Vísir - 23.02.1962, Blaðsíða 7

Vísir - 23.02.1962, Blaðsíða 7
Föstudagur 23. febrúar 1962. V í S I R 7 ÚTILEGU eftir Matthías Jochu'msson leikstjóri: Baldvin Halídórsson Leikendur: skólapiitar Menntaskólans í Reykjavík Það er rétt og skylt, að skóla- piltar Menntaskólans í Reykja- vík minnist þess með einhverj- um hætti, að einn úr þeirra hópi fyrir 100 árum setti saman á miðju námsári rammíslenzkt leikrit, Útilegumennina, sem seinna hlaut nafnið Skugga- Sveinn og varð eiginlega þjóðar- leikrit íslendinga. Nú hafa menntaskólanemar í fyrsta sinn í sögunni ráðizt í að flytja þetta leikrit (í fyrstu gerð) á sérstakri hátíðarsýn- látlausra og listilegra tjalda. Út af fyrir sig standa ýmsir leikenda við höggi hvað leiklist snertir. En leikstjórinn hefur ekki valið hvern einstakan eft- ir listrænni getu. Frammistaðan er að því leyti misjöfn, sumra harla lítilf jörleg, einstaka hreint frábær. En þrátt fyrir hina mis- jöfnu getu leikenda er slíkur heildarsvipur á sýningunni, svo unaðslegt andrúmsloft, heið- rík/ja og leikgleði, að seint mun þeim úr minni líða, er fá að sjá ingu (utan Herranætur) í hinu glæsilega samkomuhúsi Há- skólans. Ólík eru skilyrðin til leiksýninga hér nú en var, er Útilegumennirnir voru fyrst sýndir. En leikstjórinn, Bald- vin Halldórsson, hefur valið þann kost, að gera sýninguna eins einfalda í öllum skilningi. Og svo hafa allir aðilar komizt frá þessu, að lengi verður í minnum haft. Ekki er notast við þau gömlu leiktjöld Sigurð- ar málara ,sem enn eru til, þótt ýmsir vonuðust til þess. Aftur hefur Magnús málari Pálsson sagt nemanda úr 3. bekk, Magn- úsi Þór Jónssyni, fyrir um gerð leikinn. Eins og Skugga-Sveinn ber ægishjálm yfir aðrar per- sónur leikritsins, gnæfir leikur Böðvars Guðmundssnar hátt yfir annarra á sviðinu. Hann hefur bæði þann persónuleika, algera innlífun í hlutverkið og makalausa raddbeitingu, að flestum þykir sem nú sjái þeir og heyri Skugga-Svein í fyrsta sinn, og svona eigi hann að vera. Afbragðs vel lék og Helgi Har- aldsson Grasa-Guddu. Áf öðr- um leikendum eru sérstaklega minnisstæðir Kristján Ragnars- son (Haraldur) og Njáll Sig- urðsson (Ásta). Gerfið var af- bragð og leikurinn einkennilega Skugga-Sveinn (Böðvar Guðmundsson) töfrandi barnaskapur. Annars er skemmst af að segja, að allir eiga eitthvert hrós skilið. Þetta er fágæt sýning. Gunnar Bergmann. cotsman mílna landhe 12 Edinborgarblaðið The Scots- man, sem löngum var mótsnúið fslendingum í baráttu þeirra fyrir 12 mílna landhelgi hefur nú nýlega snúið algerlega við blaðinu og birti það fyrir nokkr um dögum forustugrein þar sem fjallað var um fiskveiði- landhelgi Færeyja og Skot- lands, en bæði þessi atriði liafa verið nokkuð á döfinni að undanförnu. Aberdeen missir beztu miðin. Scotsman fer nú mjög væg- um orðum um þá tilkynningu dönsku stjórnarinnar, að hún ætli að lýsa yfir 12 mílna land- helgi við Færeyjar, en fram að þessu hefur gilt samningur um að brezkir togarar megi veiða upp að 6 mílna mörkunum á vissum svæðum. Scotsman segir, að togaraútgerðin í Aber- deen missi að vísu algerlega ein beztu fiskimið sín fyrir þessar aðgerðir, en það þýði ekki að fást um það, eins og bezt sjáist á því, hvernig ís- lendingar og Norðmenn hafa fengið framgengt kröfum sínum um 12 mílna landhelgi. Komið að Skotum. En út frá þessu fer Scotsman að ræða landhelgi Skotlands. Segir blaðið að Bretar hafi haldið mjög fast við þriggja mílna landhelgi aðallega í þeirri von, að þá væru minni líkur til að aðrar þjóðir tækju upp á því að lýsa yfir stærri landhelgi. Með þessu segir Scotsman, að Bretar hafi ætlað að verja hagsmuni tog- araútgerðar sinnar. En nú er svo komið að 12 milna landhelgi er komin víðast hvar, þar sem brezkir togarar sækja á mið og því er grund- Fyrir nokkr- um d ö g u m gerði ég nýja kvenþulinn, Hjördísi Sæv- ar, að umtals- efni. Samjj. hefur Hannes á horninu nú gert og farið um hana heldur hörðum orðum, segir m. a., að hún hafi karlmannsrödd. Ég