Vísir - 23.06.1961, Blaðsíða 1
I
VISIR
51. árg. — Föstudagur 23. júní 1961. — 140. tbl.
Árás á Ak-
ureyri.
Frá fréttaritara Vísis.
Akureyri í gær.
Aðfaranótt s.l. íaugardags
urðu tveir Akureyringar fyrir
árás og hnjaski af hálfu gest-
komandi manna í bænum og er
þetta mál nú í rannsókn hjá
bæjarfógeta.
Um þrjúleytið umrædda nótt
kom maður í lögreglustöðina á
Akureyri og kærði árás á sig
og félaga sinn, sem hann kvað
liggja rotaðan úti á götu. Lög-
reglan fór á stúfana og fann
meðvitundarlausan mann liggj-
andi á þeim stað sem henni
hafði verið vísað á. Flutti hún
manninn í sjúkrahús þar sem
hann komst fljptlega til með-
vitundar aftur. Voru ekki frek-
ari meiðsli sjáanleg á honum
og fékk hann að fara heim til
sín daginn eftir.
Mál þetta er enn í rannsókn,
en eftir því sem næst verður
komizt hittu tveir Akureyring-
ar fjóra aðkomumenn á Ráðhús-
torginu aðfaranótt 17. júní.
Tóku þeir tal saman, en fljót-
lega kom þó til missættis, enda
voru mennirnir eitthvað við
skál. Jókst sennan orð of orði,
þar til orð þóttu engan veg-
inn fullnægjandi til að sann-
færa hver annan og heppilegra
myndi vera að nota hnefana
til þess arna. Voru heimamenn
að því leyti grátt leiknir að
annar var rotaður eins og að
framan segir, en hinn slapp við
minni háttar harsmíð. Var það
sá, sem kærði árásina til lög-
reglunnar.
Færri skip í
höfninni
Heldur liefur fækkað' skipum
í höfninni að undanförnu SÍS-
skipin, sem stöðvuðust, fóru að
sjálfsögðu út, er SÍS samdi.
Eftir liggja nú Tröllafoss,
Brúarfoss og Fjallfoss frá Eim-
skipafélaginu, Esja, Herðubreið
og Skjaldbreið frá Skipaútgerð
ríkisins. Auk þess eru um 10
togarar stöðvaðir hér í höfn-
inni, en þeir eru ekki allir frá
Reykjavik, t. d. er Víkingur frá
Akranesi enn hér í höfninni.
Hinir sigruðu ganga af fundi Hlífar í gær. Kommúnistar trylltust á fundinum undir forystu
Hannibals, en biðu algeran ósigur fyrir verkamönnum, sem fannst verkfalllið orðið nógu
langt. Á myndinni eru þessir menn: Sigvaldi Andrésson, einn kommúnistanna, sem sagði sig
úr stjórn Hlífar, af því að verkfallið varð ekki lengra, Jón Bjarnason, blaðamaður við Þjóð-
viljanot, sem jafnan er notaður til þess, sem aðrir treysta sér ekki til að gera, nefnilega skrá
hetjusögur um Hannibal, Guðmund J. og aðra slíka í verkfallinu, Hannibal og kommúnisti
úr Reykjavík, sem hann hafði með sér til stuðnings.
Frá fréttaritara Vísis.
Raufarhöfn í morgun.
Frá því klukkan 7 í gær-
morgun þar til klukkan 8 í
morgun fengu 50 skip síld á
Hornsbanka og í Reykjafjarðar
ál. Skipin héldu til Sigluf jarðar
með síldina en mest af henni
mun fara í bræðslu þar sem
búið er að salta upp í samninga
af síld með lágri fituprósentu
er Finnar kaupa. — Síldin er
hinsvegar ekki það feit enn, að
hún sé hæf til söltunar sem
feit-síld í aðra sölusamninga.
