Vísir - 20.09.1962, Qupperneq 2
' >,
VISIR
Fimmtudagur 20. sept. 1962.
y////sm.'/////éL
ii—i r=ti —i r1 czQ u
y//////////my////Æ
LISTON TWISTAR. — Eftir erfiðan dag við æfingarnar twistar Sonny Liston við
konu sína Geraldínu. Æfingakerfi Listons þykir furðulegt, og minnir það nokkuð á
það sem sagt var um æfingar Ingemars Johanssonar áður en hann varð meistari.
Liston tvistar
eftir æfíngar
og er sagður vinna Patterson
1 næstu viku, nánar tiltekið
næsta þriðjudag, fer fram i Com-
iskey Park í Chicago keppni um
titillnn heimsmelstari i hnefaleik-
um, en þá slást kempurnar Patter-
son, núverandi meistari og Sonny
Llston, sem hefur unnið sér rétt
til að skora á íneistarann, en haft
er fyrir satt að framkvæmdastjóri
Pattersons hafí i mörg ár reynt
að komast hjá þessari keppni,
enda Liston ekki árenniiegur.
Comiskey Park verður vissulega
troðfullur á þriðjudaginn, og við
milljónir sjónvarpstækja um þver
og endilöng Bandarikin mun fólk
fylgjast með bardaganum.
Patterson skal ekki lenda i bófa-
höndum, sagði Cus D’Amato, fyrr-
verandi framkvæmdastjóri Patter-
sons og vitnaði þá til félagsskapar
þess, sem Liston var i áður, en
cinmitt vegna afskipta hans af
glæpafélögum 1 Chicago hefur
Liston ekki fyrr en nú vcrið leyft
að fá keppni um heimsmeistara-
tignina.
„Knock-out“-kóngurinn Liston
hefur barizt 34 sinnum en unnið 33
sinnum,
Sagt er þó að sakavottorð hans
sé ekki styttra en sigraskýrsian.
Eini maðurinn, sem hann hefur
tapað fyrir er Marty Marshall,
sem hann hefur unnið tvívegis
slðar. Siðan 1956 hafa aðeins
tveir af andstæðingum Listons
haldið út tímann gegn honum, en
þeir voru Eddie Machen og Bert
Whitehrust, en hinir hafa fengið
rothögg.
Samt segja sumir að hann sé
seinn, aðrir að hánn sé klossaður,
en alltaf er árangurinn sá sami:
Andstæðingurinn borinn burtu úr
hringnum.
PATTERSON ÞVINGAÐUR
TIL IÍEPPNI?
Vitað er að Patterson ber ótta-
blandna virðingu fyrir keppinaut
sinum og halda sumir að hann hafi
verið þvingaður til að skrifa undir
samninga um keppni þessa, a. m.
k. cr Cus D’Amato ekki lengur
framkvæmdastjóri hans og ætlar
ekki einu sinni að vera viðstaddur
keppnina. Ekki vill hann né heldur
Patterson tilgreina ástæðuna.
Liston er nú talinn nokkuð ör-
uggur sigurvegari þrátt fyrir hina
góðu tækni heimsmeistarans og
gætir þess mikið hjá veðmálastofn-
unum.
Liston fær þó aðeins 12.5% af
ágóða keppninnar, þar sem Patt-
erson fær hins vegar 42.5%. Það
sem eftir er, 45%, fá fram-
kvæmdastjórarnir til sinna um-
ráða.
Bæjarkeppni í hnndknnftleik:
Kópavogursigraði
Hafin er Bæjarkeppni Hafnar-
fjarðar og Kópavogs í handknatt-
leik Fyrstu leikir keppninnar fóru
fram s.l. sunnudag og fóru leikar
svo, að Kópavogur vann bæði f
meistaraflokki og 2. flokki, en
Hafnafjarðarstúlkurnar eru ís-
landsmeistarar úti, í meistarafl
Keppni þessari er hagað þannig,
að keppt er í þessum tveim flokk-
um kvenna, bæði úti og inni, heima
og heiman, alls 4 leikir á lið, 8
leikir talsins, en það liðið, sem
fær fleiri stig út úr keppninni
sigrar ug hreppir bikar, sem Þor-
varður Árnason hefur gefið. í
fyrra vann Kópavogur bikarinn,
vann þá aila útileikina og 2.
flokksleikinn inni, hlaut 10 stig
gegn '6.
