Vísir - 23.07.1962, Side 5
Mánudagur 23. júlí 1962.
VfSIR
ílffa verksmiðjan:
Þurrkarar og kvarnir
reyndust ágætlega
í GÆR voru gerðar prófanir á
þurrkurunum og kvörnunum í nýju
verksmiðjunni á Seyðisfirði, og
reyndist allt vera í bezta lagi,
Rafvirkjar unnu við verksmiðjuna
í alla nótt og standa vonir til að
hún geti farið að taka á móti síld
til bræðslu og hafið vinnslu eftir
tvo daga eða svo.
Verksmiðjan keypti tvö gömul
hvalveiðiskip til framleiðslu á gufu
fyrir vinnsluna og fékk þau fyrir
minna verð en sérstakir katlar
hefðu fengizt fyrir, en auk þess er
sá kostur við þessa ráðstöfun, að
36 manns geta sofið um borð í
skipunum og er það pláss notað
fyrir aðkomumenn.
Það óhapp kom fyrir í gær e
það sprakk barki, sem liggur að
gufuleiðslunni úr öðru skipinu inn
í verksmiðjuna. Ekki' varð slys á
mönnum og er verið að smíða nýj-
an útbúnað í stað þessa barka.
Það verk er unnið í vélsmiðju á
Seyðisfirði og mun ekki seinka því
að verksmiðjan geti tekið til starfa.
Nú hefir verið saltað í 10 þús. tn.
á Seyðisfirði. Fréttaritarinn þar
símaði í morgun að 15-20 skip
hefðu fengið síld á Héraðsflóa í
nótt.
Rannsókn á taugaveiki-
bróður er haldii ófram
Orsök taugaveikibróöur-sýking-
arinnar virðist einna helzt vera að
finna í áleggi með mayonnaise, en
ekki í neinni sérstakri tegund á-
skurðar, segir í greinargerð frá
skrifstofu borgarlæknis, og — „á
sama hátt berast böndin að may-
onnaise frá fyrirtæki hér í borg
og hefur sala á mayonnaise verið
stöðvuð meðan á rannsókn stend-
ur á uppruna sýkingarinnar“. —
Rannsókninni er haldið áfram.
í tilkynningunni segir, að vitað
sé með vissu um 80 ný tilfelli og
allmargir hafa veikzt með svipuð-
um einkennum, án þess að sýkla-
rannsókn hafi enn staðfest, að um
taugaveikibróður sé að ræða.
Vísir hefur spurzt fyrir í skrií
stofu borgarslæknis um líðan
sjúklinga og tafir frá vinnu
vegna veikinda af völdum tauga
veikibróður, og kvað Björn L.
Jónsson Iæknir mjög misjafnt
hvernig veikin kæmi niður á
mönnum — sumir yrðu lítið
lasnir, en aðrir talsvert veikir
og jafnvel fárveikir — sumir
næðu sér eftir 2—3 daga, aðr-
ir eftir viku og væri það al-
gengast ,en sumir þyrftu 2—3
vikur til þess að ná fullum bata.
TIL ATHUGUNAR
ALMENNINGI.
í tilkynningu skrifstofu Borgar-
læknis segir til athugunar og leið-
beiningar almenningi:
Eins og áður skal það og brýnt
fyrir fólki, jafnt heilbrigðum sem
sjúkum, að gæta fyllsta hreinlæt-
is í hvívetna, svo sem við mat-
reiðslu í heimahúsum, meðferð
barna, í sambandi við notkun sal-
ernis o. s. frv., m. a. að þvo séf
rækilega um hendur eftir notkun
salernis og fyrir máltíðir.
Þess hefur áður verið getið, að
sýkill sá, sem hér er að verki,
geti borizt með eggjum. Og með
því að egg eru í allri mayonnai.se,
sem samkvæmt framanskráðu ligg-
ur undir grun, þykir rétt að vara
fólk við að neyta eggja öðru vísi
en vel soðinna, og með því að
sýldarnir geta setið utan á skurn-
inni, kunna þeir að geta borizt
í hendur og þaðan í mat.
Þetta er ekki óalgeng sjón
þessa dagana. Fáklæddar konur
sleikjandi sólskin. En við birt-
um myndina vegna staðarins
sem hún er tekin á. Það er lík-
Iega skemmtilegasti sólstaður-
inn hér í nágrenni Reykjavíkur,
ekki Nauthólsvíkin, heldur
luaaeiuaaBaGiBi
Bakkavör vestur á Seltjarnar-
nesi.
