Tölvumál - 01.12.1992, Side 6
Desember 1992
sem er að gerast umhverfis okkur
og oft verða til tækifæri sem
annars ræki ekki á fjörur. Að
mínu mati mætti gera þessum
þætti meiri skil því ég held að
við getum víða náð fótfestu með
að nota okkur slík samtök og þau
kynni sem þar takast.
Fagráö í
upplýsingatækni
Á haustdögum var stofnað
Fagráð í upplýsingatækni en það
er samtök félaga og fyrirtækja
sem vilja að stuðla að staðla-
gerð og notkun staðla í víðtæk-
um skilningi. Skýrslutækni-
félagið er stofnfélagi Fagráðs og
var einn fulltrúi félagsins kosinn
í stjórn. Aðrir stjórnarmenn eru
flestir félagar í Skýrslutækni-
félaginu þó þeir séu ekki í stjórn
Fagráðs sem fulltrúar þess.
Það sem helst háir starfi Fagráðs
er fjárskortur. Erfitt er að sækja
fé í sjóði og treglega gengur að
fá félagasamtök og fyrirtæki til
þess að leggja fram fé. Allir eru
þó sammála um að Fagráðið
hafi farið vel af stað og hlutverk
þess sé mikilvægt. Stjórn Fag-
ráðsins hefur sett sér það mark-
mið að aðeins verði ráðist í
verkefni sem búið er að tryggja
fjármagn til. Umfang stöðlunar á
upplýsingatæknisviði ræðast því
af velvilja þeirra sem að Fag-
ráðinu standa svo og af þeim
framlögum sem fást úr sí-
minnkandi fjárhirslu hins opin-
bera.
Tölvuoröasafn og
oröabók SÍ
Sama má raunar segja urn end-
urskoðun og útgáfu okkar á
Tölvuorðasafni og/eða -orðabók
félagsins. Stjórn hefur, ísamráði
við Orðanefnd, ákveðið í tilefni
af 25 ára afmæli félagsins að gefa
út Tölvuorðasafn á árinu og
veglega Tölvuorðabók svo fljótt
semverðamá. Þegarhafafengist
loforð um 500 þúsund krónur til
verksins, auk aðstoðar við töl vu-
vinnslu, en mun meira þarf lil ef
þessi draumur okkar á að verða
að veruleika.
Oþarfi er að hafa mörg orð um
mikilvægiþessaverks. Ekkiþarf
annað en að hlusta á mæli ungs
fólks til þess að skynjamikilvægi
eldri orðasafna sem gefin hafa
verið út. Eg efast um að aðrar
greinarhafijafnrækilegaíslensk-
að orð og hugtök.
Engu að síður eru enn til
enskuslettur og notkun þeirra er
ekki að fullu útrýmt. Ef til vill
væri það leið til fjáröflunar fyrir
Orðabókarsjóðinn að innan
sérhvers fyrirtækis verði settur
upp baukur og starfsmenn
skikkaðir til þess að greiða 10
krónur fyrir hverja enskuslettu
sem þeir láta sér um munn fara!
Að leiðarlokum
Ég vil þakka félagsmönnum
Skýrslutæknifélagsins fyrir sam-
starfið á liðnu ári og óska þeim
allra heilla á nýju ári. Ég hefi nú
verið formaður félagsins í fjögur
ár og átt því láni að fagna að eiga
gott samstarf við félagsmenn og
verið ákaflega heppinn með það
að til stjórnarstarfa á þessum árum
hefur valist úrvalsfólk. Það
einkennir félaga okkar, öðru
fremur, að þeir skorast ekki undan
þegar leitað er eftir stuðningi
þeirra við góð mál. Ég treysti
því að svo verði áfram.
Punktar...
Háir
símreikningar
Þeir sem sóttu ráðstefnu um
víðtengd tölvunet, aflvaka
framfara heyrðu einn fyrir-
lesara segja frá því að
notendur Irnbu á Kópaskeri
kvörtuðu undan háum
símreikningum. Og þeir
notendur voru innanlands.
Með tilkomu sífellt fleiri
gagnabanka þá aukast rnögu-
leikarnir. Víða erlendis eru
gagnabankar sem bjóða upp
á spennandi leiki eða mögu-
leika á að ná í ýmis forrit.
Til að komast í samband
við þessa gagnabanka þá
þarf annaðhvort að hringja
beint eða nota Gagnanetið.
Allir þekkja hvað kostar að
hringja til útlanda og vita að
ekki þarf að vera tengdur
lengi til að símreikning-
urinn verði hár.
Með aðstoð Gagnanetsins
er hægt að hafa samband
við erlenda gagnabanka á
mun ódýrari hátt. En fyrir þá
sem eru mjög áhugasamir,
geta til dærnis þeir tölvu-
leikir þar sem hægt er að
leika viðmargaíeinu, verið
varasamir. Ástæða er fyrir
þá sem greiða reikninga að
fygjast vel með. Heyrst
hefur af foreldrum sem hafa
fengið reikninga upp á
nokkur hundruð þúsund.
Þessa reikninga hafa þeir
orðið að greiða.
6 - Tölvumál