Tölvumál


Tölvumál - 01.03.1997, Blaðsíða 28

Tölvumál - 01.03.1997, Blaðsíða 28
TOLVUMAL upplýsingar. Tölvukerfið er þannig samnýtt af mörgum fiskmörkuðum sem þýðir lágmarks stofnkostnað í tölvubúnaði hjá fiskmörkuð- unum. Þeir þurfa einungis að ráða yfir PC-tölvu, módemi og prent- ara. Á síðasta ári voru seld 51 þús- und tonn af fiski fyrir rúma 3.8 milljarða króna hjá RSF. Ef með- talinn er virðisaukaskattur, ýmiss konar kostnaður og gjöld sem inn- heimt eru í gegnum Tengil lætur nærri að um 5 milljarðar króna renni árlega í gegnum kerfið. Sölu- og markaðs„brölt“ RSF hefur allt frá árinu 1993 verið að kynna kerfið erlendum aðilum og lagði áherslu á að kynna kerfið í Noregi 1993-94. Síðustu tvö árin hefur RSF beint sjónum sínum að fiskmörkuðum í Banda- ríkjunum. Þróun fiskmarkaða í Bandaríkjunum hefur ekki fylgt almennri tækniþróun og því eru tölvur yfirleitt ekki notaðar við að bjóða upp fisk þar. Á sumum mörkuðum er gamla krítartaflan látin duga þar sem kaupendur geta lesið framboð dagsins og svo er boðið upp með hrópum og köllum á milli kaupenda og uppboðshald- ara. Uppboð ganga mjög hægt fyrir sig og kaupendur eyða allt of miklum tíma í uppboðið sjálft. Öll uppboð eru staðbundin, að selja í fjarskiptum þekkist ekki. I tengslum við sjávarútvegs- sýninguna í Boston (Boston Sea- food Show) 1995 setti Reiknistof- an upp útstöð á Sheraton hótelinu og tengdist inn á uppboðið hér heima. Þarlent fyrirtæki, North- coast Seafood, keypti fisk beint yfir Atlantshafið frá fundarsalnum á Sheraton. I framhaldi af sýning- unni tók RSF þátt í útboði í sam- vinnu við Verk- og kerfisfræði- stofuna sem fólst í að tölvuvæða fiskmarkaðinn í Portland í Maine fylki. Aðrir sem tóku þátt í útboð- inu voru tvö bandarísk hugbún- aðarfyrirtæki, eitt hollenskt og eitt belgískt. Eftir mikið japl, jaml og fuður lenti RSF í 2. sæti í útboðinu en ákveðið var að ganga til sam- starfs við þarlent hugbúnaðarfyrir- tæki um hönnun á fiskmarkaðs- kerfi frá grunni. Óhætt er að segja að gamla hreppapólitíkin hafi verið í hávegum höfð við þá ákvörðun. Kerfið átti að afhendast 1. jan 1996 en skemmst er frá að segja að það hefur ekki enn verið tekið í notkun þegar þetta er skrifað í janúar 1997. Reiknistofan tók svo þátt í Bos- ton sýningunni í mars 1996 þar sem hún var með útstöð frá tölvu- kerfinu hér á Islandi. Þar komu að máli við RSF aðstandendur BASE sem höfðu á prjónunum áætlanir um stofnun uppboðsfyrirtækis í líkingu við Reiknistofu fiskmark- aða. Þeir höfðu hug á að tengja saman fjarlæga fiskmarkaði, svo og að bjóða upp aðrar vörur í fjar- skiptum svo sem grænmeti og kjöt. Þeir skoðuðu Tengil og úr varð að skrifað var undir samninga í júlí það árið. Bandaríska kerfið CASS boðar byltingu í upp- boðsháttum í USA þar sem upp- boðsmarkaðir starfrækja hefð- bundna gólfmarkaði, þ.e.a.s. kaupendur mæta á viðkomandi fiskmarkað, skoða fiskinn og bjóða svo í hann þegar viðkomandi markaður heldur uppboð. Fyrir fiskverkanda, sem kaupir á fjarlægum fiskmörkuðum, þýðir þetta að hann verður að ráða sér starfsmann í viðkomandi borg sem fer á markaðinn, skoðar fiskinn og tekur þátt í uppboðinu fyrir fiskverkandann. Með tilkomu CASS getur fiskverkandinn tengst BASE tölvusambandi, skoðað og prentað út lýsingu á þeim fiski sem er í boði á öllum fiskmörkuðum tengdum BASE. Hann getur sjálfur tekið þátt í uppboðinu í gegnum tölvuskjá frá skrifstofu sinni í stað þess að gefa umboðs- manni fyrirskipanir í gegnum símann. Tölvukerfi BASE samanstend- ur af tveimur HP9000/D2xx Unix vélum (önnur er varavél ef aðalvél skyldi bila), „exlernal" diskum, og fjarskiptabúnaði fyrir fastar staf- rænar kaupendalínur. Einnig eru nokkur upphringimódem sem not- uð verða fyrir demo-aðgang og kaupendur á ferðalagi sem vilja geta tengst inn á uppboðið t.d. frá hótelherbergi. Flestir kaupendur verða tengdir BASE í gegnum fasta 19.2K staf- ræna línu sem þeir fá lagða inn á skrifstofu til sín. Kaupendur notast við „heimska" skjái á þessari teng- ingu. I upphafi verða 30 stafrænar línur tengdar inn á kerfið en gert er ráð fyrir að 50 - 80 kaupendur verði tengdir nokkrum vikum eftir gangsetningu CASS. I upphafi var gert ráð fyrir að notast við ISDN tengingar en vegna reynsluleysis símafélagsins á staðnum í ISDN málum, og þeirrar staðreyndar að ekki var búið að setja upp ISDN búnað í símstöðinni, var afráðið að halda sig við 19.2K samband sem góð reynsla er af. Á hverjum uppboðsmarkaði verða settir upp nokkrir skjáir fyrir „minni“ kaupendur sem vilja ekki leggja út í kostnað við fasta línu inn á skrifstofuna. CASS er að miklu leyti byggt á Tengli en að sjálfsögðu þurfti að þýða og aðlaga kerfið að banda- rískum aðstæðum. Kerfið var endurskrifað þannig að öll framsetning miðast við að hægt sé að bjóða hvaða vöru sem er til sölu í kerfinu en ekki ein- skorðast við fisk. Einnig var öll textaframsetning endurskrifuð og gerð staðlaðri þ.a. þýðingar yfir á önnur tungumál verði tiltölulega auðveldar. Helstu breytingarnar felast aðallega í uppboðsþættinum sjálf- um. Uppboðið verður alveg raf- Frh. á nœstu síðu 28 - MARS 1997

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.