Vísir - 25.09.1962, Page 1
52. árg. — Þriðjudagur 25. september 1962. — 219. tbl.
Mæðiveiki hefur
enn ekki hndizt
Ennþá hefur ekki fundizt nein
sýkt kind af tnæðiveiki né heldur
grunur komið upp um mæðiveiki
neins staðar á Iandinu, en talsverð-
Engar
gagnráð
stafanir
Undanfarið hefir félag
atvinnuflugmanna haft
til athugunar hvort ekki
væri framkvæmanlegt
fað setja bann á Græn-
Iandsflug Flugfélagsins í
mótmælaskyni vegna
þess að einum flugstjóra
Framhald á bls 5
ur uggur hefir verið f bænum, eink
um í Dala- og Mýrarsýslu eftir að
mæðiveiki varð vart á þrem bæj-
um í Suður-Dölum í fyrra.
Að mæðiveiki varð vart þarna í
fyrra hefur orðið til þess að hert
verður mjög á öllu eftirliti með
kindum á þessu svæði og það rann-
sakað mjög gaumgæfilega.
Sæmundur Friðriksson, fram-
kvæmdastjóri mæðiveikivarnanna,
tjáði Vísi í gærkveldi að fé hafi
þegar verið skoðað allvíða í rétt-
um, .inkum þó í Mýrahólfinu og
umhverfi þess, þar sem hættan er
mest.
í hverri fjárrétt á þessu svæði
hafa verið skipaðir sérstakir menn
til að athuga féð og taka þeir frá
þær kindur, sem minnsti grunur
fellur á að kunni að vera sýktar,
ýmist vegna þess að þær eru móð-
ar, magnlitlar eða á annan hátt
veiklulegar. Þessar kindur hafa síð-
i an verið fluttar hingað til Reykja-
víkur, þar sem þeim hefur verið
I slátrað og innyfli þeirra rannsökuð
gaumgæfilega jafnharðan.
Engin merki mæðiveiki hafa
fundist ennþá í nokkurrn kind, sem
slátrað héfur verið til þessa.
Vísir innti Sæmund eftir því,
hvort nokkrar varnarráðstafanir
hafi verið gerðar frá því að mæði-
Framh. á bls. 5
Þeir eru ekki af baki dottnir, Vestmannaeyingar. Þegar aðrir hætta að veiða síld, fara þeir
út fyrir hafnarmynnið hjá sér og moka upp síldinni. Hér sjást nokkrir Eyjaskoggjar vji
síldarvinnu.
Síld veiðist í Vest-
mannaeyjah öfn
Á myndinni sést Guðjón Jónsson, sem verið hefir flugmað-
ur á gæzluflugvélinni Rán og verður nú flugmaður á nýju flug-
(vélinni Sif. Hann stendur við nýju flugvélina og gamla vélin
sést á bak við, inni í skýlinu.
Nýr atvinnuvegur —
og gamall þó virðist í
uppsiglingu í Eyjum.
Nokkrir Eyjaskeggjar
hafa, aðallega í hjáverk-
um, lagt net sín rétt fyrir
utan höfina og veitt þar
smásíld með góðum
árangri.
Þetta hefur verið í smáum
stíl enn sem komið er, en nú
hyggjast fleiri leita á þessi auð-
sóttu mið, því-um uppgripsafla
hefur verið að ræða. Eyja-
skeggjar hafa farið á smátrill-
um rétt út fyrir hafnarmynnið
og lagt þar svo kölluð lagnet.
Þetta er auðvitað ekki snar
þáttur í fiskveiðum Eyjamanna.
Net sem þessi eru vandfengin
og hér hefur aðeins verið um
4 — 5 báta að ræða, en þeir hafa
veitt stíft og veitt vel. Síldin
sjálf er miðlungssíld og hefur
einkum verið fryst til beitu.
Eins og fyrr segir hyggjast
þó fleiri reyna þetta, jafnvel að
leggja nætur þarna. Haustsíld
hefur ekki verið veidd af Vest-
mannaeyingum fyrr en síðustu
3 árin, en tvímælalaust er, að
mikla síld er að finna einmitt
á þessum slóðum. Reyndir sjó-
menn telja fullvíst að hún hafi
verið þarna í áraraðir og sam-
kvæmt skýrslum fiskifræðinga
nú nýlega, munu hrygningar-
svæði síldarinnar vera rétt við
landsteina Vestmannaeyja.
Sæmileg
sala 2ja
togara
Tveir íslenzkir togarar seldu afla
■irlendis í gær, og fengu þeir sæmi-
iegt verð á kílóið.
Ingólfur Arnarson seldi 145 tonn
í Grimsby og fékk fyrir það magn
10.260 sterlingspund. Er það tæp-
lega kr. 8.50 á kílóið. Hinn tog-
arinn var Hvalfell, sem seldi 122
;tonn í Þýzkalandi, og fékk 104.000
; mörk. Meðalverð á kílóið hjá Hval-
felli nam rúml. kr. 9.15.
Nýja Landhelgisgæzluflug-
vélin tekin í notkun í vikunni
Pétur Sigurðsson, forstjóri
Landhelgisgæzlunnar, sagði í við-
tali við Vísi í morgun áð ákveðið
væri að taka nýju landhelgis-
gæzluflugvélina SIF í notkun í
þessari viku. Þetta er 4 hreyfla
Skymasterflugvél, sem kom til
landsins fyrir nokkru. Síðan hefir
verið unnið að því að hreinsa hana
og mála og setja í hana ýmis
tæki.
Þegar Sif tekur við gæzlustörf-
um verður hætt notkun gömlu
landhelgisflugvélarinnar Ránar,
sem nú hefir endað sitt skeið, það
er að segja henni hefir verið flog-
ið eins lengi og leyfilegt er. Mikill
fengur er að hinni nýju flugvél
fyrir landhelgisgæzluna. Rán hef-
ir verið happasæl flugvél og kom-
ið að ómetanlegu gagni fyrir hið
þýðingarmikla starf að verja og
kenna mönnum að virða hin nýju
fiskveiðitakmörk. Það er von allra
að gifta fylgi og störfum hinnar
nýju flugvélar.