Vísir - 12.07.1962, Blaðsíða 16
visir
Fimmtudagurinn 12. júlí 1962.
ÁGÆT
SÍIDVEIÐI
FYRIR
AUSTAN
Sl. sólarhring, til kl. 8 i morg-
im var vitað um veiði 65 skipa með
samtals 45 þúsund mál og tunnur.
Veiði var yfirleitt góð á miðun-
um eystra, einkum sunnan til á
Digranesflaki og út af Héraðsflóa.
Nokkur veiði var sunnar, og eitt
skip fékk 800 tunnur i einu kasti
5 mílur út af Seley, eins og Visir
sagði frá í gær. Alls var vitað um
afla 46 skipa fyrir Austurlandi með
36.450 mðl. Veður var gott.
Fremur lítil veiði var á austan-
verðu miðsvæðinu. Þó er vitað um
19 skip sem fengu þar samtals
8450 tunnur, 40 — 45 mílur norð-
austur af Grimsey. Þessi síld er
afbragðsgóð til söltunar, eins og
verið hefir, og er söltuð á Siglu-
firði og Raufarhöfn.
Ægir hefir leitað á vestursvæð-
inu og lóðar á nokkrar góðar torf-
ur NNA af Strandagrunnshorni.
Átuskilyrði eru þar góð. Einnig
fann hann sild' í Reykjafjarðarál.
Síldin stóð djúpt.
Hár fer á eftir skrá yfir öll þau
skip, sem fengu síld s.I. sólarhring
og tilkynntu um veiði fyrir kl. 8
í morgun:
Hrafn Sveinsbjarnarson 450 tn.
Ásgeir RE 400 tn. Skírnir 400 tn.
Þórkatla 500 tn. Gunnar SU 1200
mál. Höfrungur 850 mál. Páll Páls-
son 150 tn. Muninn GK 500 mál.
Halldór Jónsson 1200 mál. Kamba-
Framh. á bls. 5.
Aejitngigr hifaveituframkvæmdir:
ittiðjan
mánuí áHoltunum
Nú um miðjan júlí verð-
jur byrjað á enn einum á-
| fanga hitaveitunnar. Að
þessu sinni á að leggja hita
veitu í Holtin svokölluðu
i fyrir norðan og vestan Há-
| teig. Á verkinu að vera lok
ið fyrir 1. desember.
Borgarráð samþykkti nýlega, að
semja skyldi við Sandver s.f. um
lagningu þessa hluta hitaveitunn-
ar. En forstöðumenn Sandvers eru
þeir Ingvar Pálsson og Guðmund-
' ur Kristjánsson. Höfðu þrjú tilboð
Vörubíllinn í gryfjunni
Steyptist niður /
4. m. diúpa gryfju
Það óhapp vildi til á tólfta
tímanum í gærkvöldi, við sand-
þurrkunarstöð Reykjavíkurflug-
vallar i Öskjuhlíð, að vörubif-
reið lenti niður í 4urra metra
hárri, steinhlaðinni gryfju við
sandþurrkunarstöðina.
Talningu otkvæðo frestnð
í tognrndeilunni
Eins og kunnugt er áttu
deiluaðilar í togaradeilunni
að vera búnir að greiða at-
kvæði um „samninga“ þá,
sem fyrir lágu og undirrit-
aðir höfðu verið af meiri-
hluta samninganefnda
þeirra. Samkomulag varð
um að fresta talningu at-
kvæða um eina viku, svo
enn er togaradeilan óleyst.
Otgerðarmenn í Félagi ísl. botn-
vörpueigenda komu saman til
fundar í gærdag klukkan 5 síð-
degis. Lágu fyrir. þeim fundi til-
mæli frá ábyrgum aðilum, um að
fresta ákvörðun um afstöðu til
„samninganna". Snerust umræður
á fundi útgerðarmanna um það, og
varð samkomulag um, að verða
við ofannefndum tilmælum.
Rangt er frá skýrt í Þjóðvilj-
anum i morgun, þar sem segir
„að mikill ágreiningur hafi ver-
ið um afstöðuna til samning-
ana“ og að þeir hafi óskað eft-
ir fresti á atkvæðagrelðslunni.
Um afstöðuna til samning-
anna var alls ekki rætt, heldur
Framh á bls 5
Nánari atvik óhappsins voru
þau, að bifreiðin R-4231, eign
Reykjavíkurflugvallar, stóð
mannlaus í halla við sandþurrk
unarstöðina og var í hand-
bremsu. Allt f einu tók einn
starfsmanna við stöðina og bif-
reiðarstjórinn, sem var skammt
frá, eftir þvi að bifreiðin fór að
renna af stað. Ætluðu þeir þá
að stökkva inn í bílinn, en
hættu við á síðustu stundu, þvi
í sömu svipan hentist bíllinn
niður í háa gryfju þar rétt við.
