Tölvumál


Tölvumál - 01.03.1997, Blaðsíða 20

Tölvumál - 01.03.1997, Blaðsíða 20
TÖLVUMÁL Kynning - Skýrr hf. Gögnum breytt í gull - með vöruhúsi gagna Eftir Bönn Snœ Guðbrandsson Hvað er vöruhús gagna? Vöruhús gagna hýsir safn val- inna gagna sem búið er að hreinsa og flytja úr afgreiðslukerfum og setja upp í töflur sem eru aðgengi- legar til upplýsingavinnslu fyrir stjómendur. Með þessu gefa vöru- hús möguleika á upplýsingagjöf sem áður var vart möguleg og þá aðeins með aðstoð sérfræðinga, t.d. þegar leiða þarf saman gögn úr nokkrum ólíkum skrám og/eða kerfum. Við notkun vöruhússins sjá menn nýja möguleika við nýtingu gagnanna til upplýsingagjafar. Þetta leiðir til þess að virði gagn- anna eykst því gögn sem ekki eru notuð, eða lítið nýtt, eru eigend- um sínum lítils virði. Vöruhús gagna er aðferð til að nýta gögnin betur og gera þau verðmæt með því að breyta þeim í upplýsingar. Þú getur breytt gögnum í gull með vöruhúsi gagna! F Y R I R S P u R N I R N O T E N D A Myndin sýnir grunnhugmynd vöruhúss gagna. Gögnin flytjast vélrænt úr sívinnslu- kerfum í vöruhús gagna þar sem gögnin eru geymd í töflum. Notendur gera síðan fyrirspurnir í vöruhúsið og í vöruhúsum þar sem grunntöflur eru mjög stórar nota stjórnendur nær eingöngu töflur þar sem gögnin hafa verið sett upp í samtölur. Þaðan er hægt að grafa sig niður í grunngögnin ef þarf að skoða hvað stendur að baki samandreginna talna.________________________________________________ 20 - MARS 1997

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.