Vísir - 23.06.1961, Side 4
4
V I S I R
Föstudagur 23. júní 3 961
1
!
V
I
\
I
\
l
I
♦
Heimilda afiað
Gest Pálsson.
Menningarsjóður mun áð-
ur en langur tími líður gefa
út ævisögu Gests Pálssonar,
mikið rit og ítarlegt, eftir
Svein Skorra Höskuldsson
magister.
Sveinn Skorri hefur viðað
að sér miklum heimildum
um Gest Pálsson og þá fé~
laga fjóra, sem hlut áttu að
útgáfu tímaritsins Verðandi
1882, en það voru auk Gests
þeir Bertel Þorleifsson, Ein-
ar Hjörleifsson og Hannes
Hafstein. í þeim tilgangi
hefur Sveinn Skorri dvalið
bæði í Danmörku og Kan-
ada til að kanna heimildir,
sem ekki var unnt að grafa
upp hér heima. Er hann ný-
kominn vestan um haf.
— Hvað kom til þess að
áhugi þinn vaknaði íyrir
Gesti Pálssyni? spurði Vísir,
er blaðið hitti Svein Skorra
að máli fyrir skemmstu.
— Það er fyrst þar til að
taka að eg hafði mætur á
^ögum í stíl raunsæisstefn-
unnar en Gestur Pálsson er
einn höfuðboðgerx hennar í
íslenzkum bókmenntum. En
það vildi auk þess þannig
til að þegar eg kom í ís-
lenzkudeild Háskóla íslands
haustið 1950 þá flutti dr.
Steingrímur J. Þorsteinsson
prófessor fyrirlestra um höf-
unda á seinni hluta 19. ald-
arinnar og þ. á m. Gest '■
Pálsson. Þá tók eg strax þá
ákvörðun að skrifa aðra
prófritgerð mína til fyrri
hluta prófs um þetta efni og
tók fyrir þrjár fyrstu sögur
Einars H. Kvaran. En seinna
þegar eg fór að hugsa til að-
alprófs ritgerðar minnar
varð Gestur Pálsson og rit
hans fyrir valinu. Það var
1958.
— Og þú hefur haldið
tryggð við það efni síðan?
— Mig langaði til að afla
frekari gagna um líf og störf
Verðandi-manna, fyrst og
fremst þó um Gest Pálsson.
í því skyni fór eg að prófi
loknu til Khafnar og dvaldi
þar veturinn 1958—’59 við
grúsk.
— Varð þér sæmilega á-
gengt?
— Það eru miklar heim-
ildir varðveittar um alla
Verðandirpenn í Khöfn, sér-
staklega í bréfasöfnum Kon-
unglegu bókhlöðunnar, í
skjalasafni Garðs — þar þó
einkum varðandi þá Einar
og Hannes — og auk þess
víðar. Margt af því sem þar
er að finna hefur ekki verið
dregið fram í dagsljósið áð-
ur.
— Síðan hélstu þessum
eftirgrenslunum þínum á-
fram vestan hafs?
— Þeir Einar Hjörleifs-
Gestur Pálsson.
son og Gestur Pálsson flutt-
ust báðir vestur um 'haf.
Eiríár var þár í 10 ár, en
Gestur ekki nema rúmt ár,
1890—91, og dó þar 19. ág-
úst 1891. Eg bjóst að vísu
ekki við miklum upplýsing-
um þar um Gest Pálsson, en
vildi þó engan veginn láta
undir höfuð leggjast að afla
þeirra heimilda, sem hugs-
anlegt væri að fá þar.
— Hvenær fórstu vestur?
— í septembermánuði í
fyrra og naut til þess styrks
frá Canada Council. Um leið
notaði eg tækifærið og lét
innrita mig í tvo „kúrs-
usa“ í enskri bókmennta-
sögu við háskólann í Winni-
peg.
— Gastu aflað þér þar
upplýsinga um Gest Pálsson?
