Tölvumál - 01.12.1992, Blaðsíða 7
Desember 1992
Fjartengd tölvunet
Helgi Pórsson, Reiknistofnun Háskólans
Byggt á erindi semflutt var á ráöstefnu SÍ wn víðtengd tölvunet, 5. nóvember s.l.
Nútímaskilninguráorðinutölvu-
net er að tvær eða fleiri tölvur,
sem gætu unnið sjálfstætt, séu
samtengdartil þess aðaukanota-
gildi vélbúnaðar, hugbúnaðar
eða gagna. Slík tölvunet opna
nýj a möguleika á vinnsl u auk þess
að breyta eldri vinnubrögðunt.
Gamla munstrið, þar sem skyn-
lausir skjáir eru útstöðvar við
miðtölvu, er ekki tölvunet í þess-
um skilningi. Við getum kallað
slíka uppsetningu skjánel, og
talað um fjarvinnslu ef unnið er
yfir símalínur.
Tilgangur lölvunetanna var í
árdaga að samnýta dýr jaðartæki.
Samnýting prentara, hugbún-
aðarsafna og skráa senr margir
lesa eru al 11 augljós hagræðingar-
atriði á störfum sem annars væru
unnin á annan hátt. Eðlilegt
framhald er að margir geti skrifað
í sömu skrár með fjölnotenda-
hugbúnaði á neti.
Síðan kemur miðlara- biðlara-
vinnsla, þar senr forrit á tveimur
tölvum vinnahvort sinn verkhluta
og skiptast á þeim skilaboðum
sem þarf vegna vinnslunnar. I
þennan flokk fellur dreifð gagna-
safnsvinnsla og tölvupóstur þar
sem forrit á hverri tölvu taka við
pósti notandans frá póstmiðlara
sem flokkar póstinn og skilar
honum áfram. Nolandinn hefur á
sinni tölvu forrit senr býr póst til
sendingar og les úr skeytum sem
koma. Pósturinn getur verið
einföld skilaboð í textaskrá,
gagnaskrá fyrir ritvinnslu eða
töflureikni, eða stafræn hljóð og
myndir.
Mörg þeirra verka sem unnin eru
á tölvunetum mætti hugsa sér að
vinna á miðtölvu, en þróunin
hefur hagað því þannig að svo
varð ekki í verulegunr mæli.
Þegar horft er um öxl er ljóst að
þessi þróun var ekki tilviljun.
Stórtölvur reyndust ekki heppileg
tækni til þess að að leysa ýmis
verk sent menn höfðu þó séð
fyrir sér að væri eðlilegt að vinna
í tölvu, tími tölvunetanna var
kominn. Til dæmis um verk sem
skynlausir skjáir valda illa er að
það þarf mjög greiða leið milli
tölvunnar og skjásins tii þess að
uppfæra skjámyndir eins ört og
gert er í venjulegri ritvinnslu, en
það er best gert með því að hafa
tölvuna sent býr til skjámyndina
mjög nálægt skjánum.
Tölvunet geta verið staðarnet,
þá eru tölvurnar tengdar með
búnaði sent menn leggja, sjálfir
eða með aðstoð rafvirkja, innan-
hússeðamilli nærliggjandi húsa.
Staðarnet eru oft svo hraðvirk
að þau eru nánast framlenging á
tengibrautinni inni í tölvunni og
notandinn verður varla var við
mun á svartíma, hvort sem gögn
er sótt á diskinn hans, yfir í næsta
herbergi eða á næstu hæð.
Með fjartengdum tölvunetum er
átt við nettengingu tölva, eða
samtengingu heilla staðarneta,
sem eru það langt hvert frá öðru,
að leita þarf liðsinnis Pósts og
síma við tenginguna. Þegar vel
tekst til erekki sýnilegurmunur á
staðarneti og fjartengdu neti fyrir
notandann. Þó þarf ævinlega við-
bótarbúnað, auk þess sem sam-
skiptahraði á fjartengdu neti er
minni en á staðarneti, sem verð-
ur lil þess að ekki er raunhæft að
vinna ýnris verk í fjartengingu
þótt það væri tæknilega mögu-
legt.
Nefnamáfáeinargerðirtölvuneta
sent náð hafa verulegri út-
breiðslu. Decnet var notað til
þess að tengja saman Vax tölvur
á blómatíma þeirra og hefur verið
útvíkkað þ.a. tölvur af öðrunr
gerðum geta tengst því.
Macintosh net voru notuð í fyrstu
tilþessaðsamnýtadýrjaðartæki.
Pc netin: Novell ogLAN Manager
hafa verið í mikilli þróun og eru
notuð fyrir æ flóknari verkefni.
Staðlar úr Unix heiminum, eink-
um TCP/IP, eru notaðir til þess
að tengja Unixtölvur, fjölnot-
endavélar og einmenningstölvur,
bæði í staðarnet og í fjarteng-
ingu. Þessir staðlar eru opnir
öllum og búnaður fæst frá mörg-
um framleiðendum þannig að
ekki er unnt að kenna þessa net-
gerð við ákveðinn framleið-
anda. Islenska menntanetið er af
þessari gerð.
Öll ofantalin net geta byggt á
Ethernet tengingum fyrir stað-
arnet, en geta líka notað aðrar
tengingar. Fjartengingar geta
verið yfir leigulínur, X.25 eða
upphringilínur og nú er háhraða-
net Pósts og síma að komast í
gagnið nreð aukna flutningsgetu
og hraða.
Búnaður fyrir ljartengingar er
misjafnlega dýr eftir því hvernig
tengingervalinoghvernigbúnað
er verið að tengja.
7 - Tölvumál