Þar eru einhver ákjósanleg-
ustu skilyrði fyrir sóldýrkend-
ur sem um getur. Heitur sjór
gjálfrandi fáeina metra frá,
rennisléttar klappir til að liggja,
og engin umferð nema sú sem
stafar af fólkinu sem erindi
gerir sér í sólbaððið.
Við bendum hér með Iesend-
um á þennan sérkennilega stað
en biðjum jafnframt Seltiminga
velvirðingar á að ljóstra upp
um ieynistaðinn.
I I I I I I I ■ ■ I
Erfiðleðkar ferðamanna
vegna þ|ónaverkfalls
I |i rd I lii ■
Framh. af bls. 2
ir aðkomuliðið að vinna sigur í því
vígi, enda þótt vörn Akureyring'i
sé ekki upp á marga fiska. Hins
vegar má ,geta þess að nú mun
nokkur tími líða þar til næstu leik-
ir fara fram, og nægur tími gefast
til að lagfæra það sem kann að
skorta. Einnig að væntanlegur er
til Akureyrara Jakob Jakobsson
frá námi í Þýzkalandi, en eflaust
mun hann leika með liðinu og
reynast sami styrkur og undanfar-
in ár.
ísfirðingar eru nú fallnir úr 1.
deild nið(ur í 2. deild enda þótt 2
leikir séu eftir, en varla munu
þeir geta unnið leiki þá enda ei
liðið mun lakara en öll hin liðin
og hefur orðið fyrir miklum skakka
föllum, má geta þess t.d. að af
fastamönnum ísfirðinga í vor, eru
aðeins 4 eftir en hinir eru farnir
til atvinnu annars staðar þar ar
nokkuð margir á síldveiðar.
Dómari í leiknum var Karl Berg
mann og var of linur við að dærm
á nokkuð gróf brot, sem sáust a
og til, þó leikurinn væri prúður.
K. L.P.
irúarvígsla
Framh. af bls. 16.
kosta 3 milljónir króna og mun sú
áætlun nokkurn veginn standast.
Mælingar og teikningar af Fjalls-
árbrúnni gerðu verkfræðingarnir
1 Sigfús Örn Sigfússon og Björn Ól-
! afsson undir yfirumsjón Árna Páls-
i sonar yfirverkfræðings. Verkstjóri
við brúarsmíðina hefur verið Jónas
Gíslason og verkstjóri við vega-
gerðina að og frá brúnni Þorsteinn
Jóhannsson Svínafelli. Mestan veg
og vanda af flutningum á efni hef-
ur haft Hafsteinn Jónsson verkstj.
á Höfn í Hornafirði, svo og Krist-
ján Guðmundsson birgðavörður á-
haldahússins í Reykjavik.
NÍU ÁR ENN ÓBRÚAÐAR.
Enn eru eftir níu óbrúaðar ár á
Suðurlandsvegi í Austur-Skaftafells
i sýslu, en verða átta í haust, þegar
lokið ei smíði brúar yfir Reyðará
í Lóni. Sömuleiðis eru eftir óbrúað-
ar níu smáár og er því nokkurt
verkefni fram undan, en viðamest
þeirra verður þó ábyggilega smíði
brúar yfir Jökulsá á Breiðamerk-
ursandi, sem koma mun með tíð og
tíma.
Með brúnni á Fjallsá standa von-
ir til að Öræfingar geti í framtíð-
inm stytt ieið sína til kaupstaðai
úi 370 km í 120 km, bó örugg
ilutningaleið ti) Hafnai i Horna-
firði fáist fyrst, þegar brúin á Jök-
ulsá á Breiðamerkursandi hefur ver
ið byggð.
Þjónaverkfallið, sem nú stendur
yfir, veldur mörgum og leiðinleg-
um erfiðieikum. Einn sá versti er,
að það skuli koma niður á erlend-
um ferðamönnum, sem hafa lagt
fé og fyrirhöfn í að heimsækja
Iantí okkar. Þorri þeirra hefur þann
háttinn á, að dveljast aðeins nætur
langt á hóteli eða í einkahúsi, en
vill svo fá að snæða úti i bæ.
Verkfall þjónanna setur hins veg
ar strik í reikninginn núna, og
hafa ferðaskrifstofurnar og aðrir í
hlutverkum gestgjafanna verið í
mestu erfiðleikum með að verða
þessu fólki úti um sómasamlegan
matstað.
Reynt hefur verið að fá inni í
hótelunum, helzt Görðunum, en
það hrekkur að sjálfsögðu skammt.
