Tölvumál - 01.12.1986, Blaðsíða 24
Við þetta bætast áhyggjur IBM vegna slakrar
útkomu hinnar aflmiklu 3090 gerðar. Þessi tölva
hefur fengið mun dræmari viðtökur en reiknað var
með. Til að bæta gráu ofan á svart féllu
hlutabréf fyrirtækisins i verði um tima siðast
liðið vor og hafa ekki enn rétt við.
IBM hefur um áratugi skilað hluthöfum góðum arði
enda ganga hlutabréf þess á háu verði. Er fyrir-
tækið talið hið verðmætasta i heimi, ef miðað er
við söluverð hlutabréfa. Til þess að halda
þessari stöðu verður IBM að selja framleiðslu
sina og þjónustu með mikilli álagningu. Há
ávöxtunarkrafa er hins vegar óhugsandi i
samkeppni eins og nú geysar á PC markaðinum.
Nýir tímar
Þróun tölvumarkaðarins undanfarin tvö ár hefur
verið gjörólik þvi, sem við áttum að venjast fram
til þess tima. Margir telja að markaðurinn hafi
verið í þróun eins og oft gerist þegar ný tækni
kemur til sögunnar. Hafa menn i þvi sambandi
bent á þróun bílaiðnaðarins á bernskuárum bif-
reiðarinnar. Eftir 1984 hefur ýmislegt hins
vegar gerst, sem áður var litt þekkt á meðal
tölvufyrirtækja. Stór fyrirtæki fóru að yfirtaka
önnur minni og fyrirtæki sameinuðust. Þá hófst
verðsamkeppni, sem i raun hafði ekki tiðkast á
þessum sibreytilega markaði.
Þegar IBM PC tölvan kom á markaðinn með MS DOS
stjórnkerfið og ótal fyrirtæki fóru að framleiða
allskonar hugbúnað fyrir hana skapaðist staðall,
sem opnaði leiðina fyrir ódýrar lausnir.
Fróðlegt verður að fýlgjast með þvi hvort þessi
"ódýru" tæki eigi eftir að verða það öflug að
verðlækkunar fari að gæta á stærri tölvum.
Margir reikna með þvi að næsta skref Japana verði
til dæmis að nota öflugri örtölvur en nú eru í
einmenningstölvum. Vitað er að strax á næsta ári
fara tölvur af þessari gerð að koma á markað.
Verður fróðlegt að fylgjast með þróuninni á næstu
misserum. -si.
22