Vísir - 09.08.1962, Qupperneq 9
Fimxntudagur 9. ágúst 1962.
V'lSIR
9
bylting í fj arskiptatækni
Andover og á skerminn sáust
síðan letruð orðin: Fyrstu
myndimar frá Telstar. Síðan
kom Mr. Kappel fram og flutti
nokkur ávarpsorð í tilefni þessa
viðburðar. Þá var sýnd mynd
frá sendistöðinni í Andover og
skýrt með myndum af Telstar,
hvernig þessum tæknilega á-
fanga hefði verið náð. Þegar
þessu var lokið hafði Telstar
færst svo langt austur yfir
Atlantshaf að sambandið slitn-
aði.
Þessum fyrstu myndum var
jafnskjótt sjónvarpað um öll
sjónvarpskerfi Bretlands og
Evrópu og kom nú í ljós, að
Frakkarnir höfðu haft betur í
fyrstu lotu, því að myndirnar
voru óskýrar og strikóttar í
Bretlandi, en skýrar á megin-
landinu. En þegar næsta tilraun
var gerð í sjöundu umferð Tel-
star kringum jörðina höfðu
Bretarnir stillt tæki sín betur
og var sjónvarpsmyndin nú full
komlega eins skýr og venjulegt
sjónvarp .
En vegna ferðar gervitungls-
ins um himininn myndi þurfa
þrettán slík gervitungl í 13
þúsund km hæð til þess að geta
haldið uppi stöðugum sjónvarps
sendingum.
Áður en til þess kemur getur
Mr. Kappel og Bell símafélagið
hans verið búin að fá harða
samkeppni.
Þvl að tvö önnur stórfyrir-
tæki i Bandarfkjunum eru að
vinna að sínum hugmyndum um
alheimssjónvarp.
Það eru fyrirtækin RCA og
Hughes Company.
RCA er vel þekkt um allan
heim. Það hefur frá upphafi
staðið í fararbroddi í sjónvarps
nýjungum. Það hóf fyrst allra
reglulegar sjónvarpssendingar
og nú hefur það um langt ára-
bil unnið að því að fullkomna
sjónvarp í eðlilegum litum.
Gervitungl það sem RCA vinn
ur að kallast „Relay“ og má
þýða sem „endurvarp“. Það á
að vera tilbúið í haust og verð
ur þá skotið upp. Relay vinnur
samkvæmt sömu lögmálum og
Telstar, en verður fullkomnara
og öflugra til sjónvarpssendinga
þar sem það verður eina hlut-
verk þess meðan Telstar hafði
ýmsan annan útbúnað til fjar-
skipta.
í þriðja lagi kemur sjónvarps
kerfi það sem Hughes Company
vinnur að og er með öðrum
hætti en kerfi hinna félaganna.
JLTughes er ekki mikið þekkt
fyrirtæki utan Bandaríkj-
anna. En upphaflega var þetta
flugvélaverksmiðja. Eigaipdi
þess var hinn frægi flugmaður
og milljónamæringur Howard
Hughes sem átti mikinn hluta
risaflugfélagsins Trans World
Airlines og Lockheed flugvéla-
verksmiðjuna. Á stríðsárunum
stofnaði hann fyrirtækið Hugh-
es Aircraft Company, sem
skyldi vinna að nýjungum í
flugvélasmíði. Þá smíðaði það
m.a. stærstu flugvél sem nokk-
urntíma hefur verið gerð í heim
inum, risaflugbátinn Mars, sem
hóf sig þó aðeins einu sinni
til flugs.
Siðan hefur Hughes snúið sér
að smíði eldflauga og lagt sinn
skerf af mörkum til smíði geim
skipa. Það er út frá því sem
þetta fyrirtæki er nú að undir-
búa nýtt kerfi alheims^jón-
varps, sem er frábrugðið hug-
myndum hinna tveggja, og hef-
ur því verið gefið nafnið Syn-
com.
sæir, þegar borið er saman við
Telstar. Sé gervitunglið á sín-
um fasta stað yfir miðju Atlants
Maðurinn, sem fyrstur kom fram í Telstar-sjónvarpinu,
Frederick Kappel framkvæmdastjóri bandariska símafélags-
ins AT & T, sem átti hugmyndina að því að nota gervitungl
til að senda sjónvarp milli heimsálfa.
Samkvæmt því er meiningin
að skjóta „Syncom" gervi-
hnetti upp í 36 þúsund kíló-
metra fjarlægð frá jörðu eða
nærri þrisvar sinum fjær yfir-
borði jarðar en gervitungl hinna
kerfanna. Þar er ætlunin að
tunglið hafi 10 þús. km. hraða
á klst. og snúist í sömu átt og
jörðin sjálf. Kjarninn í þessari
hugmynd er sá ,að Syncom
gervitunglið fylgi svo nákvæm-
lega eftir snúningi jarðar að það
haldist stöðugt á sama stað á
himninum. Kostir þessa eru auð
hafi, þá yrði stöðugt hægt að
senda sjónvarp milli álfanna.
