Vísir - 16.06.1962, Side 16
I
VISIR
Laugardagur 16. júní 1962.
Merkileg fornleifaleit
Leita bæjarstæðis Ingólfs
Undanfarin ár hefur nokkuð
verið rætt og ritað um bæjar-
stæði Ingólfs Arnarsonar og
hafa menn ekki verið á sama
máli um hvar það var.
Síðast liðinn vetur var sam-
þykkt í borgarstjórn Reykja-
víkur að hefjast handa um
rannsóknir í því skyni, að þær
gætu leitt í Ijós þetta umdeilda
atriði. Rannsóknir þessar hóf-
ust í gær. Er hér ekki- um forn-
leifagröft að ræða heldur að-
eins könnun sem gæti gefið í
skyn hvar grafa á, og hversu
mikið þarf að grafa. Notaður er
kjarnbor, sem er knúinn Sachs-
mótor, og er borinn frá Raf-
orkumálastjórninni.
Rannsóknum þessum stjórna
þeir Þorkell Grímsson fornleifa-
fræðingur og Þorleifur Einars-
son jarðfræðingur er starfar við
Atvinnudeild Háskóla íslands.
Þorkell hefur haft þetta fyrir
aðal rannsóknarefni síðan í
Fjórar slasast
/ Svínahrauni
Á fimmta tímanum i gærdag
valt bifreið f Svínahrauni. í bif-
reiðinni voru fimm farþegar
auk ökumanns. Fjórar konur
slösuðust, en ökuinaðurinn og
► Ellefu menn hafa verið hand-
tcknir í Edinborg í Skotlandi. Þeir
komu til Leith á flutningaskipi frá
Alsír og scgjast vera liðhlaupar
úr frönsku útlendingahersveitinni.
JFimm voru handteknir er þeir voru
að stíga upp í lest á leið til Glas-
gow. Níu eru Þjóðverjar, einn Aust
urríkismaður og einn Svíi.
► Listmálarinn Pietro Annigoni er
um þessar mundir að mála mynd
af Jóhannesi páfa.
lítill drengur siuppu ómeiddir.
Bifreiðin var á austurleið og
þegar ökumaðurinn ætlaði að
beygja þar sem hinn nýi
Þrengslavegur endar, náði
hann ekki beygjunni og bifreið-
in þaut út af veginum og fór
eina veltu.
Fljótlega kom á vettvang
lögregla og sjúkralið úr Reykja
vík sem flutti hinar slösuðu
konur í Slysavarðstofuna. í gær
kvöldi hafði ein verið flutt á
sjúkraliús, en hinar voru til
rannsóknar í Slysavarðstofunni.
Bifreiðin sem er af Skoda-
gerð skemmdist mjög mikið og
var flutt með kranabifreið i
bæinn.
Quðrún varð
sjötta af átján
október s.l. og hélt erindi um
þetta á fundi Fornleifafélagsins
29. desember s.l. Þeir félagar
sóttu svo um styrk og leyfi til
borgarstjórnar Reykjavíkur í
vetur og fékkst hvoru tveggja.
í gær hófust svo boranirnar
og er fyrst borað í sundi milli
Hjálpræðishersins og Steindórs-
prents, rétt við þar, sem bein
fundust árið 1944. Munu þeir
bora um 15 holur þarna í ná-
grenninu. Hver hola verður um
fjóra til fimm metra á dýpt og
þarf 30 til 40 kjarnhylki í
hverja holu. Gert er ráð fyrir
ar boranirnar standi yfir í 10
daga og við þær vinna auk
þeirra tveggja fyrrnefndu tveir
menn frá Jarðborun ríkisins.
Þegar borunum lýkur verða Myndin er tekin í portinu milli Hjálpræðishersins og Steindórs-
svo kjarnahylkin tekin og rann- prents, þar sem byrjað var að bora. Fremst á myndinni eru þeir
sökuð, og hvort um fornleifa- ... ' , ,
gröft verður að ræða, verður ÞorkeU Glslason °S Þorleifur Emarsson, gegnt þeim er danskur
byggt á niðurstöðum þeirra. útvarpsmaður. (Ljósm. Vísis B. G.)
Vegurinn gegnum Heiðmörk
i sumar
Fegurðardrottning islands Guð-
rún Bjamadóttir varð sjötta f röð-
inni af átján stúlkum, sem kepptu
um titilinn Ungfrú Evrópa í Beirut
Guðrún fékk einnig atvinnutil-
boð frá tízkusýningarfyrirtækinu
sem réði Maríu Guðmundsdóttir
til sín, og veitti henni brautar-
gengi.
Guðný Björnsdóttir, frá Kefla-
vík, sem varð sjötta í röðinni í
síðustu fegurðarkeppni fer til
Istanbul um miðjan mánuðinn.
Anna Geirs fegurðardrottning
Reykjavíkur 1962 fer til Miami í
Bandaríkjunum og tekur þátt í
harðri keppni um titilinn Miss
Uhiverse, snemma í næsta mánuði.
