Vísir - 25.09.1962, Page 9
Þriðjudagur 25. september 1962.
VISIR
9
L..................................
Eitt sinn var það látið
nægja ef menn vildu
taka bílpróf að þeir ækju
vestur á Mela, þar voru
menn látnir bakka að
gryfjubrún, stanza og
aka lítið eitt áfram, svo
var prófinu lokið, en
prófdómarinn fór úr bif-
reiðinni á meðan vegna
hræðslu við að lenda
niðri í gryf junni.
Rúm 58 ár eru nú liðin sið-
an fyrsta bifreiðin kom hingað
til lands og í dag aka um vegi
Ilf þess yfir tuttugu þúsund bif-
| > reiðir. Þeim fjölgar stöðugt
Isem taka ökupróf, miklu meira
heldur en bifreiðunum. Nú
þykir varla sá piltur maður
með mönnum nema hann hafi
sj|§ lokið bílprófi, sama hvort öku-
tækið sé fyrir hendi eða ekki.
j Kvenþjóðin læturv sinn hlut
| ekki eftir liggja, allar stelpur
I eru orðnar vitlausar i að aka,
um leið og eiginmaðurinn hefur
fest kaup á bifreið, drífur frúin
III sig í prófið.
Okkur datt í hug að kynnast
því lítið eitt hvernig ökupróf
færi fram og hófum því könn-
unina með þvi að leita á náðir
eins ökukennarans, að fá að
\ vera með í einum kennslutíma.
„Bíladellunni svalað“.
Við erum komnir inn 4
kennslubifreið hjá Hilmari
Þorbjörnssyni og undir stýri
situr ungur piltur, sem nú Ioks-
ins er að svala þeirri miklu
löngun sinni, að fá að aka bif-
> reið. Tfminn hefst á því að
nemandanum er hlýtt vandlega
1; yfir öll stjórntæki bifreiðarinn-
, ar, síðán er ekið af stað og við
11 fylgjumst vandlega með.
Pálmi Friðriksson
bifreiðaeftirlitsmaður.
— Ekki svona mikið benzín,
passaðu kúplinguna, gefðu
stefnuljós.
Nemandinn setur tunguna vel
út í annað munnvikið, grettir
sig lítið eitt og leggur svo út f
þá eldraun að aka af stað. En
ekki virðigt allt ætla að ganga
að óskum, bifreiðin tekur tvo
hraustlega rykki áfram og drep-
ur svo á sér.
— Svona, gera þetta bara
rólega, með svolítilli mýkt, þá
kemur þetta allt, segir kennar-
inn hughreystandi
Nú er gerð önnur tilraun og
allt gengur vel, bifreiðin rennur
rólega og rykklaust af stað.
Og nú er ekið um bæinn. Ef
nemandinn gerir einhverja vit-
leysu, áminnir kennarinn hann,
skýrir út fyrir honum hvernig
eigi að gera þetta rétt. Nemand-
inn bftur á jaxlinn og einsetur
sér að muna eftir þessu næst.
En það er ekki nóg að kunna
að aka áfram eftir sléttum vegi
og stöðva þegar þess þarf.
Næs't kemur röðin að því að aka
aftur á bak og aftur á bak fyrir
horn, upp brekku og ótal fleira
er reynt. Tfminn lfður ört og
áður en varir er honum lokið.
Sfðustu tíu mínúturnar fara í
yfirheyrslu um umferðarmerki
og úr umferðarlögunum.
Margir halda því fram, að
kvenfólk aki verr en karlmenn
og við notum tækifærið og
spyrjum Hilmar að því hvort
að það sé mikill munur á þvf
að kenna kvenfólki heldur en
karlmönnum.
— Karlmenn eru yfirleitt
fljótari að læra á bfl heldur en
kvenmenn, en það er aftur á
móti mun samvizkusamara og
kann betur umferðarreglur
margt af þvf.
Þá er röðin komin að prófinu
sjálfu og kemur þá til kasta
Bifreiðaeftirlits rfkisins, að
reyna hæfni nemenda.
Menn eru haldnir próskrekk,
engu sfður en f öðrum prófum,
Efri mynd: Nú er röðin komin að því að bakka fyrir horn. Alls ekki upp á gangstétt og ekki
mikið út á götuna. (Ljósm. Vísir, p. sv.
