Tölvumál - 01.04.1989, Page 7
Tölvumál Mars 1989
■ Hverjir bjóða Unix?
Allir meiriháttar tölvuframleiðendur
bjóða nú Unix stýrikerfið, ýmist
meðfram eigin stýrikerfum (svo sem
IBM, DEC og HP) eða eingöngu
(Sun, AT&T, Sequent, MIPS).
Meðal verkefna Unix kerfisins var
að leggja til vinnuumhverfi fyrir
reiknifrek forrit raunvísindamanna,
ýmist á fjölnotendatölvum af öllum
stærðum eða á vinnustöðvum,
öflugum einmenningstölvum þar
sem áherslan er á reikniafl og
myndrík notendaskil á stórum skjá.
■ Samskipti og dreifö
vinnsla
Einnig þróuðust góð tölvusamskipti,
tölvurnar gátu samnýtt jaðartæki,
sent skrár á milli sín og notendur
gátu flutt sig yfir á aðra tölvu. Þróun
Unix kerfisins hefur verið
brautryðjendastarf í dreifðri vinnslu,
og má telja Unix einu leiðina til
þess að byggja upp opið, dreift
tölvuumhverfi.
Með opnu kerfi er þá átt við að það
sé ekki eign ákveðins framleiðanda
sem ráði ferðinni í tölvuþróun
notendanna.
Litlir framleiðendur sem höfðu
góðan vélbúnað að bjóða notuðu
gjarnan Unix vegna þess að miklu
auðveldara er að færa það yfir á
nýja tölvugerð en að skrifa stýrikerfi
frá grunni, unnt var að fá frumgerð
kerfsins, skrifa þann hluta þess sem
alltaf er vélarháður, breyta því sem
þurfti og nota annað óbreytt.
■ Gott
hugbúnaöarframboö
Unix umhverfinu fylgir verulegt
framboð af hugbúnaði sem auðvelt
er að aðlaga þannig að nýir
vélaframleiðendur geta komist inn á
markaðinn án þess að skortur á
notendahugbúnaði yrði þeim að
fótakefli. Þessi aðlögunarhæfni á sér
sennilega enga hliðstæðu í
tölvuheiminum nema að hluta í MS-
DOS, stýrikerfi PC tölvanna, sem
þó er miklu minna kerfi og gengur í
aðalatriðum aðeins á örgjörva frá
einum framleiðanda.
Þessari þróun fylgdi það að enginn
aðili markaðssetti Unix sem slíkt,
engir sölumenn héldu fram ágæti
þess, það fylgdi einfaldlega sumum
tölvum og það var valið til notkunar
hjá ýmsum tæknilega sinnuðum
notendum þótt vélaseljendur byðu
eigin stýrikerfi. Nýlega hafa stóru
tölvuframleiðendumir tekið við sér
og Unix er farið að höfða til miklu
víðari notendahóps en áður. IBM,
DEC, HP og “allir hinir” hafa lýst
því yfir að þeir leggi mikið upp úr
sínum Unixútgáfum, þeir muni þróa
þær áfram og leggja þær að jöfnu
við eigin stýrikerfi.
■ Færanlegur
hugbúnaður
Framleiðendumir vinna saman í
nokkmm staðlanefndum og
sameignarfyrirtækjum til þess að
samræma vinnu sína í því skyni að
auðveldara verði að flytja hugbúnað
milli véla. Þá verður hægt að setja
meiri kraft í raunverulega þróun á
notendahugbúnaði og minni vinna
tapast í að aðlaga
notendahugbúnaðinn mismunandi
vélum, prenturam, tungumálum
o.s.frv. Þessi aðferð er leið út úr
hugbúnaðarkreppunni, nútíma
hugbúnaður er, að margra hyggju,
varla samboðinn vélbúnaðinum sem
í boði er.
■ Unix lifir!
Unix er lifandi stýrikerfi, það þróast
í samvinnu margra framleiðenda,
rannsóknamanna og notenda og
getur lagast að mörgum
vélagerðum, allt frá öflugum
einmenningstölvum upp í öflugustu
tölvur sem framleiddar hafa verið.
Að stofni til er kerfið gamalt, það
hefur verið umskrifað nokkrum
sinnum og á eftir að verða
umskrifað oft eftir því sem
IBM, DEC, HP og "allir hinir" ætla
að þróa sínar Unixútgáfur áfram og
leggja þær að jöfnu við eigin
stýrikerfi.
Unix umhverfinu fylgir verulegt
framboð afhugbúnaði sem auðvelt
er að aðlaga.