Vísir - 03.08.1962, Qupperneq 1
VtSIR Rekstrarspamaður —. hnnnr ninsnnnnn
52. árg. — Föstudagur 3. ágúst 1962. — 181 tbl. nuyur yjuau&iauu Þar sem spurzt hefur 1 argjöldin, þ.e. útsvörin. Þar verður i vegar I sparnaðinum, sem af þessu
Taka v/ð störfum hjá Eimskip
í morgun hitti Vísir tvo menn
að máli, sem eru í þann veg-
inn að taka við nýjum störf-
um hjá Eimskipafélagi íslands.
Það eru þeir Valtýr Hákonarson
(t.h.), sem um árabil hefir starf
að f þágu félagsins og Ásberg
Sigurðsson hdl. (t.v.). Valtýr
hefir verið skipaður skrifstofu-
stjóri Eimskipafélagsins. Val-
týr gegndi áður störfum sem
yfirmaður skrifstofu Eimskips
1 Kaupmannahöfn og er hann
fjölmörgum íslendingum að
góðu kunnur úr þvf starfi.
Við starfi forstjórans f Kaup-
mannahöfn tekur Ásberg Sig-
urðsson héraðsdómslögmaður
Við spjölluðum við þá félaga
góða stund í morgun og geng-
um niður á bryggju með þeim,
þar sem ljósmyndari Vísis tók
þessa mynd af þeim á hafnar-
bakkanum.
58 skip fengu afla
Sæmilegur afli var síðastliðinn
sólarhring, og höfðu 58 skip til-
kynnt afla. Flest höfðu þau veitt
út frá Skrúð eins og undanfarna
daga, eða 28 skip.
Veiðin var samtals 31550 mál
og tunnur. Veður var fremur hag-
stætt á síldarmiðunum, en þó var
enn norðaustan kaldi og þokusúld
á norðursvæðinu.
Seyðisfjörður:
Til Seýðisfjarðar barst mesta
magnið, 18.400 mál og tunnur. Fer
allt það magn í. bræðslu. Allar
þrær f Seyðisfjarðarverksmiðj-
unni eru nú fullar og látlaus
straumur bátanna inn á höfnina.
Togararnir frá Reykjavík eru
stöðugt í síldarflutningunum og
auk þeirra erlendu flutningaskipin
Una, Stokkvík, Askja o. fl,
Siglufjörður:1
Til Siglufjarðar 'hefur 21 skip
tilkynnt um afla samtals 7700 mál
og tunnur. Öll þessi síld fer í sölt-
un og frysti. Er hún mjög stór og
feit. Veiddist hún 30 mílum NNA
af Siglufirði.
Raufarhöfn:
10 skip með 5700 mál og; tunnur
hafa tilkynnt afla sinn til'Raufar-
Framh. á 5. síðu.
að innan tíðar verði sett
á fót stofnun sem sér
um innheimtu allra
hinna föstu opinberu
gjalda, hefur blaðið snú-
ið sér til Guðmundar
Vignis Jósefssonar lög-
fræðings, er ráðinn hef-
ur verið sem forstjóri
þessarar nýju stofnunar.
1
Guðmundur Vignir hefur starfað
undanfarin ár sem fulltrúi borgar-
verkfræðings, og hefur haft aðset-
ur sitt í borgarskrifstofunum í
Skúlatúni. Þar náðum við f hann
og fræddi hann okkur um þessa
nýju stofnun.
Samkvæmt lögum
— Á síðasta Alþingi voru sam-
þykkt lög, sagði Guðmundur, sem
veittu heimild um sameiginlega
innheimtu opinberra gjalda á grund
velli samvinnu milli ríkisins, borg-
arinnar og sjúkrasamlagsins.
1 samræmingu og í áframhaldi
af þessari lagasetningu var komið
á fót sameiginlegri innheimtustofn-
un, sem fékk nafnið „Gjaldheimtan
í Reykjavík“. Mun hún taka til
starfa, þegar álagning opinberra
gjalda, skatta og útsvara kemur til
framkvæmda, væntanlega í síðari
hluta ágústmánaðar.
— Hvaða gjöld eru það, sem
verða innheimt þarna hjá ykkur?
Þau gjöld eru þrenns konar. I
fyrsta lagi svokölluð persónugjöld,
sem tollstjóri hefur innheimt, s.s.
þinggjöld, tekjuskattur, eignaskatt-
ur, námsbókagjald, kirkjugjald,
kirkjugarðsgjald og almenn trygg-
ingarsjóðsgjöld. Einnig lífeyris- og
slysatryggingargjöld, atvinnurek-
endagjöld og atvinnuleysistrygging
ingarsjóðsgjöld.
í öðru lagi verða innheimt borg-
gjald, sem nú kemur í stað veltu-
útsvarsins. Eftir áramótin verða
síðan fasteignagjöldin innheimt
þarna.
I þriðja lagi verða innheimt
sjúkrasamlagsgjöld.
— Með öðrum orðum öll meiri
háttar gjöld?
— Já, öll hin föstu gjöld, sem
alltaf eru lögð á borgarana, hins
vegar ekki gjöld eins og lóðargjöld,
sem eingöngu eru lögð á þá ein-
staklinga, sem lóðir eiga.
