Tölvumál - 01.02.1987, Síða 14
SKÝRSLUTÆKNIFÉLAG ÍSLANDS
FÉLAGSSAMÞYKKT
1. gr.
Heiti félgsins er: Skýrslutæknifélag íslands.
2- gr.
Tilgangur félagsins er að stuðla að hagrænum vinnubrögðum við
gagnavinnslu i hverskonar rekstri og við tækni- og vísindastörf.
Þessum tilgangi hyggst félagið ná með þvi að gangast fyrir
sýningum, fyrirlestrahaldi, umræðum, upplýsingamiðlun og nám-
skeiðum, eftir þvi sem efni standa til.
Enn fremur gangast fyrir samræmingu og stöðlun við vélræna
gagnavinnslu, og stuðla að útvegun tækja með sem hagkvæmustum
kj örum.
3. gr.
Félagar geta verið stofnanir, fyrirtæki og einstaklingar, sem
nýta tölvulausnir, svo og aðrir, sem á slikum málum hafa áhuga.
Stofnanir og fyrirtæki geta átt fleiri en einn fulltrúa i fél-
aginu.
4- 9r-
Aðalfundur ákveður félagsgjald fyrir eitt ár i senn.
Séu fleiri en einn félagi frá sömu stofnun eða fyrirtæki, skal
greiða fullt gjald fyrir einn mann, hálft fyrir annan og einn
fjórða gjalds fyrir hvern hinna. Starfsár félagsins er al-
manaksárið, og gjöld til félagsins skulu greidd fyrir 1. april.
Endurskoðaða reikninga félagsins skal leggja fyrir aðalfund.
5 ■ gr.
Stjórn félagsins skipa sex menn, formaður, varaformaður,
ritari, féhirðir, skjalavörður og einn meðstjórnandi. Skulu
þeir kostnir á aðalfundi til 2ja ára i senn og ganga úr
stjórninni á vixl, þannig að i upphafi ganga úr formaður, ritari
og meðstjórnandi eftir eitt ár, en varaformaður, féhirðir og
skjalavörður eftir tvö ár, og helzt svo sama röð áfram.
Enn fremur skulu kosnir á aðalfundi tveir varamenn i stjórn og
tveir endurskoðendur.
14