Tölvumál - 01.12.1992, Blaðsíða 37
Desember 1992
kerfinu frá Internettengdum
vélum með skipuninni “telnet
complex.is2000”. Nýirnotendur
velja sér þá nafn, kyn og lykilorð.
I sumum kerfum er einnig hægt
að velja sér kynstofn, og getur þú
þá valið um að vera álfur, maður
og þvíumlíkt. Kerfið hér er þó
miðað við að allir séu mennskir.
Fjölda muddara er erfitt að áætla.
Flestir muddarar eru skólafólk,
nemendur og kennarar við hinar
ýmsu greinar í háskólum heims-
ins. Marga muddara er einnig að
finna meðal stærri stofnana sem
halda uppi öflugum tölvukerfum,
svo sem banka, háskólastofnana
og tölvufyrirtækja. Einnig hafa
nemendur og jafnvel kennarar í
greinum sem varða mannleg
samskipti og eðli mannsins haft
mikinn áhuga á muddinu og þá
ekki síst á félagslega þættinum
sem væri án efa efni í bestu fræði-
greinar. Þarna má enda finna á
einum stað þversnið af hluta
mannkyns í gerviheimi.
Punktar...
Margmiölunar ET
Ástand sem einmenn-
ingstöivan er í þegar hún
hefur strandað (crashed):
Marglitir punktar hreyfast
hratt fram og aftur um
skjáinn og hágæða hljóð
heyrist frá diskdril'i.
Dæmi eru um það að fatlaðir
einstaklingar sem hafa fjarlægst
hið raunverulega líf eigi sér í
rauninni sitt líf í mudheiminum.
Hafa þeir þar öðlast tækifæri til
að umgangast aðra á hátt sem
þeim mun aldrei gefast í raun-
veruleikanunr og hefur það því
varpað birtu inn í þeirra líf. Al-
gengast er þó að þarna sé einfald-
lega um að ræða fólk sem hefur
gaman af félagsskap annarra og
kemur til leiks með opinn huga.
Islenskir muddarar eru almennt
opið og lífsglatt fólk og hafa þeir
rnyndað með sér félag.
Sé vikið að hugsanlegri framtíð
muddsins má velta fyrir sér ýms-
um möguleikum. Nýlega hafa
komið fram myndræn MUD en
þau hafa þó ekki náð mikilli út-
breiðslu, meðal annars vegna
tæknilegra örðugleika. Ef til vil
á þetta eftir að þróast nreira í átt
til þeirra nýjunga sem komið hafa
fram í hugmyndum um "virtual
reality" þar sem fólk spennir á sig
Ráðstefna um
gagnagrunnaog
gervigreind
4. alþjóðlega ráðstefnan um
gagnagrunna og notkun
gervigreindar (DEXA '93)
verður haldin 6.-8. sept-
ernber í Prag í Tékkíu.
Skýrslutæknifélaginu hefur
borist beiðni frá aðstand-
endum ráðstefnunnar um
að auglýsa eftir erindum.
Erindin þurfa að berast fyrir
28. febrúar.
Nánari upplýsingar má fá á
skrifstofu félagsins, í síma
27577.
hjálrn með sjónvarpsskjá, setur á
sig hanska og getur gripið um
ímyndaða hluti ásamt því að
ganga um og skoða svæði sem
hvergi eru til nema í minni tölv-
unnar. Slíkt krefst þó tækni sem
ekki er orðin almenn í dag, hvað
svo sem síðar verður.
Sé þó miðað við þróunina hér á
landi, þar sem hefur byggst upp
öflugt mudsamfélag úr svo til engu
á afar skömmum tíma virðist þetta
eiga framtíðina fyrir sér. Maður
er manns gaman segir einhvers-
staðar og svo lengi sem fólk hefur
ánægju af félagsskap og jafnframt
opinn hugaásamteinhverri þrátil
að láta drauma sína verða að
veruleika, þó ekki sé nema andar-
tak í draumkenndum heimi, þá
mun ávallt einhver leið vera til
að uppfylla þær óskir. Það má
með sanni segja að MUD sé frjó
og áhugaverð leið til þess og
heilbrigðari en margt annað það
sem mannkynið hefur látið sér
detta í hug til að ná svipuðum
markmiðum.
Myndir og
bæklingar óskast
Oft skortir okkur gott
myndefni til að skreyta
Tölvumál með. Því viljum
við gjarna fá senda bæklinga
og blöð með myndefni sem
við megum nota. Ekki
skiptir máli hvort um er að
ræða auglýsingabæklinga
eða annað myndrænt efni,
aðalatriðið er að mynd-
irnar séu áhugaverðar,
tengist tölvumálum og okkur
sé heimilt að birta þær.
Ritstj.
37 - Tölvumál