Vísir - 23.02.1962, Blaðsíða 6

Vísir - 23.02.1962, Blaðsíða 6
6 V t S I B Fös^Jdgur 23. febrúar 1962 Fréttaþættir úr Húnaþingi ,/ Annálsbrot ársins 1361 Veturinn frá ársbyrjun til sumarmála var mjög hag- stæður fyrir landbúnaðinn. Veðráttan var mild og jörð snjólaus að kalla. Sauðfé var létt á fóðrum og hross gengu sjálfala. Fjórir bátar voru gerðir út á Skagaströnd á heimamið. Gæftir voru stopular og afli tregur. Vegna hagstæðrar tíðar var unnið að byggingum nokk uð allan veturinn, og því næg atvinna í öllu héraðinu. Vorið frá sumarkomu að sumarsólstöðum var fremur svalt. Sauðgróður kom snemma, en spretta var hæg, svo sláttur byrjaði almennt með seinna móti, eða ekki fyrr en ellefu vikur af sumri. Seint í maímánuði gerði mikið snjóhret er náði um allt héraðið, en ekki olli það neinu verulegu tjóni. Voru skepnu- höld ágæt. Á hvítasunnudag, 21. maí, áttu tveir stórbændur í Húna- þingi merkisafmæli, var ann- ar sjötugur en hinn áttræður. Sá eldri, Jón Benediktsson bóndi á Húnsstöðum, hefur alla tíð verið í röð fremstu bænda í héraðinu. Var hann um skeið framar flestum bændum héraðsins um tún- rækt. Hinn bóndinn, Jóhannes Er lendsson, Stórugiljá, hefur búið þar ásamt bróður sínum Sigurði, oddvita, 1 meira en hálfa öld. Hafa þeir rekið þar stórbú af mikilli atorku og rausn. Fyrir meira en þrjátíu árum reistu þeir bræður á bæ sínum annað stærsta ibúðar- hús í sveitum héraðsins. Er húsið steypt í hólf og gólf, lýst og hitað með rafmagni frá einkavatnsaflsstöð, er byggð var um sama leyti og húsið. Sumarið var hagstætt og spretta til fyrri sláttar í góðu meðallagi. Hey nýttust vel. Síðari hluti sumarsins var þurr og svalur, svo há spratt lélega, var því heyfengur í heild með minna móti víðast hvar. Þrir stórir bátar, 60—75 tonna, voru gerðir út frá Skagaströnd á síldveiðar. Ekki gekk síld að neinu ráði í Húnaflóa. Til Skagastrandar (Höfðakaupstaðar) komu að- eins tuttugu þúsund mál. Það an reru nokkrir smábátar til þorskveiða á heimamið. Afli var frekar rír. Byggingaframkvæmdir voru nokkrar í Höfðakaup- stað. Var þar m. a. byggð neðri hæð á stóru félagsheim- ili. Á Blönduósi voru nökkur íbúðarhús í smíðum. En mesta byggingarframkvæmd- in þar var nýtt félagsheimili, sem er það stærsta er risið hefur af grunni úti á landi, eins og komist er að orði. Var húsið fokhelt í septemberlok og byrjað á innréttingu þess snemma vetrar. Uppskera garðávaxta var ágæt í héraðinu. Haustslátrun sauðfjár hófst á Blönduósi 11. sept. og stóð til 21. -október. Slátrað var þar um 40 þúsund fjár eða um fjórum þúsundum fleira en haustið 1960. Ekki táknar þó þetta að færra hafi verið s'ett á vetur en þá. Heldur munu bændur hafa fjölgað til muna fé sínu. Frálags- þungi dilka var allmiklu lak- ari en undanfarin ár. Mun það orsakast af ofsettu beiti- landi á afréttinum. Auk sauð- fénaðarins gengur þar mikill f jöldi hrossa. 1 Höfðakaupstað var einnig slátrað fleiru sauðfé en und- anfarin haust. Á Blönduósi voru felld að velli um tólf hundruð hross — með folöld- um. Má af því nokkuð marka hrossafjöldann í héraðinu. 1 sumar og haust. var mikið unnið að jarðvinnslu, svo sem verið hefur mörg undanfarin ár. Að þurrkun lands unnu tvær vélgröfur, og f jórar jarð ýtur unnu við landbrot og ný- rækt. Tíðarfar var ágætt í haust — milt veður og áfellalaust. Hélst sú veðrátta fram yfir miðjan nóvember. Var því hægt að stunda næstum hvers konar útistörf fram á vetur. Afli báta í Höfðakaupstað á haustvertíð var mjög góð- ur. Tvö útgerðarfélög eru í kauptúninu. Eiga þau samtals fjóra báta 60—75 tonna og aðra fjóra 8—10 lesta. Auk þess eiga einstakir menn nokkrar ,,trillur“. Frystihús eru tvö. Má telja þetta mikil atvinnutæki í kauptúni er tel- ur 600 íbúa. Auk þess stunda íbúarnir mikið landbúnað — eiga t.d. um þrjú þúsund af sauðfé — fullorðnu. Unnið var allmikið svo sem venja er að samgöngumálum í héraðinu. 