Vísir - 19.05.1962, Side 8

Vísir - 19.05.1962, Side 8
8 1/ISIR Laugardagur 19. maí 1962. Útgefandi Blaðaútgátan VISIR Ritstjórar: Hersteinr, Pálsson Gunnar G. Schram. Aðstoðarritstjóri Axel Thorsteinsson Fréttastjóri Þorsteinn Ó. Thorarensen Ritstjórnarskrifstofur Laugavegi 178. Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3. Áskriftargjald er 45 krónur S mánuði. 1 lausasölu 3 kr. eint. — Sími 11660 (5 línur). Prentsmiðja Vísis. — Edda h.f. Aðeins vika til stefnu Nú eru aðeins átta dagar, þangað tii gengnð ven’ð- ur til kosninga í Reykjavík og víðar á landinu til að ákveða, hverjir skuli stjórna málefnum hinna ýmsu staða á næstu fjórum árum. Mun víðast verða barizt af kappi miklu, en engin kosning mun vekja aðra eins athygli og baráttan um Reykjavík, baráttan milli þeirra, sem vilja samstilltan, samhentan meirihluta við stjórn áfram og hina, er vilja ofurselja bæinn tæt- ingsliði glundroðaflokkanna. Barátta rauðu flokkanna snýst einkum um að sannfæra almenning um, að þeir muni bíða ósigur í þessum kosningum, svo að Sjálfstæðismenn þurfi ekk- ert að óttast, þeir geti jafnvel unmið glæsilegan sigur með því að sitja heima og hafast ekki að. Eru þess fá dæmi, ef nokkur, að flokkar boði ósigur sinn fyrir- fram, en tilgangurinn er auðsær. Ætlunin er að sann- færa nægilega marga Sjálfstæðismenn um, að þeim sé óhætt að bregðast flokki sínum, án þess að tjón verði af, að hinir, er munu smala öllu liði, hljóti meiri- hluta. Þetta er það, sem Sjálfstæðismenn verða að var- ast að trúa. Þeir sigra því aðeins að þeir komi allir á kjörstað og geri skyldu sína. En með því munu þeir líka veita andstæðingunum þá ráðningu, sem þeir verðskulda fyrir undirhyggjuna — ráðningu, sem fólg- in verður í stórkostlegum sigri Sjálfstæðisflokksins. Maðurinn sem kiappaöi Þegar menn líta á Iista andstæðinga Sjálfstæðis- flokksins ættu þeir að minnast þess, að þeim er boðið upp á þann mann í fyrsta sæti hjá kommúnistum, er var meðal þeirra, sem klöppuðu Krúsév lof í lófa, er hann lýsti kjarnorkusprengingum Sovétmanna á s. 1. hausti. Þetta er í senn móðgandi við allt heiðvirt fólk og skýlaus yfirlýsing um, að hvað sem líður öllu hjali kommúnista um andúð á slíkum sprengjum, eru þeir reiðubúnir til að lúta vilja herranna í Kreml og tefla fram þeim, sem þeir hafa velþóknun á. Hver sem kýs lista kommúnista, tekur undir lófatak Guðmundar Vigfússonar í Kreml. Sendimaður frá SÍS Yfirmenn Framsóknarflokksins, peningamenn- irnir í SÍS-hringrium, hafa talið Þórð Björnsson klaufa- legan og seinheppilegan fulltrúa í bæjarstjórn, enda gengið slælega fram í að reka erindi Sambandsins. Hafa þeir þó vart verið heppnari með þann, sem nú er efstur á lista. Hann ber of mikinn SÍS-svip, til þess að hann geti reynzt öðrum geðfeildur en því jötuliði, sem hjá Sambandinu starfar eða komið hefir verið að Hjá ríkinu. Sjálfstæðisstefnan hefur mótað þróun Reykjavíkur IFTIR BIRGI ÍSL GUNNARSSON, LÖSFRÆDING Birgir ísleifur Gunnarsson 8. maöur á lista Sjálfstæðisflokksins. pátt er ungu fólki meiri hvöt! til aukinna framkvæmda og dáða en að lifa í umhverfi, sem fyrst og fremst einkennist af stórstígum framförum og hraðri þróun. Það unga fólk, sem nú er að vaxa upp í Reykjavík, hefur fengið gott veganesti hvað þetta snertir. Það hefur séð Reykja- vík vaxa og stækka með ári hverju í stóra, fjölmenna og fagra borg. Enda þótt sagan um þróun Reykjavíkur sé undraverð, þá er Reykjavík þó fyrst og fremst borg framtíðarinnar. Unga fólk- ið, sem orðið hefur vitni að þró- uninni, mun ekki reynast eftir- bátar feðrum sínum og mæðrum í þeim efnum. En góður vilji og framkvæmdahugur borgaranna nægir þó ekki einn. Þar þarf til að koma góð og traust stjórn á málefnum borgarinnar, stjóm, sem leitast við að samhæfa hina mörgu krafta, sem fyrir eru og gefur hverjum einstaklingi svig- rúm til athafna. jþað er engin tilviljun, að í Reykjavík hafa.px.