Vísir - 16.06.1962, Page 11
Laugardagur 16. júní 1962.
VISIR
167. dagur ársins.
Næturlæknir er f slysavarðstof-
unni. Sími 15030.
Neyðarvakt Læknafélags Reykja-
víkur og Sjúkrasamlags Reykjavík-
ur er kl. 13-17 alia daga frá mánu-
degi til föstudags. Sími 11510.
Nætúrvörður vikuna 2.-9. júni
er í Vesturbæjarapóteki.
Kópavogsapótek er opið alla
virka daga daga kl. 9,15 — 8, laugar
daga frá kl. 9,15 — 4, helgid. frá
1-4 e.h. Sími 23100.
Útvarpið
Fastir Iiðir eins og venjulega.
Kl. 16.30 Vfr. — Fjör í kringum
fóninn: Úlfar Sveinbjörnsson kynn-
ir nýjustu dans- og dægurlögin.
17.00 Fréttir. — Þetta vil ég heyra:
Guðmundur Pétursson símritari
velur sér hljómplötur. — 18.00
Söngvar í léttum tón. 18.30 Tóm-
stundaþáttur barna og unglinga
(Jón Pálsson). 20.00 Upplestur:
„Póstkortið“, smásaga eftir R. K.
Narayan, þýdd af Drífu Viðar
(Róbert Arnfinnsson leikari). 20.20
Sönglög og hijómsveitarverk: a)
Beniamino Gigli syngur ítölsk lög
og aríur. b) Sinfóniuhljómsveitin
í Minneapolis leikur svítuna „Ib-
eria“ eftir Albéniz, Anata! Dorati
stjórnar. 21.15 Leikrit „Kvöldið,
sem ég drap Georg“ eftir M. C.
Cohen, í þýðingu Hjartar Hall-
dórssonar. — Leikstjóri Indriði
Waage. 22.00 Fréttir og veður-
fregnir. 22.10 Danslög. — 24.00
Dagskrárlok.
Messur
Hafnarfjarðarkirkja. — Fullveldis-
guðsþjónusta kl. 1.30. Séra Bjarni
Jónsson vígslubiskup flytur. —•
Séra Garðar Þorsteinsson.
Laugameskirkja. Messa ld 11 f.h.
Séra Ingólfur Ástmarsson prédik-
ar. — Séra Garðar Svavarsson.
Neskirkja. Messa kl. 10.30 f.h. —
Séra Jón Thorarensen.
Haligrímskirkja. Messa kl 11 f.h.
Séra Jakob Jónsson.
Langholtsprestakall. Messa kl. 11
f.h. (Þjóðhátíðardagsins -minnzt).
Séra Árelius Níelsson.
Ásknftasími
Vísis er
/-/660
Daníel Daníelsson, fyrsti formaður Fáks, á hesti sínum Háfeta.
Hesturðnn okknr
Nýlega er komið út fyrsta tölu-
blað þriðja árgangs af ritinu Hest-
urinn okkar, sem gefið er út af
Landssambandi hestamannafélaga.
Ritið er 30 síður að stærð, með
litprentaða forsiðu, skreytt 46
myndum og frágangur þess allur
til fyrirmyndar. 1 ritinu eru grein-
ar eftir tíu menn, auk ritstjóra,
sem er Vignir Gumundsson blaða-
maður.
Ritið er að miklu leyti helgáð
40 ára afmæli Hestamannafélags-
ins Fáks. Birtist þar hluti af ræðu
Einars G. E. Sæmundssen, sem
flutt var á afmælishófi félagsins
í marz síðastliðnum og grein er
um Daníel Daníelsson, sem var
einn af helztu hvatamönnum að
stofnun Fáks og formaður félags-
ins fyrstu 15 árin.
Efni ritsins er að öðru leyti
mjög fjölbreytt. Meðal annars eru
þar margar hestavísur. Hefur Ein-
ar G. E. Sæmundsen tjekið þær
saman og ort sumar þeirra sjálfur.
Lítið er af auglýsingum í ritinu,
en þess í stað hafa ýmis fyrirtæki
í Reykjavík og Akureyri styrkt
ritið fjárhagslega
Á undanförnum árum hefur rit-
ið verið prentað í Prentverki Odds
Björnssonar á Akureyri, eri þar
sem allir þeir sem að ritinu standa
eru búsettir í Reykjavík, þótti
hentugra að flytja prentun hingað
og er það nú prentað í Isafoldar-
prentsmiðju.
Ýmislegf
VERÐLAUN ^
1 RITGERÐASAMKEPPNI.
1 sambandi við „Dag frímerkis-
ins“ 1 april s.l. var efnt til rit-
gerðasamkeppni í 12 ára bekkj-
um bamaskólanna um efnið: Hvað
getum við lært á því að safna frí-
merkjum?
