Vísir - 20.06.1962, Blaðsíða 1
VÍSIR
52. árg. — Miðvikudagur 20. júní 1962. — 138. tbl.
Sáttahndur var
enn árangurslaus
Sáttasemjari Torfi Hjartarson hafði fund með
samninganefndum útvegsmanna og sjómanna í
gærkvöldi um síldveiðikjörin. Fundurinn stóð til
klukkan fjögur í nótt. Samkomulag náðist ekki, en
nýr fundur hefur verið boðaður í kvöld kl. 9 og
verður þá enn haldið áfram að reyna að ná sam-
komulagi.
.■n.inxmn'nicmrTrr.TiTari
Vespuhjólið við framhjól bílsins eftir áreksturinn í morgun.
Höggið hefur verið mikið sem sést á því að brettið á bílnum
hefur beyglast og Vespan er allmikið skemmd.
Hinn slasaði, Kristinn Helga- mikil að fullvíst má telja að
son á sjúkrabörunum á slys- Kristinn væri ekki í tölu lif-
stað. Á myndinni sést greini- enda nú ef hann hefði ekki
lega dældin í hjálminum á verið með hjálminn á höfð-
höfði Kristins. Er hún svo inu þegar slysið varð.
(Ljósm. Vísis I.M.)
Fiber"-
hjálmurinn lífí
— hans —-
Kjarni’þessarar deilu er sá,
að útgerðarmenn hafa lagt í
mikinn kostnað við kaup á full
komnum veiðitækjum, sem
auka mjög aflamöguleikana.
Fara þeir fram á það, að sjó-
menn taki þátt I þessum kostn-
aði og halda því fram ,að ef út-
gerðin eigi að bera allan kostn
að við nýju tækin, þá muni
verða halli á útgerðinni, jafnvel
þótt þessi tæki hafi orðið til að
stórauka tekjur sjómanna.
Nýir samningar verzlunarfólks
í morgun tókust samn-
ingar milli Vinnuveitenda-
sambands íslands og
Vinnumálasambands sam-
.lmnjf?laganna anarsveg-
ar og Landssambands ísl.
verzlunarmanna hins veg-
ar. Kauptaxtar eftirtalinna
félaga hækka um 9% frá
og með 1. júní:
Skrifstofu- og verzlunarmanna-
félags Suðurnesja.
Verzlunarmannafélags Hafnar-
fjarðar.
Verzlunarmannaf. Borgamess
Verzlunarmannaf. Akraness
Verzlunarmannaf. Snæfellinga
l Verzlunarf. Vestur-Barðstrend-
i inga
j Verzlunarmannaf. Bolungavíkur
| Verzlunarmannaf. ísafjarðar
Verzlunarmannaf. Húnvetninga
Verzlunarmannaf. Skagfirðinga
Framh. £ blr i
í morgun um kiukkan 9 varð
alvarlegt bifreiðaslys á Suður-
landsbraut móts við skrifstofu-
byggingu H. Ben. & Co., en þar
varð hörkuárekstur milil bifreiðar
og vespu-bifhjóls, og er talið næsta
líklegt að bifhjólamaðurinn hefði
látið lífið á stundinni ef hann hefði
ekki verið með hjálm á höfði.
Eftir því sem lögreglan tjáði
Vísi í morgun bar þetta þannig að,
að maður að nafni Kristinn Helga-
son til heimilis að Básenda 14 var
á leið vestur Suðurlandsbraut á
vespu-bifhjóli. Þegar hann var um
það bil að komast að mörkum
Suðurlandsbrautar og Laugavegar,
eða móts við hús nr. 4 við fyrr-
nefnda götu er Willys-Station bíl
ekið þar þvert út á götuna og beint
í veg fyrir manninn á bifhjólinu.
Skipti það engum togum að bif-
hjólið lenti á vélarhúsi bílsins með
þeim afleiðingum að sá sem á hjól-
inu var kastaðist í loft upp, yfir
vélarhúsið án þess að koma við
það og mun hafa flogið í loftinu
um 10 metra unz hann skall niður
á götuna.
Sjúkrabíll og lögregla komu
strax á vettvang og var Kristinn
fluttur fyrst í slysavarðstofuna og
að þvi búnu í Landakotsspítala,
þar eð grunur leikur á að um höf-
uðkúpubrot kunni að vera að ræða.
Var höggið svo mikið að stór
dæld kom í hjálminn sem bifhjóls-
maðurinn hafði á höfðinu og telur
lögreglan nær óhugsandi, að Krist-
inn væri í tölu lifanda manna nú
ef hann hefði ekki haft hjálminn á
höfðinu.
Ekki varð þess vart við athugun
í slysavarðstofunni að Kristinn
væri brotinn, nema — og eins og
að framan segir -- að grunur leik-
ur á höfuðkúpubroti vegna ein-
kenna sem komu fram á blæðingu.
Var hann því strax fluttur í Landa-
Framh. á 5. síðu
SÍLDVEIÐIBÁTARNIR eru nú
óðum að búast til veiða, en
samningar um síldveiðikjörin
hafa stöðugt dregizt á langinn.
Bíða menn eftir þvi að komast
á síld því að sildin er að koma
að norðurströndinni. Heldur
sáttasemjari nú daglega fundi
með deiluaðiljum, en svo virð-
ist sem Iítið eða ekkert færist
í fyrstu munu útgerðarmenn
hafa óskað eftir að breyting
yrði gerð á hlutaskiptunum og
settu báðir aðiljar þá fram
vissar kröfur um það, hvernig
hlutaskiptin yrðu, en nokkurt
bil varð þar á milli.
Nú hafa samningaumleitan-
irnar breyzt þannig, að rætt er
um ákveðinn hluta af brúttó-
tekjum skiptist prósentvís nið-
ur. Gera báðir aðiljar kröfu um
vissa prósenttölu. Vísi er ekki
kunnugt um hvaða prósenttöl-
ur aðiljar nefna, en í fyrra mun
kringum 40% af brúttótekjum
hafa verið skipt niður milli á-
Framh. á bls. 5.
------------ SÍLDVEIÐIDEILAN |------
- Deilt um próseut-
\