Mörg innbrot en lítið býfi
Ajlmikið var um innbrot og smá
þjófnaði um síðustu helgi. Á laug-
ardagsmorgun var brotizt inn í af-
greiðslu Sameinaða gufuskipaíé-
lagsins við höfnina. Var peninga
kassi á skrifstofunni brotinn og
gereyðilagður og úr honum teknar
3 þúsund krónur.
Þá var einnig á laugardagsmorg-
un brotizt inn í kjötbúð á Sólvalla
götu 9 og tekinn úr búðinni harð-
fiskur tómatar og egg og var engu
líkara en að þjófurinn hefði verið
að búa sig undir útilegu. Hins veg-
ar var ekki snert við skiptimynt.
Á aðfaranótc laugardags og sunnu
daginh var m.a. brotizt inn í kjali-
araíbúð á Leifsgötu 23 og teknar
þar tvær áfengisflöskur, enn frem-
ur var brotizt inn fatapressuna
Venus á Hverfisgötu, en ekki var
hægt að sjá að neinu hefði verið
stolið þaðan.
Um helgina var enn fremur stol-
ið fveimur bílum og voru ölvaðir
menn að verki í bæði skiptin. Þeir
voru teknir skömmu eftir að þeir
höfðu tekið bílana, annar vegna
þess að tilkynnt hafði verið u:n
hvarf bílsins, hinn vegna grunsam-
legs aksturs.
Annar þessara bíla hvarf frá
húsi við Sólheima og var tilkynnt
um hvarf hans. Fann lögreglan bíl-
inn við Suðurlandsbraut. Hinn var
tekinn úr Hlíðunum og var honum
náð við Háaleitisbraut. Báðir men.i
irnir voru telinir og settir í gæzlu-
varðhald.
MoksíM —
Framh. af bls. 16.
Guðmundur Péturs 1300, Jón á
Stapa 1300, Jón Finnsson 1200, Sig
urður Bjarnason 1600, Þorleifur
Rögnvaldsson 1000, Hringsjá 1400,
Helga Björg 900, Baldvin Þorvalds
son 950, Sunnutindur 900, Helgi
Helgason 1000, Tálknfirðingur 900,
Vörður 500, Leifur Eiríksson 700,
Fróðaklettur 800, Guðbjörg ÓF
1100, Reynir VE 1200, Faxaborg
500, Skírnir 1700, Heimaskagi 500,
Arnfirðingur II. 1200, Hrönn II.
400, Auðunn 1900, Fagriklettur
1700, Víðir SU 1050, Sigurkarfi
1000, Vilborg 800, Guðfinnur 750,
Tjaldur SH 800, Áskell 800, Sigur-
fari AK 850, Sólrún 1150, Heimir
SU 600 tn. Þrámn NK 300 »mál,
Rán SU 600 tn. Glófaxi 700, Snæ-
fugl 600, Seley 200, Gullver 250,
Dóra 900, Álftanes 500, Heiðrún
1250, Haraldur 2000, Bjarmi 1000,
Snæfell 2000, Jökull 650, Hugrún
1000, Árni Geir 1000, Eldborg 1600,
Þórsnes 800, Sæfari BA 500, Skipa
skagi 1100, Hrafn Sveinbjarnarson
II 1000, Stapafell 700, Guðbjörg IS
1650, Guðmundur Þórðarson 1500,
Bragi 1100, Hilmir 1000, Andri
1000, Sigurfari VE 450, Heimir KE
800, Jón Jónsson 800, Baldur 900,
Freyja GK 950,. Hrönn HU 450,
Manni 850, Sæfaxi 1100, Helga RE
600, Náttfari 1000, Guðmundur á
Sveinseyri 400, Búðafell 350 tn.,
Kambaröst 600 tn., Björg NK 800,
Björg SU 300, Kristbjörg 1200, Ó-
feigur II. 900, Erlingur III. 900,
Muninn 400.
i
Til leign strax geymslu-
húsnæii 150 fermetra
i Hafnarstræti 1
ÞORVALDUR ARASON hdl.
SÍMAR 17453 og 16185
KIPAUTGCR0 RIKISINS
Skjaldbreið
i
fer til Óiafsvíkur, Grundarfjarðar
og Stykkishólms hinn 25. þ.m. —
Vörumótttaka á mánudag 23. þ.m.
Herðubreið
austur um land í hringferð hinn 26.
þ.m. Vörumótttaka á mánudag til
Hornafjarðar, Djúpavogs, Breiðdals
víkur, Stöðvarfjarðar, Mjóafjarðar,
Borgarfjarðar, Vopnafjarðar,
Bakkafjarðar Þórshafnar, Raufar-
hafnar og Kópaskers.
I