Vísir - 23.07.1962, Qupperneq 1
SIR
Mánudagur 23. júll 1962. — 166. tbl.
: ;
wl
Togarar flytja Austur-
lundssíld til Reykjavíkur
Nú er svo komið, að
Norður- og Austurlands
síld er eigi aðeins brædd
í öllum verksmiðjum í
þeim landsfjórðungum,
heldur og hafnir flutn-
ingar á henni tii bræðslu
í Síldar- og fiskimjöls-
verksmiðjunni á Kletti
hér í Reykjavík í sam-
ráði við Síldarverksmiðj
ur ríkisins.
Tveir togarar eru þegar komn-
ir til Seyðisfjarðar að taka síld,
Geir, eign síldarverksmiðjunnar
á Kletti, og Freyr, Ingvars Vil-
hjálmssonar. Verksmiðjan á
Kletti getur brætt 4000 mál á
sólarhring. Framkvæmdastjóri
verksmiðjunnar sagði í viðtali
við Vísi í morgun, að hann hefði
til taks tvo togara í viðbót tii
þess að sækja síld að landi sök-
um þess að megnið af flotanum
er fyrir norðan. Það munu þó
jafnan verða einhver skip fyrir
austan, þar sem allt er að fyll-
ast af síld fyrir norðan. Síldar-
flutningaskipin frá Seyðisfirði
hafa yfirleitt siglt beint norður
til Skagastrandarverksmiðjunn-
ar síðustu dagana, en jafnvel
þar gæti fljótt fyllzt þar eð
mest síldveiði var í nótt í Húna
flóa, eins og getið er um ann-
ars staðar í blaðinu.
Þriðji togarinn er kominn 1
síldarflutninga frá Seyðisfirði.
Það er Pétur Halldórsson, sem
flytur síld til Norðurlands fyrir
Síldarverksmiðjur ríkisins.
40
bifreiðir
Þessa skemmtilegu mynd tók
ljósmyndari Vísis Kristján
Magnússon, um tvö leytið á
laugardaginn, inni við Elliðaár.
Er hún gott dæmi um þá gíf-
urlegu umferð er var út úr
bænum á laugardaginn, má sjá
á henni næstum 40 bifreiðir
sem óku samtímis upp Elliðaár
brekkuna.
Heita má að allir sem vetti-
ingi gátu valdið hafi haldið út
úr bænum til að geta notið veð
urbllunar og dustað af sér borg-
arrykið.
Flestir lögðu leið sina austur
fyrir fjall og má heita að sam-
felld bílaröð hafi verið á tima,
á laugardaginn austur yfir Heil
isheiði.
Þrátt fyrir þessa gifurlegu
umferð í nágrenni bæjarins
urðu engin meiri háttar slys af,
og má ábyggilega þakka bað
þeim mikla áróðri sem Slysa-
vamarfélagið hefur haldið uppj
urn helgar.
Haglél og nærrí
hvít jörð
í GÆRKVÖLDI og fyrradag komu
haglskúrir suðvestanlands á nokkr
um stöðum og gránaði jörð og varð
næstum alhvit, Kornin voru á
stærð við matbaunir.
Til dæmis um þetta er, að fólk,
sem á laugardagskvöld var komið
inn fyrir Hvítárvatn á ieið til Kerl-
ingarfjalla, lenti í slíkri haglskúr.
Skúraleiðingar voru þá þar efra.
Haglskúr kom við Hafravatn síð-
degis 1 gær og viðar munu hafa
komið haglskúrir I gær og fyrra-
dag. Páll Bergþórsson, veðurfræð-
ingur, sagði Visi í morgun, er
spurzt var fyrir um þetta, að veð-
urfar hefði verið þannig, að mjög
líklegt væri, að haglskúrir hafi kom
ið allvíða. Skúraveður var og
þrumuveur á laugardag. Yfir Suð-
vesturlandi voru þá háreist skúra
ský, sérstaklega yfir Reykjanesfjall
garði, og gerði dembu hér í bæn-
um á laugardagskvöldið og senni-
lega víðar. í gær rigndi hér ekki,
en þrumur heyrðust austur undan
og I Borgarfirði og liklegt að fylgt
hafi skúrir og haglél. Eins og kunn
ugt er komst hiti upp í 19 stig hér
á föstudag, en um miðjan dag i
gær rauk inn þoka af hafi og kóln-
aði. Veðurfarsumskipti hafa verið
slík þá daga, sem hér um ræðir, að
gekk á með þrumum og að hagl-
skúrir komu sem að ofan segir. —
Loft er nú heldur svalara en verið
hefur, skýjað norðan lands og vest
an og bjartara austan lands en
kyrrt veur um land allt. Rigningar
vottur á Vestfjörðum. — Mestur
hiti í morgun var um 12 stig.
Fyrsta
sjónvarps-
sendingin
Fyrsta sjónvarpssendingin frá
Bretlandi til Bandaríkjanna verður
send í kvöld. Fer hún fram klukk
an 23 eftir islenzkum tíma.
Sjónvarpað verður sjósetningu
brezks björgunarbáts. Bátur þessi
heitir Lizard Cadwall frá Cornwall
Er hann litlu stærri en björgunar-
báturinn Gísli Johnsen, og er út-
búinn fullkomnustu björgunartækj
um.
SIGLUFJORÐUR:
ASdrei meiri síld í sögunni en
þrjá síðnst liðnu sólurhringu
Fréttaritari Vísis á Siglufirði
sagði í morgun þær gleðilegu
fréttir, að f þessum mesta síld-
arbæ landsins hefði, að því er
hann bezt vissi, aidrei borizt
jafnmikil síid að landi og þrjá
síðustu sólarhringana.
DREKKHLAÐIN SKIP.
Hann sagði, að skipin hefðu
stöðugt verið að streyma inn
undanfarin dægur, svo drekk-
hlaðin að þau hefðu rétt aðeins
flotið í blíðviðrinu. Saltað hef-
ur verið á öllum stöðvum, en
þær eru 22 í kaupstaðnum, á
meðan fólk hefur getað staðið
á fótunum.
FULL AFKÖST.
Auk þess hafa allar verk-
smiðjurnar brætt nótt og dag
með fyllstu afköstum og ekki
orðið nein töf. Löndunartækin
hafa hvergi nærri haft undan
og bíða nú mörg skip losunar
á Siglufirði. Þrær verksmiðjunn-
ar Rauðku eru fleytifullar og
hafa skip, sem ætluðu til þeirr-
ar verksmiðju, orðið að landa
hjá ríkisverksmiðjunum.
SKAGASTRÖND LÉTTIR A.
Miklu hefur þó létt af Siglu-
firði, þar eð Skagastrandarverk-
smiðjan er farin í gang og vinn-
ur ágætlega. Þangað fara nú
síldarflutningaskipin að austan.
Einnig hefur verið saltað á
Skagaströnd, svo og í Ólafsfirði
og yfirleitt er vinnuafl og verk-
smiðjuafl hagnýtt hvarvetna til
hins ýtrasta.
30 SKIP.
Fréttaritarinn á Siglufirði
sagði í dag að 30 skip hefðu
fengið samtals 40 þúsund mál
og tunnur á Húnaflóa í nótt
og fara þau eflaust til Skaga-
strandar og Siglufjarðar. Aftur
á móti fékk ekki nema eitt skip
síld á Kolbeinseyjarsvæðinu 1
nótt. Þar mælist þó gifarlega
mikið af síld, en hún stendur
of djúpt í svipinn.
BBW