Tölvumál - 01.12.1992, Blaðsíða 23
Desember 1992
Grófir og ósæmilegir tölvuleikir fordæmdir
Anna Kristjánsdóttir, varaformaður SÍ
Stjóm Intemational Federation for
Information Processing (IFIP)
samþykkti á fundi sínum í haust
að senda öllum aðildarfélögum
eftirfarandi ályktun austurríska
skýrslutæknifélagsins:
"Tölvuleikir eru meðal mest
notuðu tölvuforrita, einkurn hjá
börnum og unglingum. Slíkforrit
hafa margvíslega kosti. Með
þeim er hægt að vekja unga leik-
endursnemmatil umhugsunarum
fjölmargt það sem einkum hefur
verið talið viðfangsefni ung-
lingsára, svo sem þjálfun í hugsun
og einbeitingu, rökhugsun,
sveigjanleika og hæfni til að sjá
mismunandi leiðir auk þess sem
orðaforði í ensku hefur aukist
o.fl.
Því miður hafa menn á síðustu
árum orðið varir við að börn og
unglingar fengjust við tölvuleiki
sem eru mjög grófir og ósæmi-
legir á allan hátt. Hér er átt við
sérlega hrottalega stríðsleiki,
klámfengna leiki og leiki sem ala
á þjóða- og kynþáttafordómum
oghatri. Það er ógnvekjandi að
verða vitni að því ábyrgðarleysi
og skorti á mannvirðingu sem
ríkir við gerð, dreifingu og
notkun slíkra forrita.
Austurríska skýrslutæknifélagið,
sem er heildarsamtök allra
austurrískra stofnana og félaga
sem hafa áhuga á upp-
lýsingatækni, finnur sig knúið til
að benda á þær hættur sem eru
samfara forritum af þessu tagi og
að fordæma um leið dreifingu
og notkun slíkra leikja. Félagið
hvetur alla sem málinu geta tengst
að vinna á allan hátt gegn
framleiðslu, dreifingu og notkun
slíkra tölvuleikja.
Við beinum þeirri áskorun til
allra að kaupa aðeins og gefa
tölvuleiki sem virða mannlega
reisn og sæmd. Til eru fjölmargir
tölvuleikir sem ekki aðeins eru
aðlaðandi og spennandi heldur
eru líka mikilvægir fyrir þroska
barna og unglinga, leikir sem
aðlaga má á ýmsan hátt eða ævin-
týraleikir sem örva hæfni til að
tengja hugmyndir og hugsa í rök-
réttu samhengi samtímis því að
gefa þeim sem leika kost á að
læra erlent tungumál."
Erindi IFIP er hér með komið á
framfæri og er vonast til að menn
beiti sér á þessu sviði hér á landi
sem annarsstaðar.
Sparisj. frh.
lega ódýrari eða hraðvirkari
eða fjölbreytilegri tækni
verður tekin upp. Með eigin
neti hefur notandinn frjálsari
hendur og getur sjálfur metið
hagkvæmni þess að endurnýja
hratt eða nýta til lengri tíma.
* Stöðlun, sér í lagi á sviði
tölvusamskipta, hefur verið
eitt af grundvallaratriðum
nýrrar tæknistefnu sparisjóð-
anna. Sú aðferð sem mestri
útbreiðslu hefur náð hérlendis
á sviði háhraðasamskipta
styðst hins vegar við sértæka
lausn eins fyrirtækis sem að
vísu er í fararbroddi á sínu
sviði. Hafa verður í huga
svigrúm til sjálfstæðrar þróun-
ar og svigrúms til að velja
nýja tækni og nýja samstarfs-
aðila eftir því sem tækninni
fleygir fram.
Með þessari samantekt er ég ekki
að taka afstöðu til háhraðanets
P&S heldur að vekja athygli á að
um fleiri en einn möguleika er að
ræða. Akvörðunin verður hins
vegar mjög stefnumarkandi fyrir
alla þróun upplýsinganets spari-
sjóðanna.
Lokaorð
Samtengd tölvunet eru auðvitað
ekki tilgangur í sjálfu sér heldur
fyrirsjáanleg nauðsyn dreifðra
fyrirtækja sem ætla að nýta sér
upplýsingatæknina. Nettenging
tölva á staðarneti eða víðneti er
flókin tækni, bæði hvað varðar
tölvutæknileg samskipti og
kerfisfræðilega uppbyggingu.
Mín lokaorð verða því að minna
á nokkur heilræði til þeirra sem
standa frammi fyrir netvinnslu:
* Marka þarf stefnu í upp-
lýsingamiðlun, hvaða mark-
miði skuli ná og í hvaða
áföngum.
* Marka þarf stefnu í útfærslu
upplýsingamiðlunarinnar í
samræmi við tilgang hennar.
* Innbyrðis samræmi og stöðl-
un verður ekki ofmetin
* Reynsla annarra getur verið
gulls ígildi.
* Þolinmæði og þrautseigja er
nauðsynlegt veganesti.
23 - Tölvumál