Vísir - 23.02.1962, Qupperneq 5
I
Föstudagur 23. febrúar 1962,
Vf SIB
Lánin notuð til nauðsyn-
legra framkvæmda
Gunnar Thoroddsen
málaráðherra svaraði
fyrirspurnum Eysteins
sonar í sameinuðu Alþingi um
ráðstöfun tveggja bandarískra
lána.
Vörukaupalánin: Fyrsti liður
þessarar fyrirspurnar var um
það hve mikið vörukaupalán P1
480 voru tekin í Bandaríkjunum
árið 1961.
Svar;
Árið 1961 var gerður samn-
ingur milli ríkisstjórna íslands
og Bandaríkjanna um kaup á
bandarískum umframhirgðum
af landbúnaðarvörum fyrir
1840 þús. dollara.
Önnur spurning var: Hve mik-
il slík lán hafa nú verið tekin
samtals og hve mikið á hverju
ári. Svar,- Heildarupphæðir
þeirra vörukaupasamninga sem
gerðir hafa verið árlega árið
1957 og síðan eru sem hér grein-
ir. Árið 1957: 2 millj. 785 þús.
fjár-1 dollarar. Árið 1958: 3 millj.
gær log 60 þús. dollarar. Árið 1959:
Jóns- 2 millj. 575 þús. dollarar. Árið
1960: 1 millj. 925 þús. dollarar
og árið 1961: 1 millj. 840 þús.
dollarar. ■ Samtals á þessum
fimm árum 12 milj. 185 þús.
dollarar.
Þriðja spurningin: Hve mik-
ið af því fé kemur til útlána
innanlands?
Svar: Innkomið fé til ráð-
stöfunar til’ útlána innanlands
var 8. þ. m. alls 213 millj, sem
sundurliðast milli samninga
eftir árum þannig: Af samn-
ingi ársins 1958: 361 millj. Af
samningi ársins 1959: 55.9
millj. kr. Af samningi ársins
1960: 48.5 millj. kr. Af samn-
ingi ársins 1961: 37.9 millj.
samtals 213 millj.
Til viðbótar þessu er áætlað,
að enn komi (.amkvæmt samn-
ingnum frá 1960 um 1 millj.
króna, og samkvæmt samnjngn-
Guðm. Guðjónsson í Arósa-
óperunni í kvöld
I kvöld verður ópera Verdi's,
La Traviata, frumsýnd í Árós-
um með Guðmund Guðjónsson
söngvara í einu aðalhlutverk-
inu.
Guðmundur fer þarna með
hlutverk Alfredos, og má telja
þetta mikla viðurkenningu, sem
Guðmundur hefir hlotið með
því að vera valinn í jafn stórt
og vandamikið hlutverk.
Guðmundur stundaði söng-
nám hér heima hjá ítalska
söngkennaranum Vincenzo Ma-
ria Demetz og kom hér oftlega
fram síðustu árin, bæði sem
einsöngvari með kferum og
einnig í óperum Þjóðleikhúss-
ins. Var greinilegt, að þar var
góður og vaxandi söngvari á
ferð.
Sl. haust bauðst Guðmundi
þýzkur styrkur til söngnáms
og fór hann þá til Kölnar. Þar
hafði hann ekki lengi verið
þegar hann var beðinn um að
taka að sér hlutverk Alfredo
í La Traviata, sem átti að flytja
í Árósum seinni hluta þessa
mánaðar.
Óperan hefir undanfarið
verið æfð í Kaupmannahöfn og
Guðmundur verið þar við æf-
ingar.
Þessum efnilega og geðþekka
söngvara fylgja góðar óskir
allra íslendinga þegar hann
kemur nú fram í fyrsta sinn
í veigamiklu óperuhlutverki á
erlendri grund. '
Víða vegaskemmdir
í rigningunum undanfarna
daga urðu víða vegaskemmdir,
en þó hvergi stórvægilegar. —
Hefur verið unnið að viðgerð á
þeim, nú síðast í dag á Krýsu-
víkurveginum, og má segja, að
þeir séu að komast í samt horf
aftur.