Önnu var boðið að koma til
Bandaríkjanna hálfum mánuði fyr-
ir keppni og taka þátt f auglýsinga-
herferð fyrir samkeppnina. Telst
það nokkur viðurkenning til feg-
urðardísarinnar.
Skógræktarféiag Reykjavíkur hef-
ur fest kaup á viðbótarlandi við
gróðrarstöðina í Fossvogi. Er þessi
viðbót V/2 hektari á stærð og er
stærð landsins sem félagið hefur
nú yfir að ráða í Fossvogi um 14
hektarar.
Frá þessu var skýrt á aðalfundi
Skógræktarfélaganna sem haldinn
var nýlega. Þar var og rætt um
starfsemina í Heiðmörk á s. 1.
ári en þá voru gróðursettar á Heið-
mörk 205 þúsund trjáplöntur. Með-
i limir rúmlega 50 félaga sem fengið
i hafa úthlutað spildum þar gróður-
j settu verulegan hluta af þessu
i magni. Mest gróðursetti þó vinnu-
flokkur telpna frá Vinnuskóla
Samstarf Sjáltstæðismanna
og Alþýðuflokks á Siglufirði
Fyrsti fundur bæjarstjórnar Siglu-
fjarðar var haldinn á fimmtudag-
inn. í byrjun stjórnaði fundinum
aldurforseti. Forseti bæjarstjórnar
var kjörinn Baldur Eiríksson bæj-
arfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og
er það f 9 sinn, sem hann er
kosinn í það embætti.
Reykjavíkur eða 89 þúsund plönt-
ur.
Vonir standa nú til að hægt verði
seinni hluta sumars að opna fyrir
bílaumferð leiðina gegnum Heið-
mörk endilangri. svo að hægt verði
að aka inn um hliðið hjá Silunga-
polli eða hliðið hjá Elliðavatni og
koma út um hliðið fyrir sunnan
Vífilsstaði eða gagnstætt. Var á
s. 1. ári unnið að vegagerð sunnan
Hjalla og Vífilsstaðahlíðar og verð
ur þeirri vegagerð haldið áfram í
sumar.
j Gróðrastöð Skógræktarfélags
Reykjavíkur í Fossvogi afhenti og
| seldi á s. 1. vori á fjórða þúsund
trjúplöntur. Þá var sáð mörgum
trjáplöntur. Þá var sáð mörgum
sáðreiti og dreifsettar úr sáðreitum
yfir 600 þúsund plöntur.
Úr stjórn Skógræktarfélags
peykjavíkur áttu að ganga Guð-
mundur Marteinsson verkfræðing-
ur og Jón Helgason kaupmaður,
en þeir voru endurkjörnir. Auk
j þeirra eru í stjórninni Sveinbjörn
■ Jónsson hrl, Ingólfur Davíðsson
grasafrcéðingur og Lárus Blöndal
Guðmundsson bóksali.
► Frétt frá Briissel hermir, að
formaður Sammarkaðsnefndar,
Walter Hallstein, sé farinn í stutta
heimsókn til Bandaríkianna. Ekk-
ert var sagt frekara um hina
skyndilegu .ferð hans vestur.
1406 nýir áskrifendur Yísis
Bæjarstjóri var kjörinn Sigur-
jón Sæmundsson úr Alþýðuflokkn-
um, en hann var einnig bæjarstjóri
síðasta kjörtímabiL Heldur þannig
áfram samstarf Sjálfstæðismanna
og Alþýðuflokksins um bæjar-
stjórn, en Framsóknarmenn og
kommúnistar greiddu atkvæði gegn
því að Sigurjón yrði bæjarstjóri
Á fundinum varð nokkur deila
um það hvort nefndir skyldu kosn-
ar til eins árs eins og verið hef
ur eða til fjögurra ára samkvsémt:
sveitastjórnarlögunum nýju. Varð
það úr, að nefndir vpru kjörnar til
eins árs en um leið samþykkt að
gera þær breytingar á reglugerð
um stjórn bæjarins, að hún yrði
í samræmi við sveitastjórnarlögin.
........J
Tala nýrra áskrifenda Vísis, sem
bætzt hafa í hópinn síðustu vikurn-
ar, er nú komin upp í 1406. Stend-
ur áskrifendasöfnun nú yfir í Mið-
bænum og síðan verður hafizt
handa í Vésturbænum.
Næsti dráttur í áskrifendahapp-
drætti Vísis fer fram 10. júlí. Vinn-
ingur að þessu sinni er Kelvinator
ísskápur (7,7 kúbikfet), að verð-
mæti 12.900 krónur. Er hann frá
Verzluninni Heklu í Austurstr. 14.
Allir áskrifendur Vísis eru þátt-
takendur í happdrættinu. Gerizt
áskrifendur strax í dag. Síminn er
1-16-60.