Tölvumál - 01.12.1992, Qupperneq 24
Desember 1992
Hugmyndarík margmiðlun
Hilmar Gunnarsson, Hugmynd
Margmiðlun (multimedia) stend-
ur fyrir samspil hljóðs, myndar
og hvers þess miðils sem getur
komið upplýsingunt til skila á
lifandi hátt. Þetta hugtak hefur
verið mikið í tísku undanfarin
ár, en það er þó ekki fyrr en nú að
hagnýt not margmiðlunar eru að
koma í ljós. Forsendur þessa eru
að tæknibúnaður til marg-
miðlunar hefur tekið stórstígum
framförum jafnframt því sem
verðlag slíkra tækja nálgast
raunhæft stig. Sem aðra forsendu
má einnig nefna sívaxandi upp-
lýsingaþorsta almennings jafnt
sem fyrirtækja og auknar kröfur
um lifandi framsetningu upp-
lýsinga. Hér á eftir verður sagt
frá tölvukerfi sem byggir á marg-
miðlunog erlýsandidæmi umþá
byltingu sem er að eiga sér stað
í miðlun upplýsinga með aðstoð
tölvutækninnar.
Fasteignasýningakerfið
Eitt af þeirn vandamálum sem
kaupendur fasteigna glíma við er
hve mikill tími fer í skoðun þeirra
eignasemkomatilgreina. Dæmi
eru um að fólk hafi skoðað meira
en 50 eignir áður en það hafi
fundið þá einu réttu. Oft á tíðum
hefur fólk ákveðna mynd í huga
þegar það er í fasteigna-
hugleiðingum ogþarfekki annað
en að líta augnabiik yfir eign til
að sjá hvort hún komi til greina
eða ekki. Til að einfalda þetta
oft langa ferli sem fasteignakaup
eru liggur beint við að fast-
eignasölur geymi myndir af þeim
eignum sem þær hafa á söluskrá
og geri þær aðgengilegar vænt-
anlegum kaupendum. Þegar í
dag hafa ýmsar leiðir verið
reyndar og árangur þeirra verið
misgóður. Það að taka ljós-
myndir af eignum hefur reynst
tímafrekt, því áðuren viðskipta-
vinurinn fær að berja myndirnar
augum þarf að framkalla þær,
líma á spjald, prenta út helstu
upplýsingar og að lokum að stilla
þeim upp. Hugmynd hefur nú
hannað tölvukerfi sem er einfalt
í vinnslu og gerir væntanlegum
kaupendum kleyft að kynnast
þeim eignurn sem í boði eru á
tölvuskjá. Fasteignasalan Húsa-
kaup hefur þegar tek ið kerfi þetta
í notkun.
Kerfið nýtir sér nýjustu tækni til
margmiðlunar. Þegar fasteigna-
sali skoðar eign í fyrsta sinn og
metur hana hefur hann með sér
venjulega videotökuvél. Með
henni tekur hann síðan myndir af
eigninni að innan sem utan. Þegar
komið er á skrifstofuna aftur er
videotökuvélin tengd við tölvu
þá sem fasteignasýningakerfið er
á og myndirnar af eigninni fluttar
yfir á örskömmum tíma. Síðan
eru helstu upplýsingar um eignina
færðar inn (sjá mynd 1) og eignin
er tilbúin til sýningar.
Fasteignasýningakerfinu er stjóm-
að með snertiskjá, sem einfaldar
til muna val aðgerða. Fyrsta
skjámyndin sem snýr að vænlan-
legum fasteignakaupanda þegar
hann sest niður við snertiskjáinn
sýnir kort af stór- höfuð-
borgarsvæðinu ásamt mismun-
andi verðflokkum og ýmsum
tegundum eigna (sjá mynd 2).
Með því að snerta skjáinn velur
notandinn síðan þau svæði
(póstnúmer) sent hann hefuráhuga
á, þær tegundir eigna sem hann
kýs og síðan það verðbil sem
hann hefur í huga. Þegar ýtt er á
viðkomandi fleti breyta þeir um
lit til að sýna valið. Það er
síðan undir notandanum kornið
hve marga valfleti hann styður á.
Eins er hægt að sleppa að velja
AnnaB:
Rúmgott skrifstofuhúsnæði.
n
HUSflKflUP
Eign númer: Heimilisfang: 2000 "►fl Hætta
Suðurlandsbraut 52 QK Staðfest
Póstnúmer: 108 M
Eyða
Stærð: 418 færslu
VerB: 20.000.000
Leita
Tegund: 5
Hjálp!
Mynd /
24 - Tölvumál