Tilgangur
stofnunarinnar
— Og hver er aðal tilgangurinn
með stofnuninni?
— Hann felst í tvennu, annars
Framh á bls. 5.
fiaiayasia —
nýtt sfiinbandsríki
í frétt frá Kuala Lumpur á Mal-
akkaskaga segir, að fyrir lok ág-
ústmánaðar 1963 verði stofnað
nýtt sambandsríki — MALAY-
ASIA, -
eða að loknum samkomulags-
umleitunum milli Malajaríkjanna
og Bretlands. ÖIl plögg hér að lút-
andi á að undirrita og staðfesta
innan misseris. — í hinu nýja
sambandsríki verða 10 milljónir
manna.
Aðild Breta að EBE
enn í sömu óvissu
Allt er enn óvíst um samninga
Breta og EBE um megindeiluefnið,
sem leysa þarf til þess, að af geti
orðið aðild Bretlands að bandalag-
inu: Að samkomulag náist Um
markað fyrir landbúnaðarafurðir
Kanada, Ástralíu og Nýja Sjá-
lands. Heath, brezki ráðherrann,
Iagði fram nýjar tillögur á ráð-
herrafundi EBE í Briissel í gær-
kvöldi.
Hann kvað það álit sitt og stjórn
ar sinnar, að með því að sam-
þykkja þær næðist samkomulag,
sem allir gætu við unað.
Sérfræðingum ráðherranefnd
arinnar voru fengnar þessar
tillögur til athugunar. Er nú
beðið eftir niðurstöðum af
þeirri athugun, en menn óttast
sem fyrr, að samkomulag kunni
að stranda á Frökkum.
Hitt er svo annað mál, að sam-
komulag hefur náðst varðandi 30
lönd og landsvæði, þar sem Bretar
fara með stjórn, og eru þar með
taldar brezkar nýlendur, en þetta
samkomulag nær ekki til sjálf-
stjórnarlanda í brezka samveldinu.
Þá hefur náðst samkomulag um
markað fyrir afurðir frá þremur
Asíulöndum, sem eru í brezka
samveldinu, Indlandi, Pakistan og
Ceylon, og er það mikilvægt fyrir
þessi lönd, að þetta samkomulag
náðist, en það var aldrei búizt við,
að ágreiningur um afurðir þessara
landa yrðu til hindrunar aðild
Breta að EBE. Þess má geta, er um
þetta er rætt, að te er aðalútflutn-
ingsvara frá Ceylon og eftirsótt í
Frakklandi og öðrum sammarkaðs-
löndum.
Þurrir dagar / Reykjavík,
00 víSa óþarrkur SV-laads
Lítið sem ékkert hefur náðst
inn af vel verkuðu heyi þar sem
til hefur spurzt sunnan lands og
suðvestan, þar sem stöðugt hefur
gengið á með skúrum í heilum og
hálfum sveitum, þótt sólar hafi
notið á milli. Talsvert hefur þó
verið hirt sums staðar af fremur
illa verkuðu heyi og meira en venju
lega sett í vothey svo snemma
'sumars.
Víða hefur rignt því meira sem
nær dregur fjöllum, en óvíða munu
Hafa verið þurrir eða nær þurrir
dagar eins og í Reykjavík undan-
gengna daga. Óþurrkarnir hafa orð
ið til stórbaga víða austan fjalls
og eins í uppsveitum Borgarfjarð-
arhéraðs, en eitthvað skárra vest-
ur um Mýrar og Snæfellsnes, og
vantar þó þurrk þar bagalega all
vlða. — Víða rættist allvel úr með
sprettu, en vegna óþurrkanna
kvarta menn ekki lengur yfir, að
lítið spratt í vor og snemma sum-
ars.
Norðan lands hefur gengið betur
að þurrka hey, en töðufengur með
minnsta móti víða norðaustan lands
vegna kals £ túnum, sem var þar
mjög mikið víða, svo sem fyrr hef-
ur verið getið í fréttum.
Ástandið að þvi er heyþurrkun
varðar er þannig miklu betra norð-
an lands en sunnan lands og vestan
en þótt horfur séu býsna alvarleg-
ar þar sem verst er, vona menn
enn að úr rætist, þar sem venju-
legur heyskapartími er ekki hálfn-
aður.
Somkomulog nóðist í Alsír
— Bouiaf í stfórnarnefndmni
Samkomulag hefur náðst milli
leiðtoga serkneskra þjóðernissinna
í Alsfr.
Samkvæmt því verður þjóðarfor-
ystan fram yfir kosningamar 27.
ágúst I höndum Ben Bella og
stjórnarnefndarinnar, — en Ben
Khedda heldur titli slnum sem for-
sætisráðherra bráðabifgðastjórnar-
innar, þar til hún fer frá að lokn-
um kosningum eða I byrjun sept-
ember.
Það er litið svo á, að þessi úrslit
séu sigur fyrir Ben Bella — en
hann hefur þó orðið að sætta sig
við að Boudiaf varaforsætisráð-
herra, sem hermenn hans hand-
tóku á dögunum en urðu svo að
sleppa, tekur sæti I stjórnarnefnd-
inni.
Boudiaf kveðst gera það
vegna einingar þjóðarinnar og
til öryggis því, að ekki verði
stafnað til einræðis í landinu.