Vísir - 23.02.1962, Blaðsíða 3
Föstudagur 23. febrúar 1962
V í S I R
Um síðustu helgi heim-
-•sóttu Vélskólann alþingis-
menn, fiskþingsmenn, borg-
arstjórinn í Reykjavík og
róðuneytisstjórinn í mennta-
málaráðuneytinu (Birgir
Thorlacius).
Fyrst var farið með gest-
ina um öll salarkynni og
þeim sýndar allar verklegu
deildir skólans, og voru
hafðar 7 vélar í gangi sam-
tímis á meðan.
Ljósmyndari Vísis, I. M.,
skauzt þar inn á meðan ver-
ið var að sýna gestunum
skólann og tók þessar mynd-
ir. Á stœrstu myndinni er
hópurinn staddur í aðal-
vélasalnum, þar eru diesel-
vélar og stendur skólastjór-
Þingmenn í VélsEkólanum
inn, Gunnar Bjarnason, uppi
á svölunum að ávarpa gest-
ina. (Litill salur er til hliðar,
sem á að hýsa gufuvélar, og
í öðrum á að geyma frysti-
vélar, þegar skólinn eignast
þœr). Þá var farið í efna-
rannsóknastofuna, þar sem
nemendur voru að mæla eig-
inleika smurningsolíu og
einnig að meta gæði ketil-
vatns, sem þýðingarmikið er,
að ekki valdi tæringu á katl-
inum. Skólinn á ketil, sem
útgerðarfélagið Alliance gaf.
Síðan var skoðaður raf-
magnssalurinn, þar sem nem-
endur voru að verki, m. a. við
ljóstækniverkfæri. Loks var
setzt að kaffidrykkju, þar
sem skólastjóri ávarpaði enn
gesti, en Geir Hallgrímsson
borgarstjóri þakkaði fyrir
þeirra hönd.
Stærsta myndin sýnir, eins
og áður segir, gestina í aðal-
vélasalnum. Á myndinni þar
sem fjórir eru saman, teljast
frá vinstri: Helgi Pálsson út-
gerðarmaður frá Akureyri,
(forseti Fiskiþings, sem
staðið hefir yfir undanfarið),
Geir Hallgrímsson borgar-
stjóri, Gunnar Bjarnason
skólastjóri Vélskólans og
Egill Hjörvar formaður Vél-
stjórafélags íslands. Þá
kemur mynd með vélarhjóli
fremst, og þar ræðast við
Hcrmann Vilhjálmsson
fiskiþingsfulltrúi frá Seyðis-
firði og Skúli Guðmundsson
aíþingismaður (úr Norður-
landskjördæmi vestra).