Neðri mynd: Ein af prófraunuiium er að bakka inn á bás á bílastæði Bifreiðaeftirlitsins.
Karlmem fíjótarí að læra
kvenfólk samvizkusamara
en auðvitað mismunandi mikl-
um eins og gengur og gerist og
einn bifreiðakennari fræddi
okkur á því að það væri gott ef
nemendur myndu 60% af því,
sem þeir hefðu lært, meðan á
prófi stæði.
Tvíþætt próf.
Þegar nemandi hefur lokið
námi hjá ökukennara, sendir
hann beiðni til Bifreiðaeftirlits-
ins um að verða prófaður og
ieggur jafnframt fram Iæknis-
vottorð, hegningarvottorð og
skírnarvottorð. Eftir að umsækj
andinn hefur vottað heilbrigði
sitt, heiðarleik sinn og fæðingu
og skírn gengst hann undir
svokallað fræðilegt próf, mest-
megnis í umferðarreglunum.
Próf þetta fer fram í híbýlum
Bifreiðaeftirlitsins í Borgar-
túni 7, í sérstöku prófherbergi.
Þar velur umsækjandi milli átta
verkefna, sem hvert um sig er
með 24 spurningum og til þess
að standast prófið og mega
fara í það verklega, þ. e. a. s.
aksturinn verður hann að svara
minnst 21. rétt.
Klukkustundar akstur.
Þá er það sjálft ökuprófið
eða það sem kallað er verklegt
próf. Við fengum leyfi til þess
að fá að fara með í aksturs-
prófið, en til þess að setja ekki
neinn skrekk 1 nemandann, sem
var ung stúlka, urðum við að
skilja myndavélina eftir og ekki
láta hana vita í hvaða erinda-
gjörðum við værum. Við setj-
umst inn í grá Volkswágenbif-
reið Kjartans Jónssonar öku-
kennara, ásamt honum og próf-
dómaranum Pálma Friðrikssyni
bifreiðaeftirlitsmanni.
Við erum ekki fyrr setztir inn
en Pálmi lætur spurningarnar
dynja á nemandanum. Hvaða
ljós er þetta? Til hvers er
þetta? Hvað hefur komið fyrir
ef ljós kemur á þetta? Nemand-
inn virðist ekkert láta sér
bregða og svarar næstum því
alltaf samstundis, þar til spurn-
ingin kemur: Hvað getur komið
fyrir ef bifreiðin hættir að
smyrja? Nokkuð löng þögn,
svo kemur svarið ákveðið og
skýrt orðað: Það kviknar í bíln-
um. En þetta var eina spurn-
ingin sem nemandinn svaraði
ekki rétt, það getur alltaf eitt-
hvað óhapp skeð.
Til hægri og vinstri og
aftur á bak og áfram.
Eftir að Pálmi hafði þaul-
spurt nemandann segir hann
honum að aka af stað, og nem-
andinn heyrist tauta: Taka af
handbermsu, stíga á kúplingu,
gírinn fram!! Stíga á benzínið,
kúplingin upp og bíllinn rennur
af stað eins og hjá alvönum
ökumanni. Næsta stundarfjórð-
unginn segir Pálmi aðeins ým-
lill
ist til hægri, vinstri, beint á-
fram. Það er ekið í gegnum |||
miðbæinn, vestur í bæ, aftur
niður i miðbæ, upp í Þingholt, . >
sem að sögn er hjá prófdómur- j
um vinsælasti staðurinn til '' i
þess að reyna á hæfni nemenda. ;
Er við ökum eftir Bergstaða-
strætinu segir Pálmi nemandan-
um að stanza og bakka upp j
Bragagötu. Næsta eldraun er ; |
að láta bifreiðina renna í gang !
og það gengur eins og í sögu. j
Stúlkan er einnig látin sýna s
hvernig hún gengur frá bifreið
og allt gengur vel. Næst er ek- j
ið um bæinn i tuttugu mtnútur, I
síðan er staðnæmzt fyrir utan j
Bifreiðaeftirlitið og Pálmi til- I
kynnir stúlkunni að hún hafi
staðizt prófið ,og svarið verður j
langt: a.
Eftir þessa ökuferð röbbum
við þið þá Pálma, Gest Ólafsson
Framhald á bls. 13.