Fyrir Norðurlandi er nú hið
bezta veður og blíða um allan
sjó. Enda þótt svo sé, er dauft
yfir veiðunum og síldar hefur
' \ ,
Dagsbrún neitar að
leysa verkfallið.
ekki orðið var neinsstaðar ann-
arsstaðar en á Hornsbanka og í
Reykjafjarðarál. Enn sem
komið er hefur síld ekki sézt
vaða. Flugvélarnar fara af stað
í dag í síldarleit.
Varla nokkur bátur er nú á
austursvæðinu, enda finnst
mönnum þar ekki veiðilegt um
þessar mundir. Straumur fer
nú stækkandi og gera menn
sér vonir um að veiðin glæðist
í næstu viku þegar straumur
er mestur. Menn telja síld vera
á austursvæðinu, enda þótt hún
finnist ekki á mæla.
Ósamið á Raufarhöfn.
Enn er ósamið um kaup við
síldarverksmiðjur ríkisins á
Raufarhöfn og við síldarsalt-
endur. Samningar hófust í gær,
en tókust ekki. Verkamanna-
félagið á Raufarhöfn hefur
krafist eins prósent meiri
Frh. á 10. s.
Bjargar barni
Á sáttafundinum í
gærkvöldi hafði Dags-
brún það í hendi sér að
leysa verkfallið með því
að ganga að sömu kjor-
um og um var samið í
Hafnarfirði í gær.
Buðu atvinnurekendur
samninga samhljóða Hlífar-
samkomulagir.u. Því neitaði
Dagsbrún, þar sem gert er
ráð fyrir að styrktarsjóðn-
um stjórni óháð stjórn, cn
hann sé ekki undir félags-
stjórnina seldur. Með þessu
hafa kommúnistarnir í
Stjórn Dagsbrúnar enn einu
sinni framlengt verkfallið
og gjalda verkamenn þess
nú að kommúnistar vilja
halda öllum yfirráðum yfir
styrktarsjóðnum. — En hver
er ástæðan til þess að þeir
vilja ekki að stjórn hans sé
óháð?
Verður því ekki á móti
mælt að ábyrgðin á verkfall-
inu hvílir nú öll á herðum
kommúnistanna í Dagsbrún,
þar sem vinnuveitendur hafa
marglýst sig fúsa til þess að
semja um 11% kauphækkun.
Þjóðviljinn í morgun segir
að verkfallið kosti þjóðina
um 10 millj. króna á dag.
Þá vita menn það. Með því
að neita að semja um kjör,
sem eru verkamönnum hag-
stæðari en Dagsbrún sjálf
heimtar, baka kommúnistar
íslendingum 10 millj. króna
fjárhagstap á dag, að þeirra
eigin sögn.
Frá fréttaritara Vísis.
Akureyri í morgun.
Síðastliðinn þriðjudag bjarg-
aði 10 ára drengur tveggja ára
barni, sem hrint hafði verið í
sjóinn við Hafnarstræti, frá
drukknun.
Skeði þetta fyrir framan hús
númer 49 við Hafnarstræti, en
það stendur við sjó fram og er
grjóthleðsla frá lóðinni niður í
sjóinn. Fyrir utan húsið var
2ja ára drengur að leika sér,
Hjörtur Guðmundsson að nafni
og átti hann heima í húsinu.
Bar þá að stálpaðan dreng sem
gerði sér lítið fyrir og hrinti
Hirti litla fram af uppfylling-
unni og út í sjóinn, en hljóp síð-
an á brott sjálfur.
Tíu ára . gamall drengur, sem
var á hjóli þar skammt frá, sá
þegar þetta skeði, flýtti sér á
staðinn og óð út eftir barninu,
sem lá hjálparvana í sjónum og
hefði drukknað ef hjálp hefði
ekki borizt jafn skyndilega.
í fallinu niður steinvegginn
hafði barnið slegizt við stein
og hlotið áverka á höfuðið. Var
farið með það í sjúkrahús, þar
sem gert var við sárið.
Enginn sátta-
fundur
Engir sáttafundir verða
með Dagsbrún og vinnuveit-
endum í dag. Fundur hefur
hinsvegar verið boðaður með
rafvirkjum og meisturum
þeirra kl. 4 í dag.