Þessar vegaskemmdir orsak-
ast af því að vatnið nær ekki að
renna niður heldur myndar rás-
ir og flæðir upp á vegi og ríf-
ur í þá skörð og skvompur. Sem
betur fer hafa þessar skemmdir
hvergi verið verulegar, en
hins vegar allvíða.
Með hlákunni hefur færð yf-
irleitt batnað um land allt, og
hér á Suðurlandi má segja, að
allar venjulegar leiðir séu fær-
ar. Góð færð er allt austur í
Mýrdal, en Mýrdalssandur er
þungfær og hefur verið það
undanfarnar vikur.
Sums staðar er kvartað und-
an hálku á vegum, ekki sízt á
Snæfellsnesi, þar sem svell-
bunkar eru á vegunum og
mynda hliðarhalla. Er nú unn-
ið að lagfæringu á þessu.
Á norðurleiðinni hefur bæði
Vatnskarð og Langidalur verið
rutt og í gær gekk bílunum
sæmilega norður í Skagafjörð.
Enn er mikill snjór í Öxnadaln-
um og á Öxnadalsheiðinni en
unnið er að því að ryðja leið-
ina yfir hana.
um frá 1961 um 14 millj. kr.
Verður þá heildarfjárhæð, sem
kemúr til útlána innanlands,
væntanlega um 228 millj.
— Fjórða spurning var:
Hve mikið hefir nú verið
samþykkt að lána innanlands
af þessu fé og í hvaða fram-
kv.? Svar: Samþykktar lánveit-
ingar nema alls 174 millj., sem
sundurliðast milli frani-
kvæmda sem hér segir: Til
virkjunar Efra Sogs: 80.7 millj.
kr. Til rafmagnsveitna ríkisins
vegna Keflavíkurlínunnar: 15
millj. kr. Til verkstæða í einká-
eign: 1.3 millj. kr. Til hita-
veitu Reykjavíkur: 25 millj. kr.
Til Keflavíkurvegar 10 millj.
Til hafnarmála: 15 millj. Til
Rafmagnsveitu Reykjavíkur
vegna varastöðva við Elliðaár:
5.5 millj. Til iðnlánasjóðs: 21.5
millj. AIls 174 millj
Fimmta spurning: Hvað er
áætlað að við þessi vörukaupa-
lán bætist á árinu 1962?.
Gert er ráð fyrir að á þessu
ári verði gerður nýr vörukaupa-
samningur að upphæð um 1
millj 740 þús. dollarar, og að
75% af innkomnum greiðslum
samkvæmt honum á árunum
1962 og 1963, það er um 56
millj. kr., komi til lánveitinga
hér á landi.
Ein hæsta fisksala
ytra9 sem um getur
Nokkrir togarar hafa selt eig-
in afla og annan fisk í Þýzka-
landi undanfarna daga.
Meðal þeirra var b.v. Freyr,
sem fékk eina mestu fjárhæð,
sem um getur, fyrir fiskfarm
sinn, en þar var mestmegnis um
síld að ræða. Freyr seldi í Brem-
erhaven 319 lestir af síld fyr-
ir 194,822 mörk, en að auki var
hann með 9,9 lestir af öðrum
fiski, og seldist það magn fyrir
15,898 mörk. Alls fékk Freyr
því 210,720 mörk fyrir farm
sinn, en það jafngildir kr.
2,275,776 samkvæmt núverandi
gengi.
Þetta mun vera mesta fjár-
hæð, sem íslenzkt skip hefur
nokkru sinni fengið á Þýzka-
landsmarkaði, en meira hef-
ur fengizt í Bretlandi, svo
sem á síðasta ári, en Fylkir
fékk 21,000 pund, sem er um
2,5 millj. króna með núgild-
andi gengi.
Sex skip —
Framh. af 1. síðu.
til hafna á þessum hluta lands-
ins. Þar hafa sjö skip komið til
Kópaskers á skömmum tíma,
en aðeins reynzt unnt að af-
greiða eitt þeirra. I|in hafa
ekki treyst sér til að leggjast
að bryggju, af' því að svo illt
hefur verið í sjóinn og horfið
frá. ‘
■ Vegna þess hve átt hefur
verið breytileg og þar af leið-
andi spilliblotar, hefur beit
nýtzt mjög illa og er þó ekki
mikil. Hefur vetur því verið
mjög gjafafrekur.