Fyrstu leikjunum nú lauk með
sigrum Kópavogs 8:6 í meistara-
flokki og 7:3 í 2. flokki og fær
Kópavogur þar 4 stig á heimavelli
sínum. Innan skamms leika liðin í
Hafna.firði, en í vetur verður svo
leikið innanhúss.
Bikarkeppnin:
Kópavogur vann
Hafnarfjörð 5:4
Kópavogur vann f Hafnarfirði
leik sinn i Bikarkeppninni í knatt-
spymu, en leikur liðanna fór fram
í fyrrakvöld. Eftir harðan bardaga
lauk leik 5:4 fyrir Breiðablik.
Það voru Hafnfirðingar sem
skoruðu 1. rnarkið, en Breiðablik
bætti tvívegis við fyrir leikhlé. í
siðari hálfleik komu svo tvö
Kópavogsmörk til viðbótar, 4:1 og
virtist sigur Kópavogs blasa við.
Svo var ekki því Hafnfirðingar
sóttu sig jafnframt þvi sem Kópa-
vogur slakaði á sókninni og von
bráðar var staðan 4:3, en Kópa-
vogur skoraði 5:3 og á síðustu
mínútunum kom 5:4, en leikurinn
gerðist mjög harður og spennandi
þrátt fyrir Ieiðindaveður sem var
meðan leikurinn fór fram, en Kópa
vog tókst að halda forystunni og
heldur þvi áfram í Bikarkeppninni.
Hleypur 16 kílómetra
til vinnu sinnar
Skrifstofumadurinn Kilby, ervann Maraþonið á EM
Það kemur oft fyrir í
Maraþonhlaupuni hinna
meiriháttar keppna eins og
Qlympíuleika, Evrópu-
meistaramóta o.s.frv. að
alls óþekktir menn komast
fram í sviðsljósið. Þannig
var þetta, er Spiridon Lou
is vann Maraþonhlaupið á
fyrstu Olympíuleikum nú-
tímans í Aþenu 1897, en
Louis var einfaldur geita-
hirðir og ekki talinn koma
til greina að sigra.
Bikile Abeba, berfættur
lífvörður Haile Selassie,
Abbysiníukeisara varð
sigurvegari í Róm á síð-
ustu OL, gjörsamlega ó-
þekktur og nú á dögunum
varð „hlaupandi skrifstofu
maður“ sigurvegari á EM
í Belgrad.
Brian Kilby, hinn 24 ára skrif-
stofumaður frá Coventry , Eng-
landi var ekki „nafn“ þegar spek-
ingar á sviði frjálsíþróttanna bolla-
lögðu úrslit EM fyrirfram. Helzt
var hallazt að nafninu Popov, sem
var langþekktast en mörg önnur
komu frekar til greina en Kilby,
sem enginn hafði heyrt nefnt.
Kilby tók snemma þátt f
hlaupinu með fyrstu mönnum,
hljóp sem mest hann mátti í skugg
um trjánna, til að forðast brenn-
andi heita sólina og neitaði svala-
drykkjum, til að vera öruggur um
að veikjast ekki. Popov, Síberíu-
maðurinn f rauðum bol með sigð-
armerki Sovétríkjanna, var mað-
urinn sem Kilby bar djúpa virð-
ingu fyrir.
Kilby, ásamt Skotanum Wood,
hljóp með öllum 3 þátttakendum
Rússa lengi ve’, en fyrst eftir 32
kílómetra hlaup tók Kilby for-
ystuna, sem hann hélt sfðan út
hlaupið. Kilby var fagnað gífurlega
af löndum sínum sem' og öðrum
áhorfendum, er hann hljóp Iétti-
lega inn á leikvanginn og flutti
Bretum 5. sigurinn á EM, en þeir
unnu einn sigur hvern dag keppn-
innar.
Aðspurður um æfingar og annað
Frh. á 5. sfðu.
ivrópubikarinn:
Brian Iíilby — hleypur á
skrifstofuna —
umferð
i> Esbjerg heldur áfram i 2.
umferð Evrópubikarsins eftir
jafntefli í gær við írska liðið
Linfield, 0:0. Leikurinn fór
fram í Kaupmannahöfn, en
fyrri leikinn í Dublin vann Es-
bjerg með 2:1 og sá sigur
reið baggamuninn.