlileg, hvorki meiri
né minni.
félagsins eingöngu íslenzkt, en
áður hefðu verið nokkrir er-
lendir menn í þjónustu þess.
Fyrrverandi lögfræðingur ^Loft-
leiða í New York hefði nú verið
ráðinn framkvæmdastjóri þess
þar í borg.
Þá tók framkvæmdastjóri
Loftleiða, Alfreð Elíasson, til
máls og gaf m. a. eftirfarandi
upplýsingar í skýrslu sinni:
Alls voru flognar 350 heilar
hringferðir milli Ameríku og
Evrópu auk tveggja ferða milli
íslands og Evrópu. Raunveru-
leg aukning á farþegaflutningi
er 13.6% miðað við nýtta sæta-
km. Fluttir voru á árinu 40,773
farþegar á móti 35,498, tæp
15% aukning miðað við höfða-
tölu. Vöruflutningar jukust um
15% og póstflutningur um
25%. Flugvélar flugu samt.
12.969 klst. og var hver flugvél
að jafnaði um 9 klst. á lofti á
sólarhring og talin sérlega góð
nýting.
Nýju Cloudmastervélarnar
Leifur Eiríksson og Snorri
Sturluson byrjuðu áætlunar-
flug 1. apríl, Hekla í förum allt
Framh. á bls. 5.
Þessi mynd var tekin niðri
í Alþingishúsgarði í gær, en
þar eru á hverju ári teknar
myndir af nýstúdentum. —
VALBJÖRK SELUR HÚSGÖGN
FYRIR 2 MILUÓNIR.
í gær undirritaði amerískur
kaupsýslumaður samning við
húsgagnaverksmiðjuna Val-
björk á Akureyri um kaup á
húsgögnum fyrir 2 milljónir ís-
lenzkra króna.
Framleiðsla Valbjarl^ar á
Akureyri á húsgögnum er
löngu landskunn, enda er Val-
björk í röð stærstu húsgagna-
framleiðenda landsins. Fyrir
nokkru sendi verksmiðjan
nokkur sýnishorn af fram-
leiðslu sinni á sýningar bæði í
New-York og Minneapolis. Þar
vöktu þau mikla athygli, og nú
gerði amerískur kaupsýslumað-
ur, sem á stóra húsgagnaverzl-
un í Minneapolis, • sér ferð á
hendur til íslands til að athuga
möguleika á framleiðslu hús-
jum
17.
eöa
7. nóv.
Rosi í dag, en skárra
a morgun
Þegar Vísir hafði samband
við Veðurstofuna í morgun
fékk hann þær upplýsingar, að
útlitið væri heldur leiðinlegt.
Mætti jafnvel búast viðsvipuðu
veðri og var 17. júní í hitt eð
fyrra, en þó starida vonir til
þess, en eins og menn muna var
þá, norðvestan rok og kuldi hér
sunnanlands, en snjókoma fyrir
norðan.
Djúp lægð er nú skammt fyr-
ir sunnan Vestmannaeyjar; hún
hreyfist í norðaustur og verð-
ur líklega yfir miðju landinu
um kl. 18 í kvölc og vfir Mel-
rakkasléttu um miðnætti. Með-
an lægðin gengur yfir má búast
við brejdilegu veðri hcr á landi.
Verður líklega .uðlæg átt á 1
Suðausturlandi, en norðlægur
vindur á Vestfjörðum. A morg-
un verður líklega norðanátt uni
allt land og heldur batnandi
veður.
Kommúnistar hafa nú
komið í veg fyrir, að unnt
verði að skreyta bæinn
vegna hátíðarinnar á morg-
un, og mun það víst ekki
hafa komið öllum á óvart.
Þjóðhollusta þeirra hefir
aldrei verið dregin í efa og
enn hafa þeir fært sönnur á
hana á hinn rækilegasta hátt.
Skyldu þeir hafa neitað um
nauðsynlegar undanþágur,
ef hér hefði verið stjórn með
réttum lit og hún viljað láta
flagga og sitthvað meira 7.
nóvember. Hver svari fyrir
sig!
gagna hérlendis fyrir amerísk-
an markað.
Kaupsýslumaður þessi, Ro-
bert Echhorn að nafni, skoðaði
verksmiðju Valbjarkar í gær
og leizt honum prýðilega á. Var
í gær jafnframt undirritaður
samningur milli hans og fyrir-
tækisins um sölu á húsgögnum
íyrir 2 milljónir króna til að
byrja með. Eru þetta aðallega
borðstofuhúsgögn, sófaborð og
stakir stólar með skinn- eða
gæruáklæði. Fer fyrsta send-
ingin utan i septembermánuði
n.k., en afgreiðslu á allri pönt-
uninni á að vera lokið fyrir n.k.
áramót.
Sami maður er ennfremur að
athuga kaup á verulegu magni
af Gefjunnar áklæði og værðar-
voðum, en frá samningum hafði
ekki verið gengið í gær.
Veðurhorfur:
NA-hvass-
viðri og rign-
ing fyrst, síð-
m NV-átt.