Tölvumál - 01.03.1988, Blaðsíða 14

Tölvumál - 01.03.1988, Blaðsíða 14
FRAMLEIÐNI ÓBREYTT í 20 ÁR (Endurbirt grein frá sept. 1986) Bandarísk fyrirtæki hafa á undanförnum árum fjárfest í tölvum og tölvukerfum fyrir þúsundir miljarða króna. Það hefur þó ekki haft merkjanleg áhrif á framleiðni þeirra. Framleiðni skrifstofumanna í Bandaríkjunum er talin vera hliðstæð nú og hún var í lok sjöunda áratugarins. Samkvæmt því hefur hún ekki aukist í tvo áratugi. Með framleiðni er átt við afköst á unna klukkustund. Fátt bendir til þess að íslensk fyrirtæki geti státað af skárri árangri. Könnun Roach Þessar niðurstöður koma án efa mörgum á óvart. Þær byggjast þó á bestu upplýsingum, sem fáanlegar eru vestanhafs. Hagfræðingurinn Stephen S. Roach vann að mjög umfangsmikilli könnun á upplýsingum, sem safnað er um framleiðslu á öllum sviðum atvinnulífs á vegum banda- rísku alríkisstjórnarinnar. Tímaritið FORTUNE fjallaði nýlega um niðurstöður hans í ítarlegri grein. í henni kemur meðal annars fram að þrjá fjórðu hluta af launakostn- aði bandarískra fyrirtækja má rekja til skrifstofumanna eða "hvít- flibba" eins og þeir eru stundum nefndir á máli hagfræðinga. Mun hærra hlutfall eða 90% af öllum tölvukostnaði er á hinn bóginn tilkomið vegna starfa þessara sömu manna. Það jafngildir því að tölvukostnaður á hvern skrifstofumann sé þrefaldur á við tilsvarandi kostnað á hvern verkamann. Verkamennirnir nefnast stundum "bláflibbar" á máli hagfræðinga. Þrátt fyrir hina miklu tölvu- væðingu skrifstofumanna telur tímaritið að alla þá framleiðniaukningu, sem náðst hefur í bandarísku efnahagslífi undanfarna tvo áratugi megi þakka árangri verkamanna. Kemur ekki á óvart Fyrir nokkrum árum mátti lesa grein í bandaríska vikuritinu Computer- world, þar sem bent var á að þrátt fyrir gífurlega tölvuvæðingu í skrifstofuhaldi hefði fjöldi starfsfólks á skrifstofum stöðugt aukist. Væri aukningin nokkru meiri en næmi fjölgun vinnandi fólks í landinu. Greinarhöfundur dró þá rökföstu ályktun af þessari þróun að skrif- stofufólk þyrfti ekki í bráðina að óttast um atvinnuöryggi sitt vegna tölvuvæðingarinnar. Niðurstöður Roachs renna nú stoðum undir það. 14 -

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.