TArðið „Syncom“ þýðir í raun-
inni aðeins þetta eðli gervi
tunglsins, að ferð þess sé „sam-
ræmd" snúningi jarðarinnar. Og
þannig myndi gervitunglið
verka eins og geysilega há sjón-
varpsstöng, örugg og alltaf á
sínum fasta stað, hundrað sinn-
um hærri en Eiffelturninn eða
spíran á Empire State skýja-
kljúfnum í New York.
Syncom er í það mikilli hæð,
að sjónvarpsbylgjurnar frá hon-
um myndu ná greiðlega til ]/3
hluta jarðarinnar. Til þess að
gera alheimssjónvarpið að veru-
leika þyrfti aðeins að setja
þrjár slíkar stöðvar á sporbraut
í kringum jörðina.
Það er áformað að skjóta
Syncom gervitunglinu á Ioft
á næsta ári 1963. Og ef þá
tekst vel til er ekki ólíklegt að
þrír hnettir af Syncom tegund
verði komnir upp á himininn ár-
ið 1964. Sendistöðvarnar í þeim
eru svo miklu öflugri en í Tel-
star, að hugsanlegt er að sjón
varp frá þeim sjáist á móttöku-
tækjum um allan heim án sér-
stakra móttökustöðva. Þá gæti
jafnvel ræzt sú hugmynd, sem
virzt hefði ótrúleg fyrir nokkr-
um árum, að hægt verði að
senda sjónvarp frá Olympíleik-
unum f Tókyó um gervalla ver-
öld.
Það er þegar búið að ákveða
staðsetningu Syncom gervihnatt
anna þriggja. Þeir eiga allir að
vera yfir Miðjarðarbaug. Sá
fyrsti yfir eyjunum Baker og
Howland í miðju Kyrrahafi, ann
ar yfir Malabar eyjum í Ind-
landshafi. suður af Indlandi og
sá þriðji yfir eynni St. Paul úti
í miðju Atlantshafi milli Brasi-
líu og Afríku. Einu byggðu
landssvæðin sem yrðu utan
dragvíddar sendistöðvanna með
þessum hætti yrðu nyrsti hluti
Skandinaviu og Norður Græn-
land.
Cyncom gervihnötturinn myndi
^ þannig hafa gerbyltingu í
för með sér, en ekki aðeins á
sviði sjónvarps, heldur líka og
ekki síður, á sviði allra fjar-
skipta. Þar er um svo stórkost-
lega byltingu að ræða, að menn
eru farnir að spyrja sjálfa sig,
hvort allar hinar miklu síma-
línur og sæsímar milli landa
verði ekki algerlega óþarfar. —
Gervihnötturinn Telstar gat tek
ið samtímis á móti og sent á-
Framh. á 13. síðu.
minnti á þann sögufræga at-
burð fyrir meir en hálfri öld,
þegar italski uppfinningamaður-
inn Marconi hafði látið reisa
fyrstu loftnetsstengurnar á ír-
landi og Nýfundnalandi og
sendi fyrstu loftskeytin yfir
Atlantshafið. Allir viðstaddir
gerðu sér það enn ljóst, að hér
var að gerast sögulegur við-
burður. Ef þessar tilraunir
gengju vel gat þetta þýtt upp-
haf alheims-sjónvarps.
En þarna var við ýmsa erfið-
leika að stríða. Fyrst og fremst,
að aðeins var hægt að senda
sjónvarpsefni, stutta stund í
einu, meðan Telstar gervitungl-
ið væri yfir miðju Atlantshafi.
Gervihnötturinn hélt áfram
sinni hröðu ferð umhverfis jörð
ina og í hverri umferð var að-
eins hægt að nota hann um
hálftíma til útsendinga.
■fjað var loks í sjöttu umferð
hans kringum jörðina sem
fyrsta tilraunin var fram-
kvæmd. Fyrst fór fram útsend-
ing frá Bandaríkjunum til Evr-
rópu. Stjórnendur móttöku-
stöðvanna í Bretlandi og Frakk
landi ýttu á hnappa og allt í
einu sást mynd á sjónvarps-
skerminum. Það var bandaríski
fáninn, sem blakti á þeirri
stundu yfir sendistöðinni í
Sjónvarpssendingin sást skýrt á sjónvarpstækjum hvarvetna í Vestur-Evrópu. Þessi mynd var tekin í Rómaborg á heimili
kvikmyndaleikkonunnar Ginu LoIIobrigidu, þar sem hún horfir hrifin á samtíma sjónvarpssendingu af blaðamannafundi
Kennedy forseta úr Hvíta húsinu I Washington.
/