Tölvumál - 01.12.1992, Qupperneq 13
Desember 1992
Póstur og sími
Gagnaflutningsdeild
Háhraðanet Pósts og síma 1992
Mynd 2.
tíðarkerfi eina eða fleiri
af þeim lausnum, sem
áður var lýst. Það hefur
verið ályktað að ekki
sé enn komin þörf fyrir
ISDN, en hins vegar er
líklegt að það verði
innleitt hér á landi, ef
reynslan af þeim sam-
netum, sem nú eru komin
í notkun erlendis verður
góð. Verði það ofan á
má síðan búast við að
framhaldið verði breið-
bandssamnet eða B-
ISDN. Einsogútlitiðer
mundi þetta jafnframt
leiða til notkunar ATM
sem flutningsmiðils.
Stofnunin verður að
nokkru leyti vel undir
þetta stig búin eftir að
lögn ljósleiðarahringinn
um landið lýkur og með
mikilli flutningsgetu til
útlanda um nýja sæ-
strenginn Cantat-3, sem
lagðurverður1994.Inn
í þessar vangaveltur
hlýtur síðan að koma
spurningin, hvort nauð-
synlegt reynist að setja
upp net samkvæmt
QDQB staðlinum eða
með rammasendingum
í þeim tilgangi að brúa
bilið yfir í ATM.
Þegar leitað er svara við þessum
spurningum, liggur ef til vill
beinast við að spyrja notendur,
hvernig þeir sjá þarfir sínar í
framtíðinni. T.d. er óljóst að
hversu miklu leyti er þörf fyrir
breiðbandsnet með bitahraða
yfir 8 Mb/s. Margir telja að slík
net verði ekki rekin með hagnaði
nema til komi myndflutningur í
verulega auknum mæli frá því
sem er í dag. Ein hugsanleg
notkun, sent þegar hefur verið
kynnt á sýningum erlendis, er
margmiðlun (Multimedia) þar
sem blandað er saman tali,texta
og myndum á 622 Mb/s sam-
böndum. Það er vel hægt að
hugsa sér gagnsemi slíkra
sendinga fyrir t.d. kennslu,
heilbrigðisþjónustu og mynd-
símafundi, en óljósl er hvað
notendur vilja greiða fyrir
þjónustu af þessu tagi.
Vandi símastjórna er sá að
grunnnet með mikilli bandbreidd
eru dýr í stofnkostnaði, en
notendur vænta þess engu síður
að með meiri bandbreidd í
flutningskerfunum lækki gjöldin
hlutfallslega. Spurningin verður,
hversu mikið þarf að lækka
gjöldin til þess að fá notendur til
að nýta alla þá bandbreidd, sem
nýju stafrænu fjarskiptanetin
bjóða upp á. Þannig verða helst
að haldast í hendur aukin notkun
og lækkuð gjöld, sem engu að
síður verða að standa undir
tilkostnaði. I umhverfi EES,
verður ekki auðvelt að færa til
fé milli mismunandi þjónustu og
þær kröfur verða gerðar æ meira
að hver þjónustugrein standi
undir sér og gagnaflutningur getur
ekki verið undantekning þar á.
13 - Tölvumál