þið .fflpsfu og stórstígustu framfarir á síð- ustu áratugum, sem íslandssag- an greinir frá. Þar hefur Sjálf- stæðisflokkurinn haft meiri- hluta til að framfylgja stefnu sinni án afskipta annarra flokka. Sjálfstæðisstefnan leggur á- herzlu á einstaklinginn og tel- ur, að hlutverk hins opinbera sé ekki það að kæfa niður fram- kvæmdarhvöt og sjálfsbjargar- viðleitni einstaklinganna og er það andstætt 'þeirri stefnu, er vinstri flokkarnir halda fram. Sjálfstæðisstefnan hefur hvergi verið reynd ómenguð í fram- kvæmd nema hér í Reykjavík. Hin glæsilega höfuðborg talar sínu máli, því að Reykjavík er í dag hvort tveggja í senn, sómi lands og þjóðar — og sómi Sjálf stæðisstefnunnar. Eitt af grundvallarskilyrðum þess, að Reykjavík megi í fram- tíðinni halda áfram að þróast, er það að búa sem bezt að æsku lýð borgarinnar. Þetta hafa borgaryfirvöldin skilið og því hefur Reykjavík haft um það alla forystu að bæta sem bezt hag æskunnar. Einn merkasti þátturinn í þeirri starfsemi er stofnun æskulýðsráðs, en það var stofn- að árið 1955. Strax og tóm- stundaiðja hófst á vegúm ráðs- ins, kom í ljós mikill áhugi unglinga á starfinu og jafn- framt hver nauðsyr er á því, að unglingar eigi þess kost að eyða tómstundum sínum við heppileg viðfangsefni. Starfsemi Æskulýðsráðs hefur aukizt hröðum skrefum og s. 1. vetur störfuðu á þriðja þúsund ung- lingar innan vébanda Æskulýðs ráðs að hinum fjölbreyttustu viðfangsefnum. Þessi starfsemi hefur farið fram víðsvegar um borgina, eða samtals á 14 stöðum. Tvö ný æskulýðsheimili voru tekin í notkun á sl. vetri, tómstunda- heimilið að Bræðraborgarstíg 9 og Tjarnarbær. Enda þótt efla beri starfsemi Æskulýðsráðs, verður þó að gæta þess, að starfsemi ráðsins verði ekki til að draga úr starf- semi annarra aðila, sem hafa æskulýðsstarf með höndum. Hér í borginni eru fjölmörg félags- samtök, sem eru byggð upp af einstaklingum, er unnið hafa fórnfúst sjálfboðaliðastarf í þágu reykvískrar æsku og vilja halda áfram að vinna að þeim málum. Þessum aðilum þarf að veita aðstoð eftir því, sem föng eru á. Frambjóðendur Sjálfstæðis- flokksins hafa gert sér fulla grein fyrir nauðsyn á slíkum stuðningi, en í stefnuskrá Sjálf- stæðisflokksins fyrir þessar kosningar segir m. a. „að styðja beri félög og ein- staklinga, sem vinna að raun- hæfum umbótum að félagslífi æskunnar og að halda verði áfram hinni fjölþættu starfsemi Æskulýðs- ráðs og hún aukin eftir því sem kostur er og heppilegt þykir með tilliti til æskulýðsstarfs annarra aðila“. Hér hefur aðeins verið drepið á eitt af þeim fjölmörgu málum, sem unnið hefur verið að til hagsbóta fyrir reykvíska æsku. Rétt er að minna á hinar glæsiegu skólabyggingar, sem hafa risið eða eru að rísa víðs- vegar um bæinn. Þær byggingar setja mikinn svip á sín hverfi. Leitazt er við að hafa skólana í fallegum og vönduðum húsum og reynt er að hagnýta til hins ýtrasta allar þær nýjungar, sem verið er að taka upp í öðrum löndum. Þá má minna á hin glæsilegu íþróttamannvirki, Leikvanginn í Laugardal, Sundlaug Vesturbæj ar, Sundlaugina í Laugardal og Frh. á bls. 13

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.