Vísir - 16.06.1962, Blaðsíða 4
4
VISIR
Laugardagur 16. júní 1962.
KR reyndi að leika knattspyrnu
og tókst þaðgegn frábærum Tékkum
KR-TékkarO:6
í glampandi sólskini og
fögru veðri léku Tékkar
sinn 3. Ieik í gærkvöldi og
mættu nú íslandsmeistur-
unum úr KR, sem stilltu
upp liði, sem ekki leit sem
bezt út á pappímuip, eink-
um þó pteð nýliða í stöðu
h. bakverðar, og þúngan
miðvörð, sem búast mátti
við að mundi reynast held-
ur svifaseinn fyrir katt-
fima Tékkana. Þeir sem
ekki horfðu á Ieikinn,
misstu af talsverðu, því
þama var borin á borð af-
bragðs knattspyrna Tékk-
anna og langbezta knatt-
spyrna, sem við höfum séð
til íslenzks liðs í sumar.
Vantar margt.
Auðvitað vantaði KR-inga
margt til að standa iafnfætis tékk-
nesku unglingunum, sem nú eru
„aldir upp“ fyrir OL í Tokyo 1964,
en þar eiga þeir að halda uppi
heiðri lands sfns á knattspyrnu-
sviðinu, þar eð enginn leikmanna
þeirra sem annað kvöld keppir til
úrslita f Santiago á heimsmeist-
í TÖLUM
LEIKURINN
Þannig gekk leikurinn í gær-
kvöldi fyrir sig í tölum:
TÉKKAR KR
Mörk 6 0
Skot á mark 25 0
Skalli á mark 0 1
Rangstöður 3 3
Innköst 23 19
Homspyrnur 5 3
Ber þetta vitni hinum miklu
skotum Tékka, en hihsvegar heið-
arlegri sókn KR út allan leikinn.
arakeppninni fær að vera með þar
enda litið á þá keppni sem keppni
atvinnumanna, en aðeins áhuga-
menn fá aðgang að Olympíuleik-
um. KR vantaði sem sé margt.
KR vantaði HRAÐA, MVKT,
VALD Á SKROKKNUM, „TAK-
TIK“, sem sé, allt nema viljann til
að leika góða knattspyrnu og það
gerðu þeir oft afbragðs vel, en
fengu ekki verðlaun f mörkum
enda ekki nógu grimmir til að kom
ast í nein veruleg tækifæri, og
framfylgja spilinu.
Tékkarnir hinsvegar voru það
góðir að þeir gátu leyft sér ýmis-
legt sem þeir annars mættu ekki
og koma áreiðanlega ekki til með
að reyna gegn betri liðum. Var oft
hreinasta unun að leik þeirra og f
samanburði við stirða KR-inga
voru þeir eins og nýsmurð vél, sem
vann taktvisst og örugglega.
Skotið úr fjarlægð.
Vallargestir fengu 6 jsinnum að
sjá KR hreinsa net sín og alltaf var
það eftir falleg tilþrif Tékkanna.
Einkum voru það þó hin undur-
samlegu skot þeirra af löngum
færum sem fengu menn til að
undrast. Mark Stokals v. framvarð-
ar var fyrst markanna og kdm eft-
ir aðeins nokkurra sekúndna leik
og var gott skot utan frá vítateig
og algerlega óverjandi fyrir Heimi
markvörð svo gjarnan sem hann
vildi góma þennan óvelkomna
bolta. KR komst f sitt bezta færi
strax á 5. mínútu og ef Gunnar
Felixson hefði komið sínum betri
fæti fyrir sig þá hefði KR jafnað,
en boltinn vafðist fyrir honum og
ekkert varð úr, en Ellert náði upp
úr þessu hættulegum skalla rétt
yfir.
Á 14. mínútu kom 2:0 fyrir
Tékkana, er Knebort skaut af víta-
punkti ágætu og öruggu skoti. ör-
skömmu síðar áttu KR-ingar
greiða leið að marki Tékka, Sigþór
var nærri fallin af völdum tékk-
nesks varnarleikmanns, en stóð og
brunaði áleiðis að markinu, er
hvell flauta dómarans gall við og
eyðilagði stórtækifæri fyrir KR.
,,Ég var óheppinn," sagði dómar-
inn, Hannes Þ. Sigurðsson í hlé-
inu í dómaraherbergi vallarins, „ég
hélt að Sigþór mundi detta og
flautaði — en aðeins tfundabroti
úr sekúndu of fljótt“.
Miðvörður á vítateig
skoraði glæsilega.
Þriðja markið kom á 38. mínútu
Hér kom 4. niarkið hjá KR, gjörsamlega óverjandi skot fyrir
Heimi.
Hættulegur, hár bolti fyrir Heimi markvörð, sem honum tókst þó að bjarga í fyrri hálfleiknum.
Skallaeinvígi Tékka og Ellerts Schram úr KR í leiknum í gærkvöldi. Til vinstri á myndinni er
„leyniskyttan“ Mráz, sem skorað hefur mest allra Tékkanna eða 7 mörk af þeim 22 sem þeir
hafa skorað í þeim þrem Ieikjum sem þeir hafa leikið.
og var þar að verki miðvörður
Tékka, en þeir leika með tvöfaldan
miðvörð, annar nokkru framar hin-
um. Fremri vörðurinn, Holecek var
kominn upp að vítateigslínu og þar
reið af mikið skot ,sem engin tök
voru á að verja, enda nokkurn veg-
inn milli samskeytanna. Á 40. mín-
útu léku tékknesku framlínuleik-
mennirnir skemmtilega kringum
KR-vörnina innan vítateigsins og
skot Kneborts, var ekki fjarri því
pð gera hálfleikiiin 4:0 fyiir Tékka.
Varnarmistök á 57. mín. voru
nærri búin að kosta mark, en
Heimir bjargaði með úthlaupi og
vinstri útherjinn átti og færi sem
hann brenndi af. KR komst fyrst
á blað með tækifæri á 24. mín.,
þegar Reslina markvörður bjargar
fyrirsendingu frá vinstri kanti og
Ellert var nærri búinn að ná að
skalla og er ekki að vita nema
hættulegur skalli hans hefði að
Framh. á 10. síðu.
"SV-úrval" valið
gegn Tékkum
Tilraunalandslið landsliðsnefndar Knattspyrnusambands ís-
lands, sem leika á við tékkneska unglingalandsliðið n.k. mánu-
dagskvöld, er þannig skipað:
Heimir Guðjónsson K.R.
Árni Njálsson Valur Bjami Felixsson K.R.
Garðar Ámason K.R. Ormar Skeggjason Valur
Hörður Felixsson K.R.
Kári Ámason Akureyri Skúli Ágústsson Akureyri
Grétar Sigurðsson Fram
Gunnar Felixsson K.R. Þórður Jónsson Akranes
Varamenn: Sveinn Jónsson (K.R.)
Einar Helgason (Akureyri) Ellert Schram (K.R.)
Þorsteinr Friðbiófsson (Valur) Sigþór Jakobsson (K,R.)