Tölvumál - 01.02.1987, Side 5
Aðalfundur 1987
Aðalfundur Skýrslutæknifélagsins 1987 var haldinn
i Norræna húsinu fixnmtudaginn 29. janúar s.l.
Fundarstjóri var Jóhann Gunnarsson, framkvæmda-
stjóri og ritari Bergur Jónsson, deildarstjóri.
Formaður, Sigurjón Pétursson, flutti skýrslu
stjórnar og er hún birt í heild á öðrum stað hér
i blaðinu. Fram kom i skýrslunni, að félags-
starfið hefur verið gróskumikið og að umsvif
félagsins hafa verið mikil. Sigurjón lauk máli
sinu með þvi að þakka stjórnarmönnum og fram-
kvæmdastjóra félagsins fyrir hið mikla og góða
samstarf sem hann hefur átt við þá.
Lilja ólafsdóttir, féhirðir stjórnar, lagði fram
endurskoðaða reikninga og gerði grein fyrir þeim.
Reikningarnir voru siðan bornir undir atkvæði og
samþykktir samhljóða.
Stjórnarkjör var næst á dagskrá. Úr stjórn áttu
að ganga formaður, ritari og meðstjórnandi ásamt
varamönnum. Formaður, ritari og annar varamaður
gáfu ekki kost á sér til endurkjörs.
Samkvæmt tillögum til stjórnar var Páll Jensson,
forstöðumaður Reiknistofnunar Háskólans kosinn
formaður. Stefán Ingólfsson, verkfr. ritari.
Halldór Kristjánsson, verkfr., meðstjórnandi og
varamenn, Þorgeir Pálsson, verkfr. og Anna
Kristjánsdóttir, lektor.
í heild er þá stjórn Skýrslutæknifélagsins ásamt
endurskoðendur þannig skipuð:
Formaður Páll Jensson, forstöðumaður
Reiknistofnunar Háskólans
Varaformaður Dr. Jóhann P. Malmquist, prófessor
Háskóla íslands
Féhirðir
Lilja Ólafsdóttir, deildarstjóri
SKÝRR
5