Vísir - 14.06.1962, Page 1
r
VISIR
52. ári
Fimmtudaeur 14. iúní 1962. — 133. tbl.
Dragnótaveiðarnar
hefjast næstu nótt
Á miðnætti í nótt hefjast drag-
nótaveiðar á ákveðnum svæðum
víðsvegar í kringum land. Hefur
Sjávarútvegsmálaráðuneytið gefið
út tilkynningu um dragnótaveiði-
svæðin og eru þau mestmegnis þau
sömu og í fyrra.
Ráðuneytið hefur gefið út 120
leyfi og er það álíka fjöldi og í
fyrra. Sá er þó munurinn, að leyf-
in dreifast meira út um land. í
Reykjavík og við Faxaflóa er minni
áhugi fyrir Ieyfunum en í fyrra og
Hér sést Þorbergur Sigurjónsson eigandi varahlutaverzlunarinnar
að Hverfisgötu yfir brunarústunum, en varahlutirnir í búðinni
eru eyðilagðir.
Innbrot í nótt
Innbrot var í nótt framið í húsa-
kynni Kaupfélags Kjalarness og
stolið þar einhverju magni af tó-
baksvörum, einkum vindlingum, og
einhverju fleiru.
Þjófurinn hafði komizt inn með
því að brjóta rúðu. Fóru lögreglu-
menn bæði úr Reykjavík og Hafn-
arfirði á staðinn og voru í morg-
un að vinna að rannsókn málsins.
► Frétt frá Vínarborg hermir, að
horfið hafi tveir bandarískir
skemmtiferðamenn, bandarískur
(múlatti) og kona hans, fædd í
Þýzkalandi. Þau hurfu í grennd við
landamæri Tékkóslóvakiu.
stafar það af því að veiðin var
lítil í fyrrasumar.
Fjögur veiðisvæði
Veiðisvæðin eru fjögur: Fyrir
vestan land er það svæði fyrir
Faxaflóa, Breiðafjörð og Vestfirði
og nær það frá Höfnum og norð-
ur að Geirólfsgnúpi á Ströndum.
Þó eru allir firðir á Vestfjörðum
lokaðir.
Fyrir Austurlandi eru tvö svæði,
annað þeirra nær frá Vopnafirði
og að Gerpi, hitt er frá Skrúð að
Hafnarnesi. Þó eru lokuð svæði
innfjarða við Seyðisfjörð, Loðmund
arfjörð og Fáskrúðsfjörð.
Fjórða svæðið er svo fyrir öllu
Suðurlandi frá Kambsnesi að
Grindavík.
120 leyfi.
Sjávarútvegsmálaráðuneytið hef-
ur gefið út leyfi til 120 báta og
skiptast þau þannig niður, að í
Reykýavík eru 23 bátar, á Suður-
nesjum 24, Vestfjörðum 23, Aust-
fjörðum 13 og Vestmannaeyjum
19. Samkvæmt lögum eiga bátarn-
ir að vera undir 35 tonn, en heim-
ilt er að veita undanþágur fyrir
alit að 45 tonna báta. Tekið skal
fram, að ekki er víst að allir bát-
arnir stundi veiðarnar, þó þeir fái
leyfið, fer það mikið eftir afla-
brögðum.
Sem stendur munu um 90 bátar
í Vestmannaeyjum og á SV-landi
stunda humarveiðar. Er líklegt að
sumir þeirra fari síðar á dragnóta-
veiðar.
Varahlutalagerinn
ónýttist í eldinum
Eidurinn á Hverfisgötu
54, sem sagt var lítillega
frá í Vísi í gær, var í vara-
hlutaverzlun Þorbergs P.
Sigurðssonar. Var eldur-
inn allmagnaður um tíma
og má heita að allur vara-
hlutalagerinn í búðinni sé
ónýtur. Hefur Þorbergur
beðið mikið tjón við þenn-
an bruna.
Frá miðstöð
eða rafmagni.
Eldurinn kom upp um hádegi.
Er enn e'.cki vitað með vissu hverj-
Hné niður
í morgun, um það leyti sem m.s.
Gullfoss var að leggjast að hafn-
argarðinum f Reykjavíkurhöfn,
fékk maður, sem staddur var inni
í Tollskýlinu, skyndilega aðsvif og
hné niður.
Maður þessi, sem var úr Hafn-
arfirði, var að bíða eftir farþega
með Gi’lfossi, þegar hann hné
út af. Hann var þegar í stað flutt-
ur í slysavarðstofuna og þaðan,
strax að athugun lokinni, í Land-
spítalann.
ar voru orsakir hans, en þegar
Vísir talaði við Þorberg í morgun,
sagði hann að tvær ástæður væru
hugsanlegar. Önnur væri að kvikn-
að hefði í út frá miðstöð, sem not-
uð er til að brenna_ umbúðir, en
kveikt hafi verið upp í henni um
klst. áður en eidurinn kom upp.
Hin ástæðan, sem Þorbergi fannst
sennilegri var að kviknað hefði í
út frá rafmagni. Kvaðst Þorberg-
ur sjálfur fyrst hafa séð eldinn í
loftinu yfir var .lilutabúðinni, og
því telja rafmagnsíkveikju líklegri.
Fólki bjargað.
Hús þetta var áður timburverzl-
un Árna Jónssonar. Var varahluta-
verzlunin á neðri hæð, en íbúð
Þorbergs á neðri hæðinni. Eldur-
inn varð skjótlega svo magnaður,
að fólkið sem var á efri hæðinni,
kona Þorbergs, ungbarn og áttræð
kona komust ekki út og var grip-
ið til þess ráðs að aka vörubifreið
upp að húsinu, reisa stiga á palli
hennar og komst fólkið þannig út,
en það var í lífshættu.
Hræðilegt umhorfs.
Þegar ég leit niður í morgun,
sagði Þorbergur, blöskraði mér
hvernig allt var umhorfs. Fyrsta
hugsun manns er auðvitað að mað-
ur skuli aldrei gefast upp, en tjón-
Framh. á 2. síðu.
Richard Thors,
stjórnarform. S. ,F. flytur yfir-
litsræðu sína á aðalfundi samtak-
anna.
Aðalfundur Sölusambands ísl.
fiskframleiðenda hófst í morgun.
Formaður sambandsins, Richard
Thors, flutti skýrslu stjórnarinnar,
og kom fram í ræðu formannsins
að allar fiskbirgðir frá fyrra ári
væru nú seldar. Einnig gat formað-
ur þess að það af vertíðarfram-
leiðslunni sem flutt verður úr iandi
sem óverkaður saltfiskur, hefur
þegar verið samið um sölu á
mestu til ítalíu, Portúgal og Spán-
ar, samtals nær 20.000 tonn.
Nokkru hærra verð hefur fengizt
fyrir óverkaðan stórfisk en s. 1. ár,
en hinsvegar hefur verð á smáfiski
aðeins læKkað vegna mikilla ó-
seldra birgða í markaðslöndunum
og aukinnar framleiðslu annarra
þjóða. I ræðu formanns kom það
og fram að nokkrir erfiðleikar
hefðu komið fram í viðskiptunum
við Italíu, og benti formaður á,
Frh. á bl. 2.