Tölvumál - 01.03.1988, Blaðsíða 12
Skýrslutœknifélag islands heldur félagsfun
FÉLAGSFUNDUR
að Hótel Loftleiðum
mánudasinn 18. avríl 1988
Fyrirlesari: Philip H. Dorn, Dorn Computer Consultants, Inc.
Philip H. Dorn er fyrrverandi ritstjóri Datamation og
fastur dálkahöfundur hjá DATA.
Það er ánœgjulegt að skýra frá því að i vetrarlok verður hinn
þekkti Philip H. Dorn á fyrirlestraferð um Evrópu. Á leið
sinni mun hann koma við á íslandi og halda fyrirlestur á
vegum Skýrslutœknifélagsins um þróun tölvumála og spá um
nánustu framtíð. Hann mun koma víða við og f jalla bœði um
tœknileg atriði og þróun markaðarins.
Ekki þarf að fjölyrða um vinsœldir Philips H. Dorn bœði hér
á landi og annars staðar. Félagsmenn eru hvattir til að nota
þetta tœkifœri til að fylgjast með því sem er að gerast í
heiminum. Fundurinn er öllum opinn.
Erindið verður um 1 klst. langt og á eflir verða umrœður og
fyrirspurnum svarað.
í tilefni af sumarkomu verða léttar veitingar frambornar í
fundarlok.
Þátttökugjald kr. 1.200,00 fyrir félagsmenn, kr. 1.500,00 fyrir
aðra. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku á skrifstofu félagins í
síma 27577 eigi síðar en 15. apríl.
Skýrslutæknifélag íslands
12 -