Tölvumál - 01.02.1987, Blaðsíða 11

Tölvumál - 01.02.1987, Blaðsíða 11
NÁMSKEIÐ UM TÖLVUNET OG TÖLVUFJARSKIPTI Á síðast liðnu ári hélt Skýrslutæknifélagið nám- skeið TÖLVUNET OG TÖLVUFJARSKIPTI, sem Sigfús Björnsson, dósent, skipulagði og kenndi. Mikil aðsókn var að námskeiðinu og komust færri að en vildu. Nú hefur Skýrslutæknifélagið, i samvinnu við endurmenntunardeild Háskóla íslands, ákveðið að halda annað námskeið um sama efni. Námskeiðið stendur yfir dagana 28. 29. og 30. april og 11. og 12 mai. Sigfús Björnsson skipuleggur einnig þetta námskeið og verður aðalkennari. Sjá nánari tilkynningu á bls. 12 og 13. -kþ. DECUS RÁÐSTEFNA Samtök notenda Digital-tölva halda ráðstefnu 15. mai næstkomandi. Ráðstefnan verður i hefðbundnum "DECUS Sýmposium" stil. Samtökin héldu ráðstefnu i fyrra sem þótti takast vel. Samtök DEC tölvunotenda á íslandi eru meðlimur i DECUS sem eru alþjóðasamtök áhugamanna um DEC tölvur. DECUS samtökin eru stærstu samtök tölvu- áhugamanna i heiminum með tæplega hundrað þúsund meðlimi. Hin mikla velgengi Digital Equipment Corp. hefur endurspeglast i auknum áhuga þeirra sem nota tölvur fyrirtækisins. DECUS félögin eru opin öllum áhugamönnum um DEC tölvur án tillits til þess hvort þeir nota tölvur af þessari gerð eða ekki. Engin félagsgjöld eru innheimt. Upplýsingar um ráðstefnuna og félgið gefur Guðriður Jóhannesdóttir hjá Kristjáni Ó. Skagfjörð hf., simi 24120. 11

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.