Vísir - 27.08.1962, Blaðsíða 3
Mánudagur 27. ágúst 1962.
VISIR
Aldaríjórðung í kasthríng
Gunnar Huseby heiðruður
í aldarfjórðung hefur Gunn-
ar Huseby iðkað íþróttir af
sinni alkunnu elju og á þeim
tíma unnið fjölmargar vegsemd
ir sem hafa glatt þjóðina alla,
ekki sízt er hann varð Evrópu-
meistari, fyrst í Osló 1946 og
síðan í Briissel 1950.
Fyrir 10-12 árum sfðan voru
frjálsíþróttirnar stolt Islend-
inga og heiður, þá áttum við
marga af snjöllustu íþrótta-
mönnum Evrópu og áttum tvo
meistara á EM f Briissel meðan
stórveldi eins og Rússar fengu
aðeins eirm meistara.
Á laugardaginn var blaða-
mönnum boðið til kaffidrykkju
að Hóte! Borg, en þar var Gunn
ari Huseby afhentur fagur bik-
ar frá Albert Guðmundssyni og
Jakob Hafstein, tveim fyrrver-
andi formönnum ÍR, „óvina"
félags kappans Huseby, sem
alltaf hefur verið KR-ingur,
eins og kunnugt er.
Er það rnæsta óvanalegt hér
í togstreytunni milli félaga að
Gunnar Huseby tekur við hinum fagra grip, sem þeir félagar
Albert Guðmundsson og Jakob Hafstein gáfu honum í tilefni
25 ára afmælis hans í kasthringnum.
forvígismenn félags heiðri
mann úr öðru félagi fyrir vel
unnin störf í þágu iþróttanna.
„Pað var ekki siður gleðiefni
okkur ÍR-ingum, þegar Gunnar
vann stór afrek, við fögnuðum
engu að siður, enda þótt marg-
ur sigurinn hafi farið yfir til
KR, í stað þess að falla i okk-
ar hlut fyrir atbeina Gunnars",
sagði Jakob er hann gerði grein
fyrir bikarnum, sem Albert af-
henti Huseby.
Albert og Gunnar voru um
árabil tveir mestu afreksmenn
okkar í íþróttum, og voru á
unglingsárum sínum beztu
kunningjar, áttu við svipuð kjör
að búa, höfðu ekki of mikið
handa á milli, og völdu sér því
iþróttirnar til viðurværis með-
an kunningjarnir „skemmtu
sér“. Albert sagði frá kynnum
sínum og Gunnars og sagði með
al annars að Gunnar hefði verið
stórgóður knattspyrnumaður,
en hefði ákveðið að helga sig
kúluvarpi og kringlukasti og
þá hætt öðrum íþróttum.
Gunnar Huseby er fæddur 4.
nóvember 1923 og er því 38
ára gamall. Mönnum varð brátt
ljóst þvílikt gifurlegt efni var í
Gunnari og 14 ára gamall setti
hann sveinamet sem .seint eða
aldrei verður slegið í kringlu-
kasti. Þeir, sem héldu í mál-
bandið stóðu við 50 metra strik
ið og héldu sig vera í hæfilegri
fjarlægð, þvi metið var aðeins
43 metrar rúmir. Kringlan flaug
hins vegar yfir þá og i 56,77.
Á Drengjameistaramótinu sýndi
Gunnar fjölhæfni sína bezt. Þar
gekk hann milli greina og vann
í öllu. Var fjölhæfni hans við-
brugðið, mjög fljótur með 11,4
í 100 m hlaupi, þolinn með 4:
50,0 í 1500 metrunum og ágæt-
ur stökkvari, t.d. með rúma 6
metra í langstökki. Var hann
talinn öruggur með að taka
bæði met Sigurðar Friðfinns-
sonar í þrautunum, en aldrei
fór hann út í það enda ráðlagt
af þjálfara að einbeita sér að
köstunum. Árið 1955 var Gunn
ar einn af 10 beztu kúluvörpur
um í heimi og eins og fyrr
greinir vann hann tvívegis á
EM í kúluvarpi. íslandsmeist-
ari hefur hann orðið 10 sinnum
í kúluvarpi, 6 sinnum í kringlu
kasti og tvisvar í sleggjukasti.
Verðskuldaður sigur Akureyringa
Reykjavíkurúrval tapar 0:3
i
í tilefni 100 ára afmælis Akur-
eyrarbæjar buðu norðanmenn
knattspyrnumönnum frá höfuð-
borginni til bæjarkeppni og fór sá
leikur fram í gærdag. Akureyringar
sýndu leik þessum mjög mikinn á-
huga og virðingu. Lúðrasveit lék á
undan, forystumenn héldu ræður
og áhorfendur fjölmenntu á völl-
inn.
Hins vegar er skemmst frá því
að segja, að áhugi- reykvískra
knattspyrnumanna var jafnlítill
eins og áhugi heimamanna var
mikill.
Það kom líka fram í úrslitunum,
3 — 0, stór ósigur Reykjavíkur. Bar-
áttuvilji Reykjavikurmanna var
enginn, viðleitni til samleiks sára-
lítill og viljinn til sigurs kom aldrei
fram í leik þeirra.
