Tölvumál - 01.02.1995, Page 5
Febrúar 1995
Skýrsla formanns fyrir árið 1994
Flutt á aðalfundi Skýrslutœknifélags Islands, sem haldinn var
31. janúar 1995.
Eftir Halldór Kristjánsson
Inngangur
Enn horfum við á bak góðu ári
í félaginu okkar en það er hið 26. í
röðinni. Jafnframt eru ákveðin
kaflaskil í mínu lífi því ég læt nú
af störfum eftir 8 ára setu í stjórn,
þar af sex ár sem formaður. Margt
hefur drifið á dagana þau sex ár
sem ég hefi verið formaður og væri
það efni í sér grein. A þessum árum
hefur orðið geysileg bylting í allri
upplýsingatækni og greinin er nú
almennt viðurkennd sem sjálfstæð
atvinnugrein.
Skýrslutæknifélagið hefur
ávallt haft það að leiðarljósi að
vera í forystu í umfjöllum um
tölvu- og upplýsingamál og tel ég
að vel hafi tekist til á liðnum árum
og að við eigum okkar þátt í fram-
þróun greinarinnar. Það er því með
nokkru stolti sem ég skila félaginu
af mér til viðtakandi formanns,
Hauks Oddssonai' og félaga hans í
stjórninni.
Faghópar, ráðstefnur
og fundir
Eins og fram kemur í viðauka
skýrslu minnar, var innlenda
starfið öflugt á þessu ári og margt
á dagskrá. Sérstaklega vil ég fagna
því að faghópar hafa starfað af
nokkrum ki-afti eftir lægð á síðasta
starfsári. Á þeirra vegum hefur
verið haldin ráðstefna og nokkrir
fundir. Hefur þetta starf mælst vel
fyrir hjá félagsmönnum okkar eins
og vonir okkar stóðu til. Mikilvægt
er að efla þetta starf enn frekar og
fjölgafaghópum.
Ráðstefnur hafa almennt tekist
mjög vel og verið vel sóttar. Þátt-
taka fór ekki undir 100 á neinni
ráðstefnu og ET-dagurinn leiddi
161 á vit ævintýranna á Inter-
netinu. Félagsfundir voru í'ærri en
til stóð en upp úr stendur að allir
þessir atburðir voru félaginu til
sóma og til þess fallnir að styrkja
ímynd okkar sem fagmanna á
þessu sviði.
Ekkert af þessu hefði verið
mögulegt án óeigingjarnrar þátt-
töku þeirra sem unnu að undir-
búningi og héldu fyrirlestra. Þeim
verður seint fullþakkað fórnfúst
starf fyrir félagið.
Tölvumál og Orðasafn
Ritnefnd og Orðanefnd hafa
unnið merkilegt starf nú, sem
endranær, og verður seint lögð of
mikil áhersla á mikilvægi hins
ritaða máls fyrir framþróun tölvu-
og upplýsingatækni hér á landi.
Einn mikilvægasti atburður þessa
starfsárs að þessu leiti var að stjórn
samþykkti verkáætlun fyrir endur-
skoðun og útgáfu Tölvuorðasafns
sem nú verður hafin vinna við á
fullu. Því fólki sem lagt hefur
gjörva hönd að verki við útgáfu
Tölvumála og orðasafnið er
þakkað fyrir gott starf.
Fagráð og Tölvunefnd
Ég var kosinn í stjórn Fagráðs
í upplýsingatækni á aðalfundi þess
árið 1994. Þar hefur verið starfað
af krafti og er nú m. a. að líta dags-
ins ljós endurskoðaður ÍST-32
staðall og verið er að endurskoða
staðal um hnappaborð. Þá hefur
starfað af krafti nefnd um þjóð-
legar kröfur í upplýsingatækni og
fleira er á döfinni.
Það er mikilvægt að félagið
okkar styðji við starfsemi Fagráðs-
ins eftir mætti því að því er kreppt
með fjármuni og mikilvægt að það
geti haldið uppi öflugu starfi að
stöðlun á upplýsingasviði.
Við tilnefndum tvo félaga í
Tölvunefnd á árinu, þau Hauk
Oddsson og Guðbjörgu Sigurðar-
dóttur. Hefi ég heyrt vel af þeirra
störfum látið enda ólíklegt annað
hjá þessum valinkunnu félögum
okkar. Enn eru uppi raddir um að
endurskoða lögin og verður félagið
að tryggja að við fáum áfram að
tilnefna menn í nefndina, komi til
endurskoðunar.
Tölvumál - 5