Tölvumál - 01.06.1994, Blaðsíða 33

Tölvumál - 01.06.1994, Blaðsíða 33
Júní 1994 Þessum spurningum er aldrei hægt að svara í eitt skipti fyrir öll í sérstökum greiningarfasa í 1 íkani eins og fossalíkaninu. Einungis er hægt að nálgast svörin með sífelldri aðlögun tölvukerfis að þörfum notenda. Með frum- gerðum er hægt að koma til móts við þarfir þeirra í mörgurn litlum skrefum, reynsla af notkun frum- gerða segir til um hvort við erum á réttri leið eða ekki. Hér sést best munurinn á að- ferðafræði fossalíkansins og frumgerðum. I stað þess að reyna að hitta í mark í fyrstu tilraun, gefst þátttakendum kostur á að þreifa sig áfram, prófa ólíkar til- lögur og velja á milli á grundvelli reynslu. Hvert skref ferlisins er það lítið að hægt er að bakka ef gerð eru mistök, notendur sitja ekki uppi með gallað kerfi hvort sem þeim líkar betur eða verr. Nýtt líkan að hugbúnaðargerð í kennslubókum sem ég las í skóla varhugbúnaðargerð líkt við húsasmíði. Húsasmíði er mörg þúsund ára gömul hefð þar sem þarfir notenda (íbúar) eru vel þekktar og til eru margreyndar lausnir til að konta til móts við þær. Að mínu mati hentar þessi samlíking við hugbúnaðargerð ekki vel. Hún leggur áherslu á hugbúnaðargerð sem afmarkað ferli sem uppfyllirþrjárforsendur: þarfir notenda eru vel þekktar, viðfangsefnið er vel skilgreint og tæknilegs eðlis, og samskipti við notendur á verktíma takmarkast við eftirlit nteð framgangi verks. I reynd stenst engin af þessurn forsendum. Miklu raunhæfara er að líkja hugbúnaðargerð við gerð borgarskipulags. Allarbreytingar og viðbætur verður að aðlaga að þeinr veruleika sem er til fyrir, eldri hverfi eru ekki rifin niður í heilu lagi og byggð upp á nýtt bara vegna t.d. breyttra sam- gönguhátta. Sú lausn sem er valin eryfirleitt málamiðlunmilli ólíkra hagsmuna. Kröfurtil borgarskipulags geta aldrei verið þekktar fyrirfram né þarfir borgaranna ljósar. Gott dæmi er tækninýjung eins og bíll- inn. Tilkoma hans gerði dreifða byggð með íbúðarhverfum og sér- hæfðum atvinnuhverfum mögu- lega, verslunarmiðstöð eins og Kringlan byggir á tilvist bílsins. Endurhönnun eldri hverfa vegna tilkomu nýrrar tækni er aðeins möguleg upp að vissu niarki og ekki kemur til greina að rífa heilu hverfin og byggja upp á nýtt. Svipað má segja urn hugbún- aðargerð. Tölvukerfi eru aðeins tæknilegur kjami einhvers upp- lýsingakerfis sem er órjúfanlegur hluti af rekstri fyrirtækis. Það er marklaust að tala um hugbún- aðargerð sem eitthvað einangrað tæknilegt ferli aðskilið frá veru- leikanum, við verðum að skoða samspil tölvukerfis við þann rekstur sem það er, eða verður notað sem hluti af. Kröfur til tölvu- kerfis eru aldrei vel þekktar né stöðugar yfir lengri tíma. Ný tækni, nýjar þarfir eru sífellt að korna frant og hugbúnaðargerð snýst um að bregðast við þessum þörfunr, aðlaga tölvukerfi að síbreytilegum veruleika notanda og gera þeirn kleift að leysa af hendi sín störf. Sem dæmi urn áhrif þessa nýja viðhorfs er viðhald hugbúnaðar. Það hverfur sem sérstakur fasi í frantleiðsluferli hugbúnaðar. Við- hald er í staðinn fólgið í áfrant- haldandi gerð frumgerða, sífelldri aðlögun kerfis að breyttum þörfum notanda. Nýjar þarfir eru greindar og tillögur að lausn felldar á skipulegan hátt að nú- verandi kerfi og þess gætt að tæknilegum gæðum kerfisins sé ekki fórnað. í dag er al 11 of algengt aðþegarkemurað viðhaldiáhug- búnaði, þá ertæknilegum gæðum kerfis fómað með samfelldri röð reddinga, vegna þess að engri sér- stakri aðferðafræði er beitt til að takast á við vandamálin. I þessu ljósi er rétt að skoða spurninguna urn aðferðafræði í hugbúnaðargerð: hvaða verkfæri og aðferðir hjálpa fyrirtækjum að þróa rekstur sinn í þá átt sem er hagkvæmast fyrir þá, en koma ekki í veg fyrir að fyrirtæki ná markmiðum sínurn. Markmið með tölvuvæðingu hlýtur að vera að aðstoða fyrirtæki til að ná mark- miðum sínum með aðstoð tækn- innar, ekki þrátt fyrir tækni- væðingu. Niðurstaða Við notkun frumgerða er áherslan á þróun upplýsingakerfa sem styðja við vinnu notenda. Ekki er eingöngu horft á hug- búnaðinn sem tæknilegt vandamál aðskilið frá þeirn veruleika sent hann verður notaður í. Kerfi eru sköpuð í minni áföngum og með sífelldri aðlögun gefst kostur á að aðlaga kerfi að síbreytilegum veruleika notanda. 1. Hér reynir mikið á verkefna- stjómunina. Sífellt er verið að fá nýjar hugmyndir og breyta og alltferliðgeturauðveldlega orðið ein allsherjar óreiða. En lykillinn að vel heppnaðri stjórnun er einmitt að skynja hvenær má gefa lausan tauminn og hvenær ber að skera á frekari tilraunastarf- semi og þoka verkinu áfram. Þar sent prófanir felast í úttektum notanda eru allar ák varðanir teknar á grundvel I i notkunar, en ekki aðeins fylgt því sent einhver aðferðafræði segir. 33 - Tölvumál

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.