1 haust var lokið við að byggja nokkra nýja vegakafla, að lengd samtals h. u. b. 9 km. Byggðar voru og tvær litlar brýr. Kvennaskólinn á Blönduósi var settur í byrjun október. Er hann sem fyrr fullskipað- ur. Dvelja þar fjörutíu náms- meyjar. í Austur-Húnavatnssýslu hefur í mörg ár verið starf- andi skógræktarfélag. Nokk- uð hefur því áunnizt með smá skógarreiti. Hefur fjárskort- ur einkum staðið því fyrir þrifum, en einnig lítill áhugi héraðsbúa almennt Nú er á- hugi fyrir því góða málefni að glæðast nokkuð, og líf að færast í félagssamtökin. Snemma í vetur áskotnað- ist skógræktarfélaginu jörð, er því var gefið til skógrækt- ar eingöngu. Þau hjónin Helga Jónsdóttir og Stein- grímur Davíðsson gáfu félag- inu jörðina Gunnfríðarstaðir. Er gjöfin til minningar um foreldra Helgu: Önnu Einars- dóttur og Jón Hróbjartsson, en þau bjuggu lengi á Gunn- fríðarstöðum. Land jarðarinnar er um 200 hektarar og allvel fallið til skógræktar að dómi sér- fróðra manna. Skógræktarfélagið hófst þegar handa, og girti snemma í vetur ca. 23 ha með öflugri girðingu. Ætlar félagið sér að planta þar næsta vor 20—30 þús. trjáplöntum. Formaður félagsins er Gísli Pálsson bóndi, Hofi, Vatnsdal. Eins og fyrr getur var tíð- arfar ágætt fram ,á vetur. Síðast í nóvember spilltist það. Setti niður allmikinn snjó. Af þeim sökum voru samgöngur erfiðar um tíma. En er leið undir áramót var snjór að mestu horfinn af láglendi, og hefur síðan verið snjólétt og samgöngur greið- ar. Bændur og búalið kvöddu árið 1961 með þakklæti í huga fyrir ríkulega uppskeru, og horfðu vonglaðir fram á leið. 1 kauptúnunum — Skaga- strönd og Blönduósi — kvöddu börnin gamla árið með álfabrennum, en full- orðna fólkið með dunandi dansi og eftir stundarhlé er klukkumar höfðu hringt inn nýja árið, var það hyllt á sama hátt lengi nætur. S.D. Söluaukning Volvo vestan hafs, Söluaukning Volvobifreiða er komin á það stig að hún er þriðja mest selda innflutta bifreiðin á bandarískum markaði, samkvæmt síðustu opinberu skýrslum um skrán ingu bifreiða. Þessar tölur gilda um septembermánuð, en í þeim mánuði seldi Volvo rúml. 1500 bifreiðir. Þetta er annar mánuður- inn í röð þar sem Volvo hef- ur verið nr. þrjú í sölu, en þama er um 50 innfluttar tegundir að ræða. 1 septem- ber 1960 seldi Volvo í Banda- ríkjunum 1375 bifreiðir, og í ágúst 1960 og ’61 var salan rúmlega 1320. Jafnframt því að vera þriðja bifreiðin í sölu á banda rískum markaði, var hún önn ur í jafn fjarlægum fylkjum og Arkansas, Oregon og Ko- lorado. • Frá rannsóknarleiðangrin- um á Tristan da Cunha hafa borizt fréttir um, að stórgripir, sem þar voru skildir eftir er fólltið var flutt burt, þrífist þar hið bezta. Hraunrennsli er enn á eynni. Það er flokkur frá Kgi. brezka landfræðifélag- inu sem er á eynni. • Af hjónaefnum, sem gefin voru saman á Bretlandi 19G0, voru 14.000 innan við tvítugt. Flest- ar brezkar stúlkur giftast á aldrinum 21 árs og karlmenn 22ja ára. BBNGO BINGÖ MANUDAGINN 26. FEBRÚAR KL. 21. Vinningar tvær flugferðir til útlanda, dregnar út fyrir Glaumbæ og eftir hlé. aukavinninga. Húsgögn, rafmagnsáhöld og fjöldi VERIÐ VELKOMIN. STJÓRNIN. Skóúisa’an Útsölunni líkur á morgun laugardag kl. 1. Notið þetta síðasta tækifæri til að gera góð kaup á skófatnaði. SLóbÉð Beykfavikur Laugavegi 2P

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.