Mest var þátttakan í Melaskól-
anum í Reykjavík, en þar tóku 8
bekkjardeildir þátt 1 samkeppn-
inni.
Veitt voru þrenn verðlaun, frf-
merki og frímerkjabækur.
1. verðlaun hlaut Helgi Magnús-
son, 12 ára G í Melaskólanum. —
2. verðlaun hlaut Valgerður And-
résdóttir 12 ára S, einnig f Mela-
skólanum. — 3. verðlaun hlaut
Þórunn Skaftadóttir 6. bekk A f
Bamaskóla Keflavíkur.
Söfnin
Þjöðminjasafnifi er opið sunnu
dag, þriðjud., fimmtud., og laug-
ardag kl. 1.30—4 e. h.
Listasafn Einars Jónssonar er
opið daglega kl. 13.30—15.30.
Ameríska bókasafnið Laugaveg 13
er opið 9-12 og 13-18 alla virka
daga nema taugardaga.
Ásgrimssafn, Bergstaðastræti 74
er opið sunr.udaga, þriðjudaga og
fimmtudaga frá kl. 13.30 til 16.00.
Micjasafn Reykjavfkurbæjar,
ákúlatúni 2. opið dagiega frá kl.
— Að vísu eru skómir dýrir, en
það em þó Ijósir punktar við þá,
ég þarf ekki að borga þá fyrr en
eftir þrjá mánuði.
2 til 4 e. h. oema mánudaga
Tæknibókasafn INSl Iðnskólan-
um: Opið alla virka daga frá kl.
13-19 nema laugardaga.
Bókasafn Kópavogs: — Útlán
þriðjudaga og fimmtudaga f báðum
skólunum.
Auglýsið í Vísi
Ég hitti eftir sl. helgi erlendan
ferðamann, sem hefur verið hér á
ferð að undanförriu. Hann kom til
Þingvalla á hvítasunnudag og
þótti heldur ömurlegt um að lit-
ast. Frásögn hans fer hér á eftir.
„Þingvellir eru ákaflega falleg-
ur staður. Þetta er í þriðja sinn
sem ég kem þar og finnst alltaf
jafn hátíðlegt og skemmtilegt að
koma þangað. Þar var nú mikið
af fólki og lét illa. Þarna var mik-'
ill fjöldi unglinga, ótrúlega ungra
1) Rip neyðist til að hörfa und- fara aftur inn. Við skulum sjá, 2) Alveg rétt, kunningi þú skalt ling í greni.
an. hvernig leynilögreglumanni líkar ■ . iáta loka sis inni eins og yrð-
i^opyrighl P. I. B. Bo« 6 Cop«nhogen
og gæti ég trúað að fjöldinn af
þeim hafi ekki verið meira en
14—15 ára. Flestir þeirra virtust
vera meira og minna drukknir, þó
að um hábjartan dag væri og voru
með mikinn hávaða og læti. Ekki
er svo að skilja að eingöngu ung-
lingar hafi verið með læti. Þeir
eldri voru engu betri.
Margir vom þarna á bílum og
óku fram og aftur á þeim krók-
óttu vegum sem þarna eru, á ofsa-
hraða, svo stór hætta stafaði af.
Hvergi voru sjáanlegar ruslakörf-
ur eða neitt annað sem tekið gæti
við pappír og öðru dóti, sem alltaf
fylgir fólki í útilegum. Var staður-
inn allur útvaðinn í pappír og
drasli.
Það er mikið gert til að fá hing-
að ferðamenn. Það er þvf ekki eðli-
legt að ekki sé til benzín á stöðum
eins og Þingvöllum. Við höfðum
! ekið ofan úr Borgarfirði og vorum
í að verða bensínlaus. Þegar til
Þingvalla kom, var ekkert bensín
að fá. Sögðu þeir þar að ekki
væri afgreitt bensín um helgar, til
bensínstöðvanna. Það er harla lé-
leg frammistaða, ef ekki er hægt
að vita fyrir helgina hvort bensín
er á tankinum eða ekki.
I
Það er óskemmtilegt að sjá
j framkomu eins ogiþarna, á einum
helzta sögustað Islendinga. Þessi
staður hefur verið gerður að þjóð»-
garði og mér skilst að hann sé
rækilega verndaður gegn öllum
búfénaði. Ef oft er eins á Þing-
völlum eins og núna um helgina,
virðist mér meiri ástæða til að
vernda staðinn fyrir mannfólki en
búfé. Þar við bætist að hvítasunn-
an er ein af þrem aðalhátíðum
kirkjuársins og á meðan íslending-
ar teljast kristin þjóð verða menn
að bera meiri virðingu fyrir þess-
ari hátíð.“
J .1.