Vísir - 28.04.1962, Page 1
I NÆSTU VIKU eru að hefjast
hér á landi víðtækustu rannsóknir
sem nokkru sinni hafa fram farið
á tönnum og tannskemmdum með-
al íslenzku þjóðarinnar. Er ætlunin
að skoða tennur í kringum 4 þús-
und manns á öllu landinu.
-k
Er fólk þfcúa valið af handahófi
til þess að fá sem skýras»ta heildar-
mynd af tannástandi þjóðarinnar.
Mun fólki verða sent bréf um þetta
og er það von manna að allir sýni
góðan samstarfsvilja til þess að
þessi vísindalega athugun gangi
vel. Síðar munu tannlæknar ferðast
um landið og framkvæma skoð-
unina.
★
Að undanförnu hefur bandarísk-
ur tannlæknapróféssor John Dum-
bír að nafni dvalizt hér á landi við
un«dirbúning þessarar athugunar, en
hann mun áður hafa starfað við
slíkar rannsóknir. Athugun þessi
fer fram á vegum og með samstarfi
Háskóla íslands og háskólans í
Birmingham í Alabamafylki í
Bandaríkjunum.
52. ár. — Laugardagur 28. apríl 1962. — 95. tbl.
Grænlamlshaf úr
gervitunglum
íslendinga
verSa rannsakaðar
VISIR
Mikil umskipti til hins betra
afa orðið í viðskiptamálum ís-
mdinga síðustu árin. Kom
etta m.a. í ljós nú fyrir nokkr-
dögum, þegar Hagstofan
irti skýrslu um það, að vöru-
kiptajöfnuðurinn hefði verið
agstæður um nær 192 miiljónir
róna á fyrstu þremur mánuð-
m ársins og hefur hann aldrei
erið hagstæðari en nú.
Það er og skemmtileg stað-
eynd að þetta gerist á tfmum
egar létt hefur verið á öliunt
ínflutningshöftum og verzlun-
er frjálsari en hún hefur
okkru sinni verið. Það er mik-
1 munur fyrir almenning að lifa
ið þær gnægtir allskyns varn-
gs sem nú fæst I öllum verzl-
Inum, heldur en að þurfa að
Iíma við sífelldan vöruskort.
Farmskipin konia stöðugt til
tíafnar hlaðin hverskyns varn-
ijigi, og stöðugt er mikið um
^ð vera niður við Reykjavík-
urhöfn. Hér á myndinni sést þar
sem verið er að skipa í Iand bif
J'iðahjólbörðum.
Haffræðingaráðstefnunni lauk í
gær. Var samþykkt á ráðstefnunni
að hefja ýtarlegar hafrannsóknir á
Grænlandshafi síðari hluta sumars
1963 með tilliti til fiskistofna og
fiskiveiða, en Grænlandshaf hefir
lítið verið hingað til rannsakað.
Þá er og f ráði að framkvæma
hafrannsóknir í Grænlandshafi
með aðstoð gervihnatta.
Átta haffræðingar sátu ráð-
stefnuna sem haldin var á vegum
NATO. Hefir Haffræðinefnd Nato
veitt Fiskideild Atvinnudeildar
Háskólans hér 4.000 dollara styrk
til hafrannsókna í Grænlandshafi.
Hefir Fiskideildin ákveðið að fé
þessu skuli varið til kaupa á mjög
nákvæmu mælitæki til þess að
mæla sjávarseltu.
Merkilegur áfangi.
Jón Jónsson, yfirmaður Fiski-
deildar Atvinnudeildarinnar hafði
þetta að segja, um ráðstefnuna, er
blaðið átti tal við hann í gærkvöld:
Við erum mjög ánægðir yfir því
að Atlantshafsbandalagið skuli
vilja ýta undir þessar rannsóknir.
Rétt er að geta þess að rannsóknir
þessar eru framkvæmdar í sam-
ráði við alþjóðlega hafrannsóknar-
ráðið.