I Aðrar aflasölur að undan-
förnu eru hjá Hvalfelli, er seldi
133 lestir af síld fyrir 76,200
mörk, og 52,9 lestir af öðrum
fiski fyrir 44,962 mörk.
Þá hefur Þorkell máni selt
291,5 lestir af síld fyrir 150,000
mörk og 10,7 lestir af öðrum
fiski fyrir 8,116 mörk og loks
hefur Uranus selt 211,4 lestir
af síld fyrir 118,6660 mörk.
Karl ekur á
snjókerlingu
Frá fréttaritara Vísis.
Selfossi í gær.
Það vildi til upp úr liádcgi
sj. IaugarHag í npkkúrri snjó-
muggu, að bóndi einn.úr Gaul-
verjabæjarhreppi kom að máli
við bifreiðaeftirlitið á Selfossi
og sagði sínar farir ekki slétt-
ar.
Hann hafði þá skömmu áður
verið að aka sem leið liggur á
Bæjarhreppsvegi í sveit sinni.
Einhvers staðar á leiðinni milli
bæjanna Glóru og Smjördala,
vildi það til að jeppinn stanzaði
að mestu og um leið brotnar
framrúðan, sem líklega hefir
verið sprungin áður. Er bóndi
kemur út sérj hann, að hann
hefir ekið um koll heilmikla
snjókerlingu og mun efri hluti
hennar hafa lent á framrúð-
unni. Auk þess var annað
frambretti jeppans lítið eitt
dældað af völdum kerlingar.
Bifreiðarstjórann sakaði ekki,
né tvo farþega, er voru í jeppa
hans. Heimtaði nú bóndi
skjótra og róttækra aðgerða af
hálfu bifreiðaeftirlitsins, þar
sem hér hefði verið um víta-
verðan farartálma að ræða á
opinberum umferðarvegi. Og
fullra bóta krafðist hann á
skemmdum þeim, er árekstur-
inn við snjókerlinguna hefði
orsakað.
Tveir lögregluþjónar frá
Selfossi fóru á staðinn og at-
huguðu verksummerki. Töldu
þeir sig ef til vill kenna þar
eftirhreytur af ganglimum
snjókerlingar, en einhverjar
bifreiðar höfðu ekið þar um,
síðan slysið varð.
Þess má geta, að bóndi sá, er
hér um ræðir, hefir nýlega
verið heiðraður fyrir 10 ára
öruggan og tjónlausan akstur
og í því tilefni fengið merki
)
— Ég tel mig hvergi hafa
„misboðið“ íslenzku máli,
hvað þá að ég hafi gert til-
ræði við það.
(Einn af blaðam. Morgunbl.
6. janúar 1962).
★
— Það var ekki nóg með
að Bretar undirbyggju ný-
lendur sínar undir frelsið í
5—10 ár, heldur reistu þeir
meira að segja hótelin til
þess að hægt væri að halda
sj álf stæðishátíðirnar.
(Búrgíba, forseti Túnis).
Hvað hafa snargli* innin
hnið á jörðíjni^
Menn hafa löngum velt því
fyrir sér, hversu margir menn
muni hafa búið á jöðinni frá
upphafi vega til þess dags, en
að sjálfsögðu mun jafnan reyn-
ast erfitt að „kasta tölu“ á alla
mannkindina. Nú hefir þó verið
gerð tilraun til þess, þyí að
bandarískt fyrirtæki, sem tekur
að sér allskonar rannsóknir
fyrir aðila sem þess óska, hefir
reiknað út, að frá upphafi hafi
búið á jörðinni 77 milljarðar
manna. Fyrirtæki þetta, Popu-
lation Reference Bureau, reikn-
ar þá með, að maðurinn hafi
verið orðinn það, sem kallazt
hefir á latínu „homo sapiens“
fyrir um það bil 600.000 árum,
og við það tímabil er miðað,
þcgar áætlunin er gerð.