Tölvumál - 01.02.1987, Page 17
Verulegt tap varö á ráðstefnunni, en verið er að
vinna að þvi að fá afslátt á tveimur aðalreikn-
ingunum. Félagið lærði margt á undirbúningi
ráðstefnu þessarar. Ákveðið hefur verið að
endurtaka ráðstefnuna eftir tvö ár og mun sú
reynsla sem fékkst við undirbúning ÍSDATA reynast
ómetanleg við undirbúning næstu ráðstefnu. Vil ég
nota tækifærið hér til að þakka Hirti Hjartar og
öðrum i undirbúningsnefnd fyrir hið mikla starf
sem þau lögðu þar fram.
± byrjun desember efndi félagið til ráðstefnu um
TÖLVUNET. Rástefna þessi tókst með miklum ágætum
eins og ÍSDATA. 8 fyrirlestrar voru fluttir og
voru ráðstefnugestir yfir 200. Páll Jensson sá um
efnislegan undirbúning ráðstefnunnar og vil ég
nota tækifærið til að þakka Páli fyrir.
Félagið efndi til mjög viðamikils námskeiðs um
TÖLVUNET OG TÖLVUFJARSKIPTI i april. Undirbúning
og kennslu annaðist dr. Sigfús Björnsson.
Námskeiðið sóttu 38 og komust færri að en vildu.
Verður það því endurtekið nú i vor.
1. júní efndi félagið til KYNNINGAR Á TÖLVUNÁMI.
Kynningin var haldin i nýja húsi Verzlunarskólans
við Ofanleiti. Ekki var annað að sjá en að þetta
væri kærkomið tækifæri fyrir marga, því stöðugur
straumur gesta var á kynninguna allan daginn.
Alls komu rúmlega 600 manns og voru þeir á öllum
aldri. Yfir 20 aðilar tóku þátt i kynningunni.
Voru það fulltrúar frá hinum ýmsu framhaldsskólum
í Reykjavík og nágrenni, sem hafa tölvufræðslu á
námskrá sinni, frá Háskólanum, tölvuskólunum og
fyrirtækjum. Einnig voru þarna einstaklingar,
sem hafa verið eða eru við nám í tölvufræði i
erlendum skólum til að kynna tölvufræðslu við-
komandi skóla.
± undirbúningi fyrir næstu mánuði af fundum og
ráðstefnum má nefna PC-dag i febrúar. Ráðstefnu
eða fund um hugbúnaðargerð sem að er stefnt að
halda i mars. Einnig er i mars stefnt að fundi i
samstarfi við MFA um áhrif tölvutækni á vinnuna
og störf. i april er fyrirhuguð ráðstefna i
samvinnu við Verkfræðingafélag islands og einnig
er vettvangskynning i undirbúningi. i lok mai er
17