Vísir - 27.08.1962, Blaðsíða 1
YISIR
úst. 1962. — 200 tbl.
Dúna bjargaði barninu
Nýju skattstjórarnir
skipaðir í embætti
Nýlega hafa nokkrir
hinna nýju skattstjóra
verið skipaðir. Er með-
al þeirra skattstjórinn í
Reykjavík. — Gagnger
skipulagsbreyting var
gerð í þessum efnum
með nýju skattalögun-
um í vetur og fer útnefn-
ing hinna nýju skatt-
stjóra fram í samræmi
við hana.
Skattstjóri í Reykjavík var
skipaður Halldór Sigfússon. Hef
ir hann sem kunnugt er gegnt
embættinu langa hríð.
Skattstjóri yfir Suðurlandi
var skipaður Filippus Björgvins
son viðskiptafræðingur. Filipp-
us er ungur maður, ættaður af
Suðurlandsundirlendi. Stundaði
hann framhaldsnám við háskól-
ann i Beifast, en hefir síðustu
tvö árin unnið hjá Verklegum
framkvæmdum.
Skattstjóri yfir Vestur-
landi var skipaður Jón Eiríks-
son lögfræðingur. Jón gegndi
skattstjóraembættinu í Vest-
mannaeyjum.
Skattstjóri á Akureyri var
skipaður Hallur Sigurbjömsson.
Hallur hefir gegnt skattstjóra-
embætti á Akureyri í nær ára-
tug eða síðan dr. Kristinn Guð-
mundsson lét af störfum þar.
Aðrir skattstjórar munu
verða skipaðir á næstunni en
samkvæmt lögum þá skulu þeir
hafa verið skipaðir fyrir 1. okt.
Það skilyrði var sett í lögunum
að skattstjórarnir skyldu ann-
að hvort vera viðskiptafræð-
ingar eða lögfræðingar eða hafa
langa reynslu að baki í þessum
efnum.
Það er fjármálaráðherra sem
útnefnir skattstjórana, sam-
kvæmt fyrirmælum hinna nýju
laga.
Banaslys í fyrrinótt
Hér sjást Bjarni Bjarnason lög- bjarga barninu sem týndist í
regluþjónn og sporhundurinn gær vestur við Hellissand. Lög-
Dúna, sem hjálpuðu til við að Framhald á bls. 5.
í fyrrinótt varð maður fyrir bif-
reið á Grensásvegi móts við
Breiðagerði með þeim afleiðingum
að hann lézt af völdum meiðsla
sinna í gærdag. Maðurinn hét Hall-
dór Gunnar Sigurðsson til heimilis
að Sigtúni 59. Hann var prentari
að iðn og vann í prentsmiöju Vísis
að Laugaveg 178. Halldór heitinn
var fæddur 1936 og Iætur eftir sig
konu.
Um klukkan 2.30 í fyrrinótt, eða
skömmu síðar var sex manna
fólksbifreið ekið norður Grensás-
veg og virðist hafa verið ekið all-
hratt. Við stýrið sat ungur piltur,
tuttugu og eins árs gamall og var
hann einn í bllnum.
Bifreiðarstjórinn segir sjálfur
svo frá, að hann hafi ekki orðið
Halldórs' var fyrr en rétt um það
bil sem hann skall' á bifreiðinni,
kveðst þó hafa séð til hans í ljós-
geislanum frá bílnum rétt fyrir
framan sig og hafi Halldór þá kom-
ið á móti sér. Ökumaður hemlaði,
en um seinan, enda bifreiðin á
mikilli ferð, hve mikilli kvaðst bíl-
stjórinn ekki geta gert sér grein
fyrir, en lögreglan mældi 37 metra
hemlaför á götunni á eftir, og gef-
ur það nokkra hugmynd um að
hraðinn hefur verið mjög mikill.
Áreksturinn varð mjög harður
og varð Halldór heitinn fyrir
vinstra framhorni bifreiðarinnar,
kastaðist upp á vélarhúsið og braut
framrúðu bílsins auk þess sem bíll-
inn dældaðist og skemmdist að
öðru leyti að framan. Halldór kast-
aðist að því búnu niður af vélar-
húsinu vinstra megin og lá þar á
götunni. Eftir þvi sem hemlaförin
gáfu til kynna hefur bifreiðinni ver
ið ekið á vesturhelmingi götunnar
en nálægt miðju.
Við slysið kom þvílíkt fát á öku-
manninn, að hann hélt umsvifalaust
af staðnum, en þegar hann var
kominn á Sogaveginn við Réttar-
holtsveg, hélt hann að bílasíma
sem bifreiðastöðin Bæjarleiðir hafa
þar og bað bifreiðarstjóra að gera
lögreglu og sjúkraliði aðvart, en
fékk að því búnu Ieigubíl af stöð-
inni til að flytja sig á slysstaðinn,
þar sem hann beið lögreglunnar.
Er á staðinn kom var bifreiðar-
stjóri frá Hreyfli kominn þangað,
en rétt á eftir kom lögregla og
sjúkrabifreið. Halldór var mjög illa
leikinn, einkum á höfði og taldi lög
reglan að þá þegar hafi verið auð-
sætt að honum myndi ekki hugað
líf. Hann var fluttur í Landakots-
spítala og þar Iézt hann af völdum
meiðsla sinna um kl. 2 í gærdag.
ökumaður bifreiðarinnar, sem
Framhald á bls. 5.
/ glampanum frá kastljósi
sóst iítil hvít barnshönd
Tveggja ára drengur fannst
í djúpri holu eftir víðtæka leit
Tveggja ára drengur
týndist í gærdag við Lor
anstöðina skammt frá
Hellissandi. Var hafin
geysiviðtæk leit að hon-
um, sem stóð langt fram
á nótt og tók á annað
hundrað manns þátt í
henni.
Drengurinn sem heitir
Sævar Pétursson fannst
Ioksins með undursam-
legum hætt niðri í
djúpri gjótu skammt frá
stað þeim sem hann
hafði verið að leika sér.
Var klukkan þá að
verða 3 um nóttina.
Hann hefði aldrei kom-
izt sjálfur upp úr þessari
gjótu og er því um björg
un á lífi hans að ræða.
Hann hafði sofið á
botni holunnar. Þegar
honum var hjálpað upp
var honum orðið kalt en
það eina sem hann sagði
var: — Ég var bara að
lúlla.
Sporhundur hjálpaði
Hér var um að ræða eina
víðtækustu leit, sem gerð hefur
verið. Á annað hundrað manns
frá Loran-stöðinni og Hellis-
sandi tóku þátt í henni. Auk
þess var fjölmennur flokkur leit-
arfólks frá Ölafsvík að bætast í
hópinn um nóttina. Þá var flug-
vél notuð við leitina, Ijóskastar-
ar og gjallarhorn. Loks var kom
ið með sporhund úr Reykjavík.
UnnHnrinn hpfnði af nærfatnaði
Sævar Pétursson.
drengsins og rakti slóð hans út i
hraunið. Ekki fann hundurinn
þó drenginn, heldur missti af
sporum hans. En segja má að
hundurinn hafi hjálpað til, þvi
að nú var hert leitin þar sem
sporin týndust. Og þar skammt
frá fannst drengurinn í holunni,
sem er iy2 meters djúp en
grasi gróið yfir opið svo að hol-
an sést ekki.
Lýst niður í holuna.
Það var sem fyrr segir kol-
Framhald á bls. 5.