Vísir - 23.06.1961, Qupperneq 16
VISIR
Föstudagur 23. júní 1961
Hehndallarferi
um helgina.
Fyrsta ferð Heimdallar,
FUS, á þessu sumri verður nú
um helgina. Ferðinni er heitið
í Raufarhólshelli og verður lagt
af stað frá Valhöll við Suður-
götu kl. 2 á laugardag.
Fyrst verður ekið að Gull-
fossi og Géysi og þaðan að
Laugarvatni, þar sem gist verð-
ur í tjöldum.
Eftir hádegi á sunnudag
verður ekið að Raufarhólshelli
og hann skoðaður. Þátttakend-
ur þurfa að hafa með sér nesti
og tjöld, ef þeir geta, en heitt
kaffi verður framreitt á tjald-
stað. Ferðin kostar 200 kr. All-
ar nánari upplýsingar um ferð-
ina verða veittar í skrifstofu
Heimdallar, Valhöll (sími
17102). Þátttakendur eru beðn-
ir að skrá sig sem fyrst.
Óloft í Frisco
Hitabylgja hefir gengið yfir
San Francisco og var hún heit-
asta borg Bandaríhíjanna í lok
sl. viku.
Komst hitinn þá upp í rúm-
lega 38 stig á Celcius, og olli
það miklum erfiðleikum í
'borginni. Um 40 manns vorú
fluttir í sjúkrahús, af því að
þeir höfðu örmagnazt af hitan-
um, en um dauðsföll var ekki
að ræða.
Vinna hófst í Hafnarfirði
í morgun.
Benzín fæst þar þó ekki.
Vinna hófst aftur í Hafn-
arfirSi eftir að verka-
mannafélagið Hlíf í Hafnar-
firði hafði samþykkt svo til
einróma samninga þá sem
meirihluti stjórnarinnar
hafði gert við atvinnurek-
endur.
Eftir hið langa verkfall
tekur það nokkurn tíma að
atvinnulífið komist í jafn-
vægi. Utgerð báta hefur til
dæmis stöðvast og er það
fyrst í dag að dragnótabát-
ar og humarbátar komast
á sjó.
Afla af þeím er ekki að
vænta fyrr en á morgun. Vinna
er því ekki almennt hafin í
fiskiðjuverunum. Aðeins einn
togari lá þar í höfn. Er það
Surprise og hófst Iosun á fiski
úr honum í morgun. Togar-
ar bæjarútgerðarinnar eru á
veiðum og eru ekki væntanlegir
á næstunni.
Benzínskortur er enn í Hafn-
arfirði. Fá Hafnafirðingar
benzín frá Reykjavík og verða
vandkvæði á útvegun benzíns
þar til samið verður við Dags-
brún. Reykvíkingum þýðir því
ekki að leita til Hafnarfjarðar
til að fá benzín. Hafnfirðingar
búa enn við kartöfluskort eins
og Reykvíkingar, að öðru leyti
er atvinnulíf þar að færast í
eðlilegt horf.
Samkomulag Hlífar við at-
vinnurekendur var samþykkt
með 158 atkvæðum gegn 5 og
var almennur fögnuður á fund-
inum yfir samningum sem
liækka kaup verkamanna um
11 prósent og orlof verði 6 pró-
sent af launum. í hinni 11 pró-
sent kauphækkun er gert ráð
fyrir að greitt verði 1 prósent
af launum í sjúkrasjóð.
Krakkar kveikja
í verðmætum.
Litlu munaði í gærkveldi að
stórtjón hlytizt af er eldur
kviknaði í bragga þar sem neta-
verkstæði er til húsa og mikil
verðmæti geymd.
Voru það krakkar sem hlut
áttu að ikveikju í bragganum
sem er í Knoxbúðum. Höfðu
þau brotið gat á vegg og síðan
troðið inn um það fatadruslum
og alls konar drasli og kveikt í.
Eldurinn komst í lítið afþiljað
herbergi sem var þar inn af
og brann það talsvert, en
slökkviliðið kom nógu fljótt á
vettvang til að koma í veg fyr-
ir að eldurinn kæmist inn í
sjálft verkstæðið. Þar voru
verðmæti geymd, sem voru
mjög eldfim og skiptu tugþús-
undum króna.
