Tölvumál - 01.03.1988, Page 14
FRAMLEIÐNI ÓBREYTT í 20 ÁR
(Endurbirt grein frá sept. 1986)
Bandarísk fyrirtæki hafa á undanförnum árum fjárfest í tölvum og
tölvukerfum fyrir þúsundir miljarða króna. Það hefur þó ekki haft
merkjanleg áhrif á framleiðni þeirra. Framleiðni skrifstofumanna í
Bandaríkjunum er talin vera hliðstæð nú og hún var í lok sjöunda
áratugarins. Samkvæmt því hefur hún ekki aukist í tvo áratugi. Með
framleiðni er átt við afköst á unna klukkustund. Fátt bendir til þess
að íslensk fyrirtæki geti státað af skárri árangri.
Könnun Roach
Þessar niðurstöður koma án efa mörgum á óvart. Þær byggjast þó á
bestu upplýsingum, sem fáanlegar eru vestanhafs. Hagfræðingurinn
Stephen S. Roach vann að mjög umfangsmikilli könnun á upplýsingum,
sem safnað er um framleiðslu á öllum sviðum atvinnulífs á vegum banda-
rísku alríkisstjórnarinnar. Tímaritið FORTUNE fjallaði nýlega um
niðurstöður hans í ítarlegri grein.
í henni kemur meðal annars fram að þrjá fjórðu hluta af launakostn-
aði bandarískra fyrirtækja má rekja til skrifstofumanna eða "hvít-
flibba" eins og þeir eru stundum nefndir á máli hagfræðinga. Mun
hærra hlutfall eða 90% af öllum tölvukostnaði er á hinn bóginn tilkomið
vegna starfa þessara sömu manna.
Það jafngildir því að tölvukostnaður á hvern skrifstofumann sé þrefaldur
á við tilsvarandi kostnað á hvern verkamann. Verkamennirnir nefnast
stundum "bláflibbar" á máli hagfræðinga. Þrátt fyrir hina miklu tölvu-
væðingu skrifstofumanna telur tímaritið að alla þá framleiðniaukningu,
sem náðst hefur í bandarísku efnahagslífi undanfarna tvo áratugi
megi þakka árangri verkamanna.
Kemur ekki á óvart
Fyrir nokkrum árum mátti lesa grein í bandaríska vikuritinu Computer-
world, þar sem bent var á að þrátt fyrir gífurlega tölvuvæðingu í
skrifstofuhaldi hefði fjöldi starfsfólks á skrifstofum stöðugt aukist.
Væri aukningin nokkru meiri en næmi fjölgun vinnandi fólks í landinu.
Greinarhöfundur dró þá rökföstu ályktun af þessari þróun að skrif-
stofufólk þyrfti ekki í bráðina að óttast um atvinnuöryggi sitt vegna
tölvuvæðingarinnar. Niðurstöður Roachs renna nú stoðum undir það.
14 -