held nú, að fáir þulir hafi lík- að strax í upphafi, þótt seinna hafi þeir verið taldir prýðisgóð- ir, þá er þeir höfðu öðlast þjálf- un og æfingu. En smekkur manna er misjafn, og finnist Hannesi vanta skræka rödd í útvarpið, held ég hann ætti að hjálpa því við að svipast um eftir geldingi fyrir kvenþul. Fréttaaukínn í gærkvöldi var tvöfaldur, eins og sjússarnir eru vinsælastir hér á landi. Mennta- málaráðherra sagði frá íslenzku listsýningunni í Kaupmanna- höfn, en þar hafa myndlistar- menn orðið landi sínu til mikils sóma. Þar næst heyrðum við glefsur úr Útilegumönnunum, sem Menntaskólapiltar færa nú upp í svipuðum stíl og gert var á fyrstu sýningu leiksins. Rætt yar við höfuðpersónurnar, leik- stjórann og leitað álits eins á- horfanda, Þorsteins Ö. Stephen- sen. iVar leikurinn miklu lofi ausinn, svo miklu, að þeir, sem séð hafa sýninguna í Þjóðleik- húsinu, dauðsjá eftir að hafa keypt sig inn á þá Hollívúddút- gáfu. Upphófst svo nýr þáttur í út- varpinu, „Um tölvísi“, en þar mun Björn Bijarnason, mennta- skólakennari flytja nokkur er- indi um stærðfræði fyrir al- menning. Þetta fyrsta erindi tókst mjög mjög vel, enda lagði Björn sig allan fram við að gera þetta að skýru og skiljan- legu rabbi, sem allir geta haft gagn og gaman af. Skátar fengu hálftíma til um- ráða í tilefni af afmæli Baden- völlur fallinn undan þessari stefnu. Æskir Scotsman þess að fiskveiðilandhelgi 1 Skotlands verði stækkuð, enda sé þriggja IPowells. Flutt voru nokkur á- mílna reglan nú með öllu úrelt. | vörp, litið inn á skátafund, FEugher Tyrklands afstýrir byltingu Tilkynnt var í Ankara, höf- urðborg Tyrklands, snemma í morgun, að upprpisnartilraun sem gerð var í gær, hafi verið bæld niður — forsprakkarnir handteknir eða fluttir til starfa á nýjum vettvangi, og nú allt með kyrrum kjörum í borginni, en viðurkcnnt, að hugir manna væru mjög í uppnámi eftir at- burðina í gær. Ávarp Inonu stöðvað. Vitað var um mikinn ágrein- ing milli liðsforingja nokkurra í landhernum og liðsforingja- efna annarsvegar og flughers- ins hinsvegar. Ekki kom til vopnaðra átaka, en þegar um 8000 liðsforingjaefni gengu þögulir í fylkingum um borg- ina greip flugherinn til varúð- Framh á ols 10 hlustað á stríðsóp og svo auð- vitað hlustað á skátastúlkur syngja og leika á gítar. Frædd- umst við nokkuð um tilgang skátastarfsins og mikilvægi þess fyrir æskuna, og líka var okkur sagt, að það væri voða- Jjótt að hanga aftan í bílum. Það var gaman að hlusta á Sinfóníuhljómsveitina flytja al- íslenzka efnisskrá, en fyrri hluta tórileikanna í Háskólahús- inu var útvarpað. Beztu verk- in fannst mér vera Hátíðamars eftir Pál ísólfsson og ballett- svítan ,,Dimmalimm“ eftir Skúla Halldórsson. í síðara erindi sínu um nám- ur íslendinga sagði Ólafur Þor- valdsson, þingvörður nákvæm- lega frá móvirinslu. Fróðleik mátti þarna finna, en heldur þótti mér þetta óskemmtilegt útvarpsefni. Þórir S. Gröndal. Hlýindi um land allt HLYINDI eru nú um land allt og víðast um 7 stig klukk- an 8 í morgun. Hér í Reykjavík var enn ein hvassviðrisnóttin og var veður- hæð um 7 vindstig og var svo enn 1 morgun. Var hér sama veðurhæð og á Stórhöfða í Vest- mannaeyjum. Geta má þess, að austur á Kirkjubæjarklaustri var logn í morgun, rigning ag skyggni aðeins um 200 metrar. Mestur hiti á landinu í morg- un var 10 stig í Fagradal í Vopnafirði. Spáð er áframhald- andi hlýindum og hvassviðri svo sem vænta mátti. 1200 sinnum yfir skautið Flugvélar SAS hafa á fimm árunr flogið 1200 sinnum yfir norðurheimskautið. Fimm ár eru á morgun (laugardag) frá því SAS hóf farþegaflugferðirnar yfir norð- urskaut og verður þess minnzt með hátíðahöldum í Kaup- mannahöfn, Tokyo og Anchora- ge í Alaska. Á þessum tíma hafa flugvélarnar flutt 35.000 farþega og 2 milljónir kg. af vörum og öðrum flutningi. Flugtíminn hefur styzt úr 52 í 16 klst. frá því þær hófust fyrir fimm árum. — (N.T.B,).

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.