Vörubíllinn sem er Ford árg.
1947, skemmdist ekki mjög mik
ið, annað frambrettið beiglaðist
og eitthvað mun stýrisútbúnað-
ur hafa laskast.
2234
nýir áskrifendur
★ Nú hafa 2234 nýir áskrifendur bætzt í hópinn frá 1. maí.
Áskrifendasöfnun stendur nú yfir í Silfurtúni og Hafnarfirði.
★ Næst verður dregið I áskrifendahappdrætti Vísis þann
10. ágúst. í þetta sinn er vinningurinn borðbúnaður að verð-
mæti 10.000 krónur. Er það 12 manna matarstell, 12 manna
borðbúnaður, steikarföt úr stáli og fleiri gripir úr stáli og
krómi frá verzl. Valver, Laugavegi 48. Nánar verður sagt frá
happdrættinu síðar. \
★ Gerizt áskrifendur að Vísi strax í dag. Áskriftarsíminn
er 1-16-60.
Vísindaráð-
stefnan í dag
Hin fyrsta alþjóðlega ráð-
stefna um raunvísindi, sem
haldin er hér á landi, var sett í
Hátíðasal Háskólans kl. 2 i dag.
Ráðstefna þessi fjallar um gróð-
ur og dýralíf í löndunum við
norðanvert Atlantshaf, eins og
áður hefir verið sagt frá í
blaðinu, og náttúrusögu þessara
landa allt frá isöld. 34 útlendir
náttúrufræðingar frá 10 lönd-
um sækja ráðstcfnu þessa, auk
íslenzkra náttúrufræðinga. Hún
er haldin á vegum Háskólans og
Náttúrugripasafnsins en kostuð
af vísindastofnun innan vé-
banda NATO.
Prestskosning
Sunnudaginn 1. þ. m. fór fram
prestskosning í Stafholtsprestakalli
í Mýraprófastsdæmi, umsækjandi
var aðeins einn, séra Rögnvaldur
Finnbogason settur prestur á Val-
þjófsstað. Á kjörskrá voru 286,
168 kusu. Umsækjandin hlaut 150
atkvæði og var þar með kjörinn
lögmætri kosningu. 17 atkvæða-
seðlar voru auðir og einn ógildur.
komið í verkið og var Sandver
lægst með um 2,5 milljónir króna,
þá kom Véltækni h.f. með 2,8 milj.
og Verk h.f. með 3,3'millj. kr.
Þetta svæði nær yfir allt Meðal-
holt, Stórholt, Stangarholt, hluta
af Skipholti, Nóatún, Lönguhlíð og
Einholt.
Þetta er þriðji hitaveituáfang-
inn, sem byrjað er á frá áramót-
um. Hinir hiutarnir eru neðri og
efri hluti Laugarnesshverfis.
Innan skamms verður einnig
byrjað á fjórða áfanganum, sem á
að ná yfir Sigtún, nokkrar Teiga-
gatnanna og Borgartún. Vitað er
að tveir aðiljar hafa boðið í þessar
framkvæmdir, Almenn byggingar-
félagið og Véltœkni h.f.
Mótorhjólið lá eftir.
Enn meðvitundur
luus í morgun
Alvarlegt umferðarslys varð á
Suðurlandsbraut um hálf fjögur
leytið í gær. Þar lenti 19 ára pilt-
ur, Helgi Magnússon, Drekavogi 6,
sem var á bifhjóli, aftan á vöru-
bílspalli og kastaðist síðan á aðra
bifreið er kom á móti og stórslas-
aðist.
Atvik þetta gerðist gegnt húsi
Volvoumboðsins við Suðurlands-
braut og varð með þeim hætti að
vörubifreið, sem ók á undan Helga,
hægði skyndilega á ferðinni. Helgi,
sem var kominn á hjólinu mjög
nálægt bifreiðinni, ætlaði að
sveigja frá henni, en tókst það
ekki fyllilega, heldur rakst á pall-
inn Við það hefur hann vafalaust
misst vald yfir hjólinu sem lenti
þvert út á götuha og í veginn fyr-
ir aðra vörubifreið, sem kom úr
gagnstæðri átt. Skall Helgi með
höfuðið á járnbent framhorn þeirr-
ar bifreiðar og varð það ofsalegt
högg. Helgi lá höfuðkúpubrotinn
og lærbrotinn í götunni og var
þegar í stað fluttur í Landakots-
spítala, þar sem hann var skorinn
upp og tók aðgerðin 4 klst. sam-
fleytt.
í morgun var Helgi enn ekki
kominn til meðvitundar.
Þess má geta að pilturinn var
ekki með hjálm á höfðinu, en gera
má ráð fyrir að hann hefði mjög
Framh. á bls. 5.