Tölvumál - 01.12.1992, Síða 5
Desember 1992
Frá formanni
Halldór Kristjánsson, formaður SÍ
Deilum byrðunum
Þegar þetta er ritað er nýtt ár að
renna í hlað. Árið sem er að
líða hefur verið mörgum okkar
gott en öðrum erfitt. Vaxandi
atvinnuleysi setur mark sitt á
þjóðfélagið og minnkandi
þjóðartekjur segja til sín, jafnt í
tölvugreininni sem í öðrum
þjónustugreinum. Mikilvægt er
að gæta ýtrustu hagsýni og draga
úr kostnaði þar sem hægt er.
Miklu skiptir í því samhengi að
hafa í huga mikilvægi þess að
hver einstakur fái haldið atvinnu
sinni. Til fyrirmyndarer, sem gert
hefur verið í einstaka fyrirtæki,
að starfsmenn hafa stytt vinnu-
tírna sinn til þess að ekki þurfi að
koma til uppsagna samstarfs-
manna. Með því koma starfs-
menn til móts við þarfir atvinnu-
rekenda um að draga úr kostnaði
meðan erfiðleikarnir líða hjá og
skipta jafnt með sér byrðunum
af samdrættinum.
Upplýsingatækni
vaxtarbroddur
Fáar greinar hafa vaxið jafn hratt
a liðnum árum og tölvu- og upp-
lýsingatæknigreinin. Nú stefnirí
samdrátt um hríð og jafnvel
afturför. Þá er nauðsynlegt að
leila nýrra leiða og markaða til
þess að halda áfram þeirri upp-
byggingu sem átl hefur sér stað
og nýta þá þekkingu sem byggð
hefur verið upp í góðæri undan-
farinna ára. Ánægjulegt er að sjá
hversu rnikið af smáum fyrir-
tækjum hefur haslað sér völl á
sviði litflutnings á hugviti á
upplýsingatæknisviði á liðnum
tveimur til þrernur árum. Önnur
eru á þröskuldinum en skortir
tilfinnanlega áhættufé til þess að
stíga lokaskrefið.
Áhættufé vantar
Það er samdóma álit þeirra senr
eru að vinna að þessum málum
að þeir mæti miklu skilningsleysi
hjá þeim sem ráða yfir sjóðum
og áhættufé. Þeir vilji fremur
leggja það í verslun, franrleiðslu
á matvælum, fiskeldi eða aðra
álíka starfsemi. Varpa má fram
þeirri spurningu hvort ekki hefði
verið betur varið í upplýs-
ingatækniiðnaði, hluta af því fé
sem fór til fiskeldisins? Hvar
værum við stödd núna ef 1 - 2
milljarðarhefðu fengist áliðnunr
þremur árum?
Skýrslutæknifélagiö
25 ára árið 1993
Félagið okkar fyllir aldar-
fjórðung í apríl 1993. Áþessum
25 árum höfurn við verið þátt-
takendur í mestu tæknibyltingu
heimssögunnar sem hefur ekki
aðeinsbylttækninniheldureinnig
þjóðfélögum og skipulagi heims-
ins. Ég held að fæstir geti
ímyndað sér hvernig þjóðfélag
okkar og heimsmynd væri nú ef
ekki hefðu kornið til hinar
stórstígu framfarir í upplýsinga-
ogfjarskiptatækni. Hefði sáandi
frelsis og friðar sem farið hefur
um heiminn á liðnum árum nokk-
urn tímann orðið að veruleika?
Ég efasl um það.
Skýrslutæknifélagiö í
forystu
Á þessum 25 árum hefur félagið
okkar oftast verið í forystu um
að kynna nýjungar og ýta undir
bætt vinnubrögð. Ráðstefnur,
námskeið, fundir og útgáfa
Tölvumálahafaveriðmikilvægir
þættir í þessu skyni en mikil-
vægust eru þó þau kynni sem
takast á milli félagsmanna fyrir
tilstuðlan þeirra atburða sem eru
á vegurn félagsins.
Allsherjarvettvangur
á upplýsingatækni-
sviði
Á liðnum árum hafa fleiri félög
farið inn á svipaða braut og
Skýrslutæknifélagið, þó flest
þeirra starfi á ákveðnu sérsviði
upplýsingatækninnar. Það er vel
að fleiri taka á. Fjölbreytnin í
upplýsingatækninni er slík að
okkur er ókleift að gera því öllu
viðhlítandi skil á vettvangi fél-
agsins. Stjórnir félagsins hafa á
liðnum árum lagt áherslu á að
félagið sé allsherjarvettvangur
fyrir þá sem að upplýsingatækni
starfa og hefur það að mínu mati
tekist vel. Leitað hefur verið
samstarfs við félagið um fjöl-
mörg mál sem til heilla horfa og
við höfum á sama hátt haft frum-
kvæði á fjölmörgum sviðum.
Erlent samstarf
mikilvægt
Með þátttöku okkar í alþjóða-
samtökum Skýrslutæknifélaga
skapast ómetanleg tengsl við það
5 - Tölvumál