Tölvumál


Tölvumál - 01.03.1997, Blaðsíða 5

Tölvumál - 01.03.1997, Blaðsíða 5
TOLVUMAL Skýrsla formanns fyrir árið 1996 Eflir Hauk Oddsson Árið 1996 var viðburðaríkt ár í starfi Skýrslutæknifélags Islands. Það var að venju fyrsta verk nýrrar stjórnar að fara yfir stefnu félagsins og ákveða áherslur starfsins. Niðurstaða okkar var að breyta ekki yfirmarkmiði sem var sett árið áður og hafa að leiðar- Ijósi: Skýrslutœknifélag Islands - félag fólks í upplýsingatækni er málsvari fagsins á öllum sviðum. Félagið er vettvangur umrœðna og skoðanaskipta um upplýsinga- tœkni í því skyni að gera veg hennar sem mestan og stuðla að skynsamlegri notkun hennar. í framhaldi af þessu voru ákveðnar eftirfarandi áherslur starfsins: • Áfram skyldi haldið á braut sem þegar hafði verið mörkuð og slá þar hvergi af. Hér var sérstaklega átt við blómlegt ráðstefnu- og fundahald ásamt útgáfu Tölvumála. • Málefni Tölvumála skyldu og tekin til sérstakrar skoðunar og útgáfumálin öll endurskoðuð. • Á árinu 1996 skyldi haldið áfram á þeirri braut að gera fél- agið sýnilegra, jafnvel með meiri þunga en áður. • Undirbúningur að útgáfu orða- safns var þegar í fullum gangi og víst að það yrði fyrirferðar- mikið í starfi ársins. • Lögð skyldi áhersla á samstarf við innlenda aðila um stærri viðburði. Einnig skyldu kostir samstarfs við erlenda aðila skoðaðir sérstaklega. • Stefnt að fjölgun félagsmanna um a.m.k. 5% á árinu. • Ákveðið var að endursemja samþykktir félagsins sem þóttu komnar nokkuð til ára sinna. • Og að lokum þótti einnig ástæða til að undirstrika ásetn- ing um áframhaldandi upp- byggingu fjárhags félagsins. Það var mikið færst í fang - en hvemig gekk. Eins og gerist og gengur í öllu starfi gengur misvel að fylgja eftir áherslum og ná þeim markmiðum sem sett eru. Skýrslutæknifélagið er þar engin undantekning. Engu að síður er stefnumörkun og mark- miðasetning nauðsynleg og afar tímasparandi þegar taka þarf ákvarðanir og í raun eina leiðin til að tryggja velgengni í bráð og lengd. Ég hygg að það sé ekki einung- is sjálfumgleði mín sem foimanns að starfsemi síðasta árs hafi verið meiri en fyrr þó engan veginn hafi öll markmið náðst. Ráðstefnur Ráðstefnu- og fundahald hefur verið með miklurn blóma. Aldrei hafa fundir og ráðstefnur félagsins verið fleiri eða 11 í heildina. Haldnir voru 6 hádegisverðarfund- ir og 5 ráðstefnur, tvær af þeim voru heilsdags ráðstefnur. Aðsókn hefur í heildina aldrei verið meiri því þessa viðburði sóttu hvorki fleiri né færri en 955. Árið 1995 komu 800 á 9 viðburði. Meðal- aðsókn féll því lítillega, eða úr 89 í 87. Þess má og geta að alls voru það 42 fyrirlesarar sem töluðu á ráðstefnum og fundum. Samkeppni á ráðstefnumarkaðnum hefur vax- ið aftur eftir tiltölulega róleg ár. Eina leiðin til að standast þessa samkeppni er að halda háum gæð- um og huga vel að efnisvali. Tölvumál í samræmi við markmið var hafist handa við skoðun málefna Tölvumála. Skipaðir voru tveir fulltrúar stjómar sem með ritstjóm skyldu gera tillögur um útgáfumál. Hópurinn skilaði milliniðurstöðum í nóvember. Ekki hefur ennþá verið unnið úr þeim - en það verður gert. Tölvumál hafa að mínu mati aldrei verið betra tímarit. Ritstjórn hélt hvorki fleiri né færri en 34 fundi á árinu (einum fleiri en árið áður) og sýnir það glöggt urnfang þessa starfs. Það er einungis ein neikvæð hlið á útgáfu Tölvumála en hún er sú að blaðið er verulegur fjárhags- legur baggi á félaginu því, eins og sést í ársreikningum, var mikið tap á rekstri þess eða um 500 þúsund eða u.þ.b. 85 þúsund á hverju tölu- blaði. Það verður að viðurkennast að þarna erum við nokkuð langt frá markmiðinu sem er að blaðið standi undir sér. Ástæður þessa taps eru að auglýsingatekjur hafa dregist mikið saman. í mínum huga er útgáfa Tölvu- mála afar mikilvægur þáttur í starfi félagsins. Endurskoðun og breyt- ing á útgáfumálum er nauðsynleg og verður án efa eitt af brýnustu verkefnum nýrrar stjórnar. MARS 1997 - 5

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.