Akureyringar sýndu alla þessa
eiginleika í þessum leik sínum, og
ef þeir leika á sama hátt gegn
íslandsmeistarakandidötum Fram
eftir hálfan mánuð, þá mega Fram-
arar taka á honum stóra sínum.
Frammistaða Akureyringa var
með ágætum allan leikinn og sigur
þeirra var fyllilega verðskuldaður,
þó tvö síðustu mörkin og sérstak-
lega það þriðja hefðu verið ódýr
mjög.
Leikurinn hófst með allgóðri
sókn Reykvíkinga, sem þeir héldu
uppi fyrstu 10 mfnútumar og
fengu þá tvö allgóð tækifæri sem
ekki nýttust.
Eftir það náðu Akureyringar
brátt tökum á leiknum, oft
prýðilegu spili, þótt þeim reynd-
ist nokkuð erfitt að finna leið-
ina að marki. Eitt sinn léku þeir
þó mjög skemmtilega í gegn,
Skúli og Páll, sem endaði með
því að Steingrímur fékk knött-
inn, frír inni á markteig, en
spyrnti i fátinu fram hjá opnu
markinu. Þeir héldu þó sókn-
inni uppi og er fimmtán mínútur
voru eftir af hálfleiknum skor-
aði Skúli með föstu skoti frá
vítateig, f stöng og inn.
Seinni hálfleikurinn leið að
mestu stórtíðindalaust, og jafnaðist
leikurinn nokkuð, þótt Akureyring-
ar væru alltaf hættulegri, og oft
var eins og markið lægi í loftinu.
Þegar um 5 mínútur voru eftir
kom það. Steingrímur einlék upp
að markinu vinstra megin, gegnum
3 — 4 varnarleikmenn, missti af
knettinum en fylgdi vel eftir og
tókst að pota knettinum inn. Vel
gert.
Aftur sóttu Akureyringar og eftir
hrapalleg mistök í vörn Reykvík-
inga fékk Skúli knöttinn á víta-
teigspunkti og var fljótur að not-
færa sér tækifærið, með hörku-
skoti, alls óverjandi fyrir Geir.
Liðin.
Akureyrarliðið átti góðan leik
þennan dag. Þeim virðist stöðugt
vera að fara fram, hafa enn bætt
við sig frá leiknum við KR. Einar
var öruggur 1 markinu, og Jón var
sterkur, þótt honum yrði á nokkur
mistök, sem hefðu getað orðið dýr-
kgypt. Jakob var drjúgur sem fram-
vörður og Skúli var bezti maður
framlínunnar, ásamt Páli á hægri
vængnum.
Reykjavíkurliðið mætti jafnvel
kalla B-lið. 4 landsliðsmenn KR
tryggja sterkt efni
og gott snið
við hvert tækifæri
STÓRAUKIN SALA SANNAR VINSÆLDIR VÖRUNNAR
Útsala
Tvíbreitt alullarefni í kjóla og buxur 127.00
kr. m. Léreft tvíbreitt 128.00 í sængurver.
Lakaléreft 34.00 kr. meter. Kjólaefni 75.00 kr.
í kjólinn.
VERL. GUÐBJÖRGAR BERGÞÓRSDÓTTIR
Öldugötu 29 —Sími 14199.
í Evrópubikarinn |
strandaðí hjá HSÍ-manni! j
•
„Við vissum ekkert fyrr en við lásum laugar-!
dagsblað Vísis“, sagði Sveinn Ragnarsson, formað- •
ur handknattleiksdeildar Fram, um þátttöku Fram!
í Evrópubikarkeppninni í handknattleik, „hið sanna;
mun vera að einn stjórnarmanna HSÍ átti að bjóða!
okkur boðsbréfið um þátttöku í keppninni, en hjá;
þessum góða manni strandaði það, og við verðum!
að segja að við erum dálítið „súrir“ út af þessu, því;
þa hefði e. t. v. verið athugandi að taka þátt í!
keppninni“. ;
Málið gerist nú nokkuð spennandi, einkum þar!
eð franska handknattleikssambandið sem á að sjá;
um keppnina, gefur út tilkynningu með þátttöku-S
aðilum, og við sumar þjóðirnar er getið um lið það;
sem keppir fyrir landið og er ísland þar á meðal,!
þó ekki sé þess getið að Fram verði þátttakandi. Er;
það leitt ef Framarar hafa þarna „misst af lestinni“í
því öruggt má telja að við eigum erindi í keppnij
sem slíka, því í engri grein íþrótta standa Íslend-I
ingar jafn framarlega á alþjóðlegum vettvangi sem!
í handknattleik. *
komu ekki til greina í úrvalið
vegna meiðsla og fjögur forföll
önnur voru boðuð eftir að búið var
að velja liðið. Ekki hefði það þó
átt að koma að sök, og afsökun
þeirra var engin. Geir stóð sig
allvel I markinu, en öðrum leik-
mönnum er vart hægt að hrósa.
Þess skal getið, að Reykja\
og Akureyri hafa nú þrisvar le
saman hesta sína í bæjarkeppn
knattspyrnu og hafa Akureyring
alltaf borið sigur úr býtum, sa:
tals skorað 12 mörk gegn einu.