— Lítið, en þó ekki
minna en eg bjóst við. Eg
hitti þar líka að máli fólk
sem mundi Gest og haft
hafði persónuleg kynni af
honum. Að því var mér tölu-
verður fengur. Meira varð
mér ágengt um heimildir
varðandi Einar Hjörleifsson,
enda dvaldi hann þar lengi
og kom mjög við sögu í póli-
tísku og menningárlegu lífi
Vestur-fslendinga. Hann
um
var meðal stofnenda beggja
blaðanna Lögbergs og Heims
kringlu og hafði ritstjórn
þeirra á hendi, en þó ekki
ritstjórn Heimskringlu nema
skamma hríð. Gestur var rit-
stjóri Heimskringlu þann
tíma sem hann dvaldi vestra
og lenti þá m. a. í hatrömm-
úm blaðadeilum bæði við
Einar Hjörleifsson og síra
Jón Bjarnason. Við pann
fyrri um stjórnmál og þann
síðarnefnda um trúmál.
— Er skáldskap Gests að
finna frá þessum tíma í
Vesturheimi?
— Ekki örugglega. Það er
eitthvað af gamanþáttum
eftir hann í Heimskringlu,
en allur skáldskapur hans,
sem máli skiptir, er eldri.
Tími hans vestra hefur að
mestu farið í blaðagreinar
og deilur. Sumt skrifaði
Gestur undir nafni, en annað
verður með öruggri vissu
rakið til hans þótt nafn-
laust sé.
— Hér heima hefurðu líka
aflað gagna varðandi Gest?
— Já, eg hefi viðað að
mér öllum þeim upplýsing-
um um hann og heimildum
sem eg hef getað. Mest vann
eg að heimildasöfnun um
Gest árið 1956. Þá náði eg
til margra manna, sem þekkt
höfðu Gest og gátu frætt
mig um ýmislegt varðandi
hann. Sumir þeirra heim-
ildarmanna eru nú látnir
svo það var eiginlega á síð-
ustu stundu að eg byrjaði að
Sveinn Skorri.
afla þessarra gagna. Annars
hef eg leitast við að hafa
upp á sem flestum, sem per-
sónuleg kynni höfðu af
Gesti.
— Og nú ertu að skrifa
bók um Gest Pálsson?
Framh. á bls. 7.
i
i
i
j
$
Bréf:
Líkamsrefsing og
frelsissvifting.
Ég hef stundum verið að
velta því fyrir mér undanfarin
ár, hvort manndýrkun væri í
uppsiglingu í íslenzku þjóðlífi.
Þróunin hjá ýmsum opinber-
um fyrirtækjum, hvernig þau
eru túlkuð (presenteruð) gagn-
vart almenningi, bendir ein-
dregið í þá átt. Þar vdrðist
helzt koma til greina, að ráða-
menn þessara stofnana líti em-
bættissögu sína svo stórum
augum, að þeir ætlist til dýrk-
unar, eða að þarna hafi átt sér
stað mistök undirmanna, sem
hafa viljað koma sér vel við
yfirmenn sína.
Eins og sæmir í menningar-
þjóðfélagi höfum við íslend-
ingar orðið nokkuð fastmótað
skipulag, og þá að sjálfsögðu
mörg embætti, sem annast hin
ýmsu hjól þjóðfélagsvélarinn-
ar. Það væri ekki óeðlilegt, að
embætti þessi hétu einhverjum
nöfnum og í raun og veru gera
þau það. En svo einkennilega
hefur samt viljað til, að heitin
hafa oft færzt yfir á embættis-
heiti stjórnenda þeirra og heita
því stjóra embætti. Ef við flett
um upp í Símaskrá 1961 og lít-
um yfir nöfn margra þessara
embætta finnum við „stjóra“
heitin nokkuð víða. Tökum
þokkur dæmi: Tollstjóraskrif-
stofurnar. Því ekki bara ToII-
skrifstofurnar? Lögreglustjóra-
skrifstofurnar. Er ekki nægi-
legt að hafa aðeins Lögreglan?
Svo geta komið undirfyrirsagn-
ir eins og Varðstofa, Almenn
skrifstofa, Lögreglustjóri o. s.
frv. Sakadómaraskrifstofurnar.
Væri ekki heldur nær að þær
hétu Sakadómur Reykjavíkur?