Þessi kvaðning slökkviliðsins
var rétt fyrir klukkan 8 í gær-
kveldi, en slökkvistarfið gekk
vel og tjón varð, sem betur fór,
lítið.
Meðan stóð á Hlífarfundinum í gær, stóð þessi bill —
R-10313 — allan tímann fyrir dyrum úti. Var hann hin bezta
sönnun þess, að kommúnistar töldu sér pólitíska nauðsyn
á að halda verkfallinu áfram, því að ökumaðurinn er fram-
kvæmdastjóri kommúnistaflokksins, og flýtti sér á brott til
að segja sorgartíðindin, þegar fundinum var lokið.
Æra kommúmstans tald-
ist sáralítiii skudduú.
únistafomstuna.
Ölgerðin Egill Skallagríms-
son mun í dag kæra nokkra
verkfallsmenn m. a. Guðmund
J. Guðmundsson og Eðvarð Sig-
urðsson fyrir að hafa með of-
beldi hindrað löglega starfsemi
fyrirtækisins.
Á þriðjudagskvöld kom til
nokkurra átaka er verkfalls-
menn hindruðu með valdi af-
greiðslu á öli til kaupmanns,
sem hafði komið að sækja það
sjálfur. Síðan ha(a verkfalls-
verðir staðið vörð og hindrað
afgreiðslur, sem óskað hefur
verið eftir.
Málflutningsmaður Ölgerð-
arinnar verður Hilmar Garðars
héraðsdómslögmaður.
Þjóðviljinn gerir mikið veður
út af því í morgun, að Her-
stcinn Pálsson ritstjóri hafi ver
ið dæmdur fyrir ummæli, sem
birtust hér í blaðinu á sl. ári
um einn starfsmann Þjóðvilj-
ans.
Þegar kommúnistar og aðrir
andstæðingar vestrænnar sam-
vinnu efndu til fundar að Þing-
völlum á sl. hausti, kom í ljós
einn morguninn,. að á annan
vegg Almannagjár hafði verið
málað „Ami, go home“, sem er
eitt helzta slagorð kommúnista
víða um heim.
Var talið sennilegt, að Guð-
geir Magnússon, auglýsinga-
stjóri Þjóðviljans, hefði gert
þetta, en hann stefndi ritstjófa
Vísis fyrir að nefna hann í þessu
sambandi. Telur Þjóðviljinn í
morgun, að kommúnistinn hafi
unnið mikinn sigur, þar sem
ummælin um hann voru,dæmd
dauð og ómerk — þar sem
verknaðurinn sánnaðist ekki —
en Hersteinn hlaut smávægi-
lega sekt og Guðgeir dálitlar
miskabætur.
Heldur minna verður þó úr
sigrinum, þegar litið er á dóm-
kröfur þær, sem kommúnistinn
gerði:
1) Hann krafðist þyngstu refs
• ingar, sem lög leyfa. Dóm-
urinn: Sekt, sem nemur
800 kr., og þekkist vart
minni sekt i slíkum málum.
2) Hann krafðist 15.00 —
fimmtán þúsunda — króna
í miskabætur fyrir meidd-
an heiður!
Dómurinn: Æran taldist
sködduð svo að nam 2000
krónum aðeins.
3) Hann krafðist íjárhæðar til
að standast kostnað af að
birta dóminn!
Dómurinn: Talið nægilegt,
að hann fái rúm, er kostar
kr. 300.00.
Má af þessu sjá, að dómarinn
hefur ekki litið kvörtun komm-
únistans alltof alvarlegum aug-
um eða talið höggvið mjög
nærri heiðri hans.
Ný fram-
haldssaga.
í gær hófst í blaðinu ný
framhaldssaga eftir ensku skáld
konuna Denise Egerton. Sagan
heitir „Grunaður um glæp“ og
fjallar, eins og góðri framhalds-
sögu sæmir, um ástir og af-
brot. Hún er full spennandi og
óvæntra augnablika og allir
þeir, sem lesið hafa söguna, eru
sammála um, að atburðarásin
sé óvenju hröð og lifandi.
Ráðleggjum við sem flestum
að fylgjast með frá byrjun.
Veðurhorfur:
Breytileg átt,
súld, léttskýj-
að síðar.
////'/</
'' íáí *' ‘