Vísir - 16.06.1962, Blaðsíða 2
2
VÍSIR
Laugardagur 16. júní 1962.
ftKJIf-JLSÍ'iÍ
2. eins
Ali'i-I
i un
6 'i'* -
IkA.
Siglufirði
voru 6. Eins og annars staðar
vantar fleiri fasta kennara að
skólanum með sérríámi, og þvl
voru við skólann kennarar, sem
ekki hafa lokið kennaraprófum.
Heilsufar var mjög gott í skól
anum. — Inflúenzufaraldurinn,
sem gekk yfir landið í vetur,
var mjög vægur hér. Hins vegar
urðu nokkur forföll á nemend-
um um tíma vegna kúabólu-
setningar, sem var mjög al-
menn meðal barnanna.
Að þessu sinni útskrifuðust
með fullnaðarprófi 60 börn. 9
börn hlutu 1. ágætiseinkunn:
Jóhann Tómasson 9,6, Edda
Ragnarsdóttir 9,3, Sigrlður Vil-
hjálmsdóttir 9,3 Friðbjörn
Björnsson 9,1, Kristín Sigurðar-
dóttir 9,1, Jón Möller 9,0, Edda
Jónsdóttir 9,0, Sigurjón Kjart-
ansson 0,0 og Kristján Jóhanns-
son 9,0. Öll þessi börn hlutu
áletraðar bækur frá skólanum,
sem verðlaun fyrir framúrskar-
andi árangur í námi.
Skólastjórinn kvaddi nemend-
ur og kennara með þakklæti
fyrir samstarfið. Kvaðst hann
nú hafa verið starfandi skóla-
stjóri á Siglufirði í 19 ár, og
gæti hann því lagt nokkurn
dóm á æskulýð bæjarins. Taldi
hann siglfirzk ungmenni vera
mjög vel gefin og tápmikil og
yfirleitt afbragðsfólk, sem hægt
væri að vænta mikils af í fram-
tíðinni.
Skólaslitunum lauk með því
að sungið var lagið „Ég vil
elska mitt land“ sem Siglfirð-
mgar hafa tekið miklu ástfóstri
við, og nota sem eins konar
héraðssöng.
þrj.
Verzlunarskólann
I vor gengu milli 230 og 240
nemendur undir inntökupróf í
fyrsta bekk Verzlunarskólans.
Höfðu 280 látið skrá sig til prófs-
ins. 100 nemendur verða teknir
inn í skólann að þessu sinni, sem
er 30 fleira en verið hefur. Stafar
þessi aukning af viðbótarbyggingu,
sem væntanlega verður tekin í
notkun ( haust.
Nemendur þeir, sem ganga und-
ir prófin hafa venjulega lokið
skyldunámi, eða öðrum bekk í
gagnfræðaskóla. Eru þeir prófaðir
skriflega ' í dönsku, íslenzku og
reikningi. Auk þess er ætlazt til
að þeir kunni sem nemur skyldu-
námi í ensku, þó að ekki sé prófað
í henni.
Lágmarkseinkunn til að standast
inntökupróf er 4,25 eftir Örsteds-
kerfi. Ekki er með góðu móti hægt
að reikna það yfir 1 tugakerfið,
sem víðast er notað, en reynslan
hefur sýnt að þeir nemendur sem
eru með um átta á unglingaprófi,
eiga góða möguleika á að standast
prófið.
Mjög mikil aðsókn hefur verið
að skólanum undanfarið og hefur
ekki verið hægt að taka alla sem
ná tilskilinni lágmarkseinkunn.Var
það heldur ekki hægt núna, þrátt
fyrir aukið húsrými.
VERÐL A UNA KR0SSCÁ TA
ÍSIS
Skólaslit ó
Skólaslit barnaskóla Siglu-
fjarðar fóru fram í Siglufjarð-
arkirkju miðvikudaginn 30. maí
slðastl.
Þetta er í 79. sinni sem skóla-
ári lýkur í skólanum. Samfelld
starfræksla barnaskóla í Siglu-
firði verður því áttatíu ára í
haúst.
Athöfnin hófst með sálma-
söng og andagt undir stjórn
sóknarprestsins séra Ragnars
Lárussonar.
Skólastjórinn, Hlöðver Sig-
urðsson, lýstLstarfsemi skólans
s.l. skólaár. í skplanum voru
360 nemendur r 16 bekkjar-
deilum, flestir aldursflokkar
voru þrískiptir. Fastir kennarar
voru 11 og þar af voru tveir,
að hluta, starfandi við Gagn-
fræðaskólann. Stundakennarar