Oft heyrist talað um að menn
séu dæmdir í sakadómi en
aldrei í dómi sakadómara. —
Raforkumálastjóri. Raforku-
málaskrifstofan eða Raforku-
málastjórn væri mun betra.
Það er að minnsta kosti hálf
óviðkunnanlegt ef við þurfum
að finna Rafmagnseftirlit rík-
isins í símaskránni, eða svo
virðulega stofnun sem Raf-
magnsveitur ríkisins, að þá
verður að fletta upp í Raforku-
málastjóra. Er þetta hægt? Ef
við þurfum að finna Heilbrigð-
iseftirlitið er það undir Borg-
arlækni. Því ekki að láta emb-
ættið heita Heilbrigðiseftirlit-
ið og Borgarlæknir sem aðrar
deildir þess kæmu sem undir-
fyrirsagnir. — Borgardómari,
Borgarfógeti. Allt er þetta á
sömu bókina lært. Þó kastar
fyrst tólfunum þegar kemur
Verðlagsstjórinn, skrifstofa. —
cvo kemur Eftirlit með verð-
innfiuttra vara, Eftirlit
með iðnaði og verzlun og síðast
klykkir aftur út með Verðlags-
stjóri og aðalfulltrúi. Þetta er
fáránlegt. í meðvitund fólksins
er þetta Verðlagseftirlit, hvað
sem stjóranum líður, og er það
ekki nóg?
Allt eru þetta hin virðuleg-
ustu embætti, og þedr menn,
sem skipa topp-stöður þeirra,
mega vera full sæmdir af
þeim, þó þeir sjái ekki alltaf
eða heyri sín persónulegu emb-
ættisheiti bundin hverju smá
atviki tengdu embættinu.
Þó að hér hafd verið nefnd
nokkur dæmi, eru þau þó sjálf-
sagt til miklu fleiri, og víðar
en í Reykjavík. Það eru líka
mörg embætti, sem eru laus
við þennan „ósóma“, t. d. Raf-
magnsveita Reykjavíkur, Bæj-
arskrifstofumar, Vegamála-
stjórnin (mættd þó gjarnan
vera Vegamálaskrifstofumar)
Póstur og sími o. m. fl.
Símaskráin er nýkomin út.
Hún má heita aðal eða eina
„addressubók" okkar íslend-
inga. Vonandi kemur hún út
aftur áður en langt um líður.
Ég vona, að þessum „stjóra"-
embættum gefist þó nægur
tím,i til að íhuga þessar ábend-
ingar og láta breyta ofan-
greindum heitum í algjör emb-
ættisheiti fyrir útkomu næstu
símaskrár.
Valur.
Mynt Péturs
Eins og fram mun hafa kom-
ið á prenti, hefur Pétur H.
Salómonsson, fyrrum í Sels-
vör, látið slá peninga nokkra til
minningar um dvöl sína þar.
Er hér um að ræða gullpening,
silfurpening og koparpening.
Pétur leit inn á skrifstofu
Vísis nýlega, og kvað myntina
slegna fyrst og fremst til minn-
ingar um sjósóknir sínar þaðan
í 18 vertíðir, og hins ýmsu
ævintýri sem hann hefur þar
ratað í, þ. m. talin víg margra
manna, innlendra sem útlendra
— og síðast en ekki sízt athafn-
ir sínar á Gullströndinni, en
það er úr góðmálmum þaðan
sem peningarnir hafa verio
gjörðir.
Selsvarardalir heita þeir, og
er öðrum megin mynd af Pétri,
en hinum megin er skjaldar-
merki sægarpsins, sem er bryn-
tröll, en bryntröll var eitt af
skæðustu vopnum fornaldar-
innar.
Gullpeningur Péturs er 32
grömm að þyngd, af 14 karata
gulli. — Silfurpeningurinn er
25 gr. og er af sterlingssilfri.
Verð silfurpeningsins er 150 kr.,
koparpeningsins 50 kr., en sak-
ir ókunnugleika Péturs á gull-
verði hefur hann ekkj enn verð-
lagt gullpeninginn. — Þeir eru
allir til sölu hjá Pétri sjálfum.