Tölvumál - 01.04.1989, Blaðsíða 4

Tölvumál - 01.04.1989, Blaðsíða 4
Tölvumál Mars 1989 Frá formanni Halldór Kristjánsson, formaöur SÍ Taktufrá 25.apríl,þvíþá verður ráðstefna um hagnýt tölvusamskipti á vegum SI. ■ Ritnefndir og útgáfa Eins og lesendur sjá á þessu blaði, þá er ætlunin að tvær ritnefndir vinni blaðið og skiptist á um undirbúning og frágang. Búið var að leita til góðra manna um að taka að sér aðra ritnefndina en þeir urðu að draga sig í hlé áður en til fram- kvæmda kom. Það varð því úr, að stjóm sá um útgáfu þessa blaðs og mæddi það mest á Guðbjörgu Sigurðardóttur og mér. Við erum nú að leita að góðu fólki í ritnefnd sem hefur áhuga á að vinna að gerð blaðsins. Eins og áður er lýst eftir tillögum um vinnufúst fólk í ritnefndina. ■ FundurumOSF Fimmtudaginn 6. apríl hélt félagið fund með erlendum fyrirlesara, Grenville Edwards, frá OSF. Fjallaði erindi hans um OSF, hver markmið þess em og staða. Fyrirlesturinn var mjög fróðlegur og gaf góða mynd af OSF og starfi þess. Hver örlög þessa fyrirtækis verða, ræðst af viðtökum markaðarins. Það er vissulega spennandi hugmynd að hægt sé að velja hugbúnað óháð vélargerð og geta flutt hann á milli ólíkra véla. Það lofar góðu fyrir fyrirtækið að DEC, HP og IBM skuli vera aðilar að því og vekur vonir um að þeir nái þeim árangri að hafa varanleg áhrif á hugbúnaðar- gerð og notkun á næstu ámm. HP á íslandi þökkum við fyrir að lána okkur þennan ágæta fyrirlesara í tvær stundir, en um 38 manns sóttu fundinn. ■ Hafa skal þaö... í síðasta pistli mínum slæddist inn meinleg villa þegar ég bauð nýjan framkvæmdastjóra velkominn til starfa. Helga er Erlingsdóttir! ■ Ráöstefna um hagnýt tölvusamskipti Þriðjudaginn 25.apríl n.k. verður ráðstefna á okkar vegum á Hótel Loftleiðum um hagnýt tölvu- samskipti. Þar verða fyrirlestrar um nýja þjónustu Póst- og símamálstofnunar á gagnanetinu, fjallað verður um áætlanir P&S varðandi ISDN, sagt ffá EDI, EFT/ POS, gagnabanka SKÝRR og Skjásýn. Ráðstefnan hefst klukkan 13.15 og er aðgangseyri stillt í hóf. Við munum senda félagsmönnum bréf með dagskrá ráðstefnunnar. Taktu frá tíma strax! ■ Áframhald á NDU samstarfi? Eitt af þeim málum sem nú liggja fyrir stjóm er að ákveða um áframhald þátttöku okkar í NDU. Mikill þrýstingur er á stjóm Skýrslutæknifélagsins frá stjórn NDU um að taka afstöðu fyrir aðalfund NDU í júní. Ekki eru greidd árgjöld til NDU en þeir þiggja þóknun af norrænum ráðstefnum sem haldnar em af félögunum sem í því eru. Þar liggur hundurinn grafinn, því það er okkar framlag til NDU að standa fyrir slíkum ráðstefnum með reglulegu millibili. Síðast var haldin ráðstefna 1986, ÍSDATA, með þeim afleiðingum að félagið tapaði veralegum fjármunum. FéllstNDU þá á að fella niður þóknun sína af þessari ráðstefnu. Það er mín skoðun að þátttakan í NDU sé of dýra verði keypt með því að halda hér stórar ráðstefnur með mikilli fjárhagslegri áhættu fyrir félagið okkar. Því eru nú til umræðu ýmsar hugmyndir um leiðir til að halda áfram samstarfi við NDU án þess að við þurfum að taka stóra áhættu. Verið er að athuga dags ráðstefnu með heimsþekktum fyrirlesurum auk annarra spennandi hluta.

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.