Vísir - 23.06.1961, Blaðsíða 10
10
V I S I R
IMapoIeon*
Föstudagur 23. júní 1961
Það er ekki eins títt hér við land, að menn eigi skemmti-
eða hraðbáta sér til dægrastyttingar eins og með ýmsum
öðrum þjóðum. Það stafar vafalaust af því, að slíkir gripir
eru dýrir. Þar fyrir hafa menn skemmtun af slíkum tækj-
um, eins og sjá hefir mátt undanfarið, þegar vélbáturinn
„Silfurrörin“ hefir brunað um höfnina á góðviðrisdögum.
Framh. af 9. síðu.
þreytu og sultar hersveita
sinna varð hann að hvíla
þær um hríð og gefa sér tóm
til að skipuleggja aðdráttar-
leiðir sínar.
Einn af hershöfðingjun-
um varaði Napóleon við
þessu mikla kappi, því að
riddaraliðið væri að bugast,
en hann lét ekki sannfærast,
og Murat rak riddara sína
áfram með svo miklu ofur-
kappi, að hann eyðilagði
bókstaflega þetta dýrmæta
vopn Frakka. Á fimm vikna
sókn hafði Napóleon gert
fjandmanninum lítið mein,
en misst um þriðjung liðs
síns vegna þreytu o. þ. h. og
hinir voru allir illa á sig
komnir.
Vildi knýja
fram orustu.
Keisarinn velti nú fyrir
sér tveim kostum. Annar
var að búast um í Vitebsk
sem bezt, unz Rússar fgngj-
ust til að leggja til atlögu
eða halda sókninni áfram
og reyna að neyða Rússa til
orustu. Hann valdi síðari
kostinn og taldi hann á all-
an hátt betri. Hann trúði
líka, að gengið mundi til
orustu, af því að hann vildi
Ed. Murrow -
Tramh. af 8. síðu.
imdir Vínarfundinn, ef það
var þá eitthvað.
Mr. Murrow: Við vorum
hafðir með í ráðum. Við
vorum látnir vita hvað yrði
tekið með til Vínar af stjórn
arskjölum. En aðalhlutverk
okkar var' að útbreiða og
túlka skoðanir og stefnu
Bandaríkjanna á fundinum.
Mr. Spivak: Voruð þér
með í ráðum um stefnu-
myndun stjórnarinnar fyrir
fundinn?
Mr. Murrow: Nei.
Mr. Spivak: Gerðuð þér
yður grein fyrir hinum
mörgu hættum í sambandi
við áróðurinn, þegar forset-
,mn ákvað að fara til fundar
við Krúséff, í ljósi þess, sem
gerzt hafði á síðustu stór-
veldafundum?
Mr. Murrow: Svona fund-
um fylgja ætíð nokkrar
áhættur, en ég held ..að
stefna og tilgangur stjórn-
arinnar hafi frá upphafi gert
mönnum Ijóst, að ekki var
að vænta ákveðinnar niður-
stöðu. að þessar viðræður
voru aðeins til að forða frek-
ari misskilningi, sem byggð-
ur væri á skökkum útreikn-
ingum.
Mr. McCormick: Hvernig
ætlið þér að meta það á
það, og treysti því, að hann
mundi hafa sigur, af því að
það var honum nauðsyn.
Hann var ekki í vafa um,
að aðallinn mundi neyða
keisarann til að semja frið,
því að sá árangur var undir-
staðan í öllum útreikning-
um hans.
Kæmi það fyrir, að hann
sæi afleiðingarnar, sem yfir
vofðu, þurfti ekki nema smá
atvik, svo sem komu nýliða
eða fagnaðaróp hermanna,
til þess að telja honum hug-
hvarf. Þá var hann reiðubú-
inn til að hætta á hvað sem
var til að vinna sigurinn.
Klaufska Rússa
varð til bjargar.
Hann gaf þess vegna fyr-
irskipun um, að haldið skyldi
til Smolensk. Rétt í svip var
hamingjan honum hliðholl,
því að rússnesku herirnir,
sem höfðu verið sameinaðir
og fengið liðsauka, svo að
þar var um 130.000 manns
að ræða, stefndu nú fram
og bjuggust til átaka. En
tilgangur Rússa og tækifæri
Napóleons fóru að mestu út
um þúfur vegna lélegrar
herstjórnar Rússa. Rússar
fylktu nefnilega her sínum
í tvennu lagi og herhlutarnir
hvaða hátt Voic'e of America
útvarpsstöðin á að meta nið-
urstöður Vínarfundarins?
Mr Murrow: Við reynum
auðvitað ekki að meta þær
fyrr en einhver árangur er
sjáanlegur’. Við verðum að
bíða eftir þeim, einkum sjá
hvað gerist á þeim tveim
Genfar-ráðstefnum, sem nú
standa yfir
Mr. McCormick: Álítið
þér ekki að rétt sé að hafa
yður með í ráðum, þegar
tekin er stefna í utanríkis-
málum? Góður orðstír okk-
ar erlendis er jafnmikilvæg-
ur og grundvallarstefnan.
Mr. Murrow: Ég held við
getum sagt með sanni að góð
stefna sé góður áróður. Þeg-
ar ég sagði að ég væri ekki
með í ráðum um stefnumót-
un, átti ég við að ég er éng-
inn utanríkisráðherra. En á
hinn bóginn er ég spurður
hvað ég álíti um viðbrögðin
erlendis við ákveðnum at-
riðum í stefnu Bandaríkj-
anna.
Mr. McCormick: Fylgizt
þér með daglegum gangi af-
vopnunarráðstefnunnar og
ráðstefnunnar um bann við
kjarnorkuvopnum? Vitið
þér nákvæmlega hvað þar
er að gerast?
Mr Murrow: Vissulega,
Viðtalið var mun lengra,
en hér er aðeins unnt að
gefa fáein sýnishorn.
misstu síðan tengslin inn-
byrðis. Þá var ekki lengur
hægt að gera heildarárás á
Napóleon og ekki um ann-
að að ræða en hörfa til Smo-
lensk og búast þar um á
eystri bakka Dnjepr-fljóts.
Þann 15. ágúst var Napó-
leon kominn með her sinn
til Smolensk, og sá þá, að
Rússar gerðu sig líklega til
að hörfa rétt einu sinni.
Fyrstu áhrifin, sem þetta
hafði á hug hans, var að fá
hann til að hallast helzt að
gætilegri áætlun. Hann
kvaðst ætla að treysta tök
sín á því landi, sem hann
hafði náð á vald sitt í Rússa-
veldi — gera það að ógnandi
fleyg inn í ríki keisarans og
„sjá til hvað Alexander finn-
ist um það“. Berthier mar-
skálkur, yfirmaður herráðs-
ins, lét í Ijós vafa um, að
þetta áform mundi verða
langlíft — að hann sæi sig
um hönd. Það kom brátt á
daginn, að hann , átti koll-
gátuna.
Rússar brenna
Smolensk.
Jafnskjótt og Rússar
fengu pata af því, að Napó-
leon ætlaði að reyna að kom-
ast að baki þeim, forðuðu
þeir sér enn einu sinni og
kveiktu í borginni. Napóle-
on varð fullur af trúnaðar-
trausti, þegar hann hélt inn
í brennandi borgina, og
sagði: „Eftir mánuð verð-
um við komnir til Moskvu,
og eftir sex vikur verður
friður kominn á.“ Þarna
tóku Frakkar rússneskan
herforingja til fanga, og Na-
póleon sýndi, að hann gerði
sér ekki grein fyrir, hvaða
tilfinningar hann hafði vakið
með Rússum, því að hann
sagði, að heiður beggja hefði
fengið fullnægingu, ef þeir
legðu aðeins til orustu.
En nú var prédikað heilagt
stríð gegn Frökkum. Hvergi
var hestúr eða vagn skilinn
eftir — og varla var nokk-
urn mann að finna, sem hægt
var að neyða tii að segja til
vegar. Þeir brenndu hverja
vöruskemmu og gripahús.
og brenndu borgirnar áður
en þær voru yfirgefnar.
Góður gestur.
Frú Muriet C. Heath frá
London, er nýkomin til Rvíkur í
framhaldi af ferð um Norður-
lönd. Hefur frit Heath heim-
sótt þar félagsdeildir í kristi-
legum bindindissamtökum
kvenna.
Allt frá unglingsárum hefur
frú Heath haft mikinn áhuga
á öllum málum, sem varða sið-
ferði og þjóðfélagsleg velferð-
arstörf.
Langur starfsferill í alþjóð-
legum kristilegum bindindis-
samtökum kvenna, hefur veitt
I
Síldin -
Framh. af 1. síðu.
hækkun en samið hefur verið
um annarsstaðar. Kaupfélagið
bar á staðnum hefur samið við
verkamenn um 12 prósent
hækkun á vinnulaunum þar
sem það er eitt aðili að samn-
ingum. Hinsvegar á kaupfélag-
ið hlut í tveimur söltunarstöðv-
um og gildir samningur kaup-
félagsins við verkamenn ekki í
því tilfelli.
Verksmiðjurnar
tilbúnar.
Síldarverksmiðjurnar eru til-
henni góða þekkingu á ýmis
konar fræðslustarfsemi bind-
indishreyfinganna. Verkefni
hennar hafa verið margvísleg,
æskulýðsstarf, skyldur og rétt-
indi borgara, útgáfustarfsemi
og hvers konar bindindisstarf-
semi.
Sem aðalritari heimssamtak-
anna hefur frú Heath ferðazt
mjög mikið til þess að efla og
auka starfsemina í mörgum
löndum. Hún hefur haldið
fjölda fyrirlestra í útvarp og
sjónvarp á þingum og fundum
víða um heim.
Frú Heath og eiginmaður
hennar herra H. Cecil Heath
lögfræðingur, eru kvekarar. —
Herra Heath á sæti í mörgum
mikilvægum nefndum, sem
fást við vandamál siðferðis og
þjóðarhags og tekið virkan
þátt í löggjöf um áfengismál.
Frú Heath mun halda fyrir-
lestur í húsi KFUM, Amt-
mannsstíg 2B í kvöld kl. 8.30
e. h.
búnar að taka á móti síld þegar
búið er að semja. Hér er hægt
að taka móti 70 þúsund málum
í þrær. Söltunarstöðvarnar eru
líka tilbúnar að taka á móti
síld um leið og samið verður.
íþróttir -
Framh. af 2. •iiðu.
Tugþraut.
Kutienko, Sovét 8.12V
Kuznjetsov, Sovét *) 7.672
Djatjko, Sovét 6.691
*) Árangur Kuznjesovs í
tugþraut nær einungis til níu
greina. Hann slasaðist á hendi
og vildi ekki kasta spjóti.
, Árangur Kuzenzovs í tug-
þraut er ekki sambærilegur við
afrek annnarra, þar eð hann
varð, vegna meiðsla, að sleppa
einni grein, sjótkastinu, en þar
er hann mjög sterkur.
Eins og frem kemur í þess-
ari skrá, eru það Suður-Evrópu-
búar, sem hafa yfirhöndina í
spretthlaupunum, A.-Evrópu-
menn hafa unnið flest beztu
afrekin í millivegalengda-
hlaupunum, en Rússar eru
beztir ( langhlaupunum —
þeir eru einnig sterkastir í báð-
um grindahlaupunum og hindr-
unarhlaupi.
f stökkum eru Rússar einnig
sterkastir, en í köstunum ber
mest á hinum „gömlu“ stjörn-
um frá fyrra ári, Rowe, Piat-
kowski og Lievore.
Um síðustu helgi biðu 11
manns bana í umferðarslys-
um í Svíþjóð.