Tæki þau sem við kaupum fyrir
fjárstyrkinn eru okkur mjög mikil-
væg, en það eru sjálfvirk tæki til
seltumælinga. Einnig hefur verið
veittur styrkur til kaupa á tækjum
til mælinga á ísótópum í sjónum.
Við erum mjög ánægðir með
þessa ráðstefnu. Hér eru saman-
Framh. á 5. síðu
Nýr saltfisk-
útflytjandi
Á næstunni kemur ítalskt flutn-
ingaskip hingað tii lands á vegum
heildverzlunar Friðriks Jörgensens
og tekur hér í ýmsum höfnum 700
tonna farm af saltfiski. Verður fisk
urinn seidur tii Ítalíu. Er það í
fyrsta skipti um langt árabil, sem
annar aðili en Samband íslenzkra
fiskframleiðenda selur fisk til Ítalíu
Það eru nokkrir fiskframieiðend-
ur, sem eru ekki í SÍF, sem hafa
falið Friðrik Jörgensen þessa salt-
fisksölu. Er verðið mjög hagkvæmt.
Heiidverzlun Friðriks Jörgensens
hóf í fyrra lítilsháttar útflutning á
söltuðum ufsa og ufsaflökum til
Þýzkalands. Það hefur ennfremur
nýlega selt lítið magn af saltfiski
til Englands og Danmerkur.
Leysir erfiðleika SH o
172 millj. króna bandarískt lán fengið
T
Fyrir skömmu skýrði
Vísir frá því, að Sölumið-
stöð Hraðfrystihúsanna
og S.Í.S. hefðu fengið IVz
milljón dollar eða 63 millj.
kr. rekstrarlán í Banda-
ríkjunum í sambandi við
framleiðslu og sölu ísl.
fiskjar þar. í gær átti Vís-
ir tal við Pétur Benedikts-
son bankastjóra, sem ný-
kominn er frá Bandarikj-
uuum og skýrði hann
blaðinu frá að Landsbank-
anum hefði nú tekizt að
fá lánsupphæð þessa hækk
aða í 4 millj. dollara eða
172 millj. króna.
Eins og kunnugt er hefir
reksturfjárskortur staðið fyrir-
tækjum S.H. og S.Í.S. í Banda-
ríkjunum mjög fyrir þrifum og
valdið drætti á uppgjöri við
frystihúsin hér heima. Er því
hér um mjög mikilvæga fyrir-
' greiðslu að ræða.
Erindi Péturs Benediktssonar
vestur í bæði skiptin var að
greiða fyrir greiðslum til frysti-
húsanna hér heima með lánveit-
ingum frá Bandaríkjunum. Það
er Landsbankinn, sem tekur 172
millj. krónumar að láni og end-
urlánar upphæðina síðan S.H.
og S.Í.S. Lánið veitir First Nat-
ional City Bank í New York,
en helminginn af því ábyrgist
Export-Import Bank.
Þá skýrði Pétur Benediktsson
blaðinu einnig frá því í gær-
kvöldi, að í viðbót við þessa
lánveitingu væri dótturfyrirtækj
um S.H. og S.l.S. frjálst að taka
viðbótarlán út á það, sem þau
eiga af útistandandi skuldum á
hverjum tíma. Sagði bankastjór-
inn að á þennan hátt myndu fyr-
irtækin geta aflað sér tölu-
verðra f járhæða. Auk þess
mundi Landsbankinn, með hjálp
Manufacturers Hannover Trust
í Bandaríkjunum, geta bætt veru
lega við þessa fyrirgreiðslu.
VERKFALL
Félag járniðnaðarmanna i
r^.eykjavík hefur tilkynnt að
vinnustöðvun muni hef jast föstu
daginn 4. maí n.k. Fyrir nokkru
slcýrði Vísir frá því að félags-
fundur hefði verið haldinn hjá
jámsmiðum, en að formaður
félagsins neitaði að skýra frá
þvi hvað þar hefði gerzt. Með
þessari verkfallstilkynningu er
það